Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Vilja skoða ný flugvallarstæði á norðanverðum Vestfjörðum

Read Full Article →

Umhverfis- og samgöngunefnd vill að hagstæðari staðsetning fyrir flugvallarstæði á Ísafirði verði skoðuð. Bæjarstjóri fagnar tillögunni, sveitarstjórnarfólk hafi lengi sammælst um að það verði að tryggja flugið til lengri tíma. „Það hafa orðið miklar breytingar í framleiðslu á flugvélum og þetta er mjög erfitt flugvallarstæði, eins og allir þekkja sem hafa komið hingað. Þannig við þurfum að halda þessari umræðu á lofti og skoða alla valmöguleika“, segir Gylfi Ólafsson, verðandi bæjarstjóri í Ísafjarðarbæ og formaður Fjórðungssambands Vestfirðinga. Í apríl náðust samningar um flug milli Reykjavíkur og Ísafjarðar til 2030. Í útboði var reiknað með að kostnaðurinn yrði 1,3 milljarðar króna. Eina tilboðið sem barst kom frá Icelandair - og hljóðaði upp á 3,5 milljarða. Flækjustigið er að ákveðna stærð flugvéla þarf til flugsins, vélar sem Icelandair er farið að nota minna en áður. Aðrir sjá ekki hag í að bjóða í flugið eða eru ekki með flugvélar sem henta til þess. Vegagerðin hafnaði fyrsta tilboði og talaði Icelandair niður í einn komma sjö milljarða, en á móti minnkuðu kröfurnar um hversu oft yrði að fljúga. Samningurinn kveður á um minnst 452 hringferðir á ári, en mismikið eftir árstíma. Til dæmis er ætlunin að fljúga minnst daglega milli borgarinnar og Ísafjarðar yfir háveturinn en minnst tíu sinnum á viku yfir sumarmánuði. Varnarsigur að flugið hafi verið tryggt næstu 4 árin Vestfirðingum leist vitanlega ekki vel á þjónustuskerðingu, en Gylfi segir jákvætt að flugið sé tryggt næstu fjögur árin. „Já við litum á þetta sem varnarsigur, það er bara mjög mikilvægt að það sé hágæðaflug sem er að minnsta kosti daglega og helst tvisvar á dag, allt árið um kring. Að það sé á góðum vélum, með jafnþrýsti búnað og þokkalega stórum vélum.“ Þarf að tryggja samkeppni um flugleiðina Meirihluti umhverfis- og samgöngunefndar hefur lagt til að inn í aðgerðaáætlun samgönguáætlunar verði skoðuð ný staðsetning verði skoðuð fyrir flugvallarstæðið á norðanverðum Vestfjörðum Það þurfti til að tryggja virka samkeppni um flugleiðina. Sveitarstjórn segir enga borðleggjandi staðsetningu fyrir nýja flugbraut, en ljóst sé að það verði að tryggja aðgengi stærri flugvéla.

Share this article