Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Aðsend grein: Verðbólga er ekki náttúruafl

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.5.2026 | 8:00 Verðbólga er ekki náttúruafl Bjarni Benediktsson mbl.is/Eggert Jóhannesson Setja bókamerki Aðsend grein úr Morgunblaðinu Verðbólga og hátt vaxtastig hafa haft mikil neikvæð áhrif á íslensk heimili og fyrirtæki. Verðbólgan er veruleiki sem birtist í hærri afborgunum, dýrari fjárfestingu og innkaupum auk þess sem óvissa um framtíðina vex. Ný viðhorfskönnun Maskínu fyrir Samtök atvinnulífsins staðfestir þetta skýrt. Nærri sjö af hverjum tíu segjast hafa miklar áhyggjur af verðbólgu og níu af hverjum tíu segja hana hafa neikvæð áhrif á heimilisbókhaldið. Þetta eru afgerandi niðurstöður. Þær minna okkur á að verðbólga er allt annað en abstrakt stærð í línuriti hjá Hagstofunni. Verðbólga er daglegur veruleiki sem hefur bein áhrif á líf fólks, fjárhagslegt öryggi heimila og getu fyrirtækja til að grípa tækifæri og taka ákvarðanir um framtíðina. Könnunin sýnir fleira sem skiptir máli. Yfirgnæfandi meirihluti landsmanna telur að atvinnulíf, launafólk og stjórnvöld þurfi að vinna saman og taka sameiginlega ábyrgð á efnahagsmálum til að ná meiri stöðugleika að nýju. Það eru mikilvæg skilaboð á tímum þar sem umræða um efnahagsmál verður iðulega hörð og óvægin. Tölum um væntingar Við fáum reglulega fréttir af verðbólgumælingum frá einum mánuði til þess næsta. En það er ekki síður mikilvægt að beina sjónum að verðbólguvæntingum. Þegar fyrirtæki, heimili og markaðir fara að gera ráð fyrir áframhaldandi verðbólgu hefur það áhrif á hegðun. Fyrirtæki hækka verð fyrr til að verja sig gegn væntum kostnaðarhækkunum. Sama gildir um opinbera aðila sem iðulega hækka gjaldskrár í takt við vænta verðbólgu. Á móti kallar starfsfólk eftir meiri launahækkunum til að verja kaupmátt sinn. Heimili flýta fjárhagsákvörðunum og fjármálamarkaðir verðleggja óvissu um verðbólguna með hærri vöxtum. Slíkt ástand skapar eins konar vítahring sem getur viðhaldið verðbólgu jafnvel þótt eiginleg uppspretta hennar sé farin að veikjast. Verðbólguvæntingar eru því ekki eingöngu mælikvarði á það hvað fólk telur að muni gerast, því væntingarnar stýra líka hegðun. Verðbólguvæntingar eru því ein stærsta áskorun okkar í efnahagsmálum. Ef samfélagið allt fer að haga sér eins og verðbólgan verði áfram mikil verður mun erfiðara og tafsamara að endurheimta stöðugleikann, lækka vexti og tryggja fyrirsjáanleika fyrir ákvarðanir heimila og fyrirtækja. Rjúfum vítahringinn Verkefnið eigum við að nálgast sem sameiginlega áskorun. Við erum ekki í keppni um að finna sökudólg þótt greining á vandanum sé mikilvæg og samhengi efnahagsstærða skipti miklu máli. Staðreynd málsins er sú að saman getum við náð miklum árangri en sundruð mjög takmörkuðum. Með þetta í huga hófu Samtök atvinnulífsins í liðinni viku Hrin gferð SA 2026 undir yfirskriftinni „Rjúfum vítahringinn“. Markmið hringferðarinnar er að skapa vettvang fyrir opið samtal um hvernig við náum aftur meiri stöðugleika í íslensku samfélagi. Við viljum ræða raunverulegar áskoranir fyrirtækja og heimila, heyra ólíkar raddir og ræða hvaða ákvarðanir þurfi að taka til að styrkja samkeppnishæfni, draga úr verðbólgu og bæta lífskjör til lengri tíma. Án vafa mun þurfa að færa fórnir, samtakamátturinn losar okkur ekki undan því að þurfa að taka erfiðar ákvarðanir, en samstaða um þær getur skipt öllu. Samtalið er sérstaklega mikilvægt nú þegar óvissa í alþjóðahagkerfinu fer vaxandi. Víða glíma ríki við aukna verðbólgu, spennu í alþjóðaviðskiptum og hægari hagvöxt. Í slíku umhverfi skiptir miklu máli að efla samtakamáttinn, draga úr óvissu, styrkja grunn verðmætasköpunar í landinu og bæta að nýju samkeppnishæfni landsins. Höldum Íslandi í fremstu röð Stöðugleiki verður ekki til af sjálfu sér. Hann byggist á skýrri sýn, trausti, ábyrgð og samhæfingu. Við eigum nýleg dæmi um að hafa brotist úr þrengingum og stórum áskorunum með samstilltu átaki og trú á möguleika landsins. Nú þarf að taka ákvarðanir með langtímahagsmuni samfélagsins í huga og trúa því að við getum gert betur. Þegar öllu er á botninn hvolft þurfum ekki að vera sammála um allt til að standa saman um það sem skiptir mestu máli. Við eigum verðbólguna sem sameiginlegan óvin. Það er sameiginlegt verkefni okkar nú að rjúfa vítahringinn og endurheimta stöðugleikann. Þannig höldum við Íslandi í fremstu röð. Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Óræð niðurstaða um krónu og evru Tekur undir orð Bjarna Búið að kíkja, búið að fá undanþágur og búið að semja Aðsend grein: Verðbólga er ekki náttúruafl Hluthafar greiði launin Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eldri hjón unnu 336 milljónir Segja kostnaðinn við krónuna líklega meiri en ábatann Breytingar boðaðar í borginni „Sýnir að þessar slár eru að gera sitt gagn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Timburdekkið lagt niður Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ „Grunnsamleg háttsemi“ við grunnskóla Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Hluthafar greiði launin Líkur á að kjarasamningar bresti Eldri hjón unnu 336 milljónir Vill tengja Tansaníu, Tesla og Ísland Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Óræð niðurstaða um krónu og evru Tekur undir orð Bjarna Búið að kíkja, búið að fá undanþágur og búið að semja Aðsend grein: Verðbólga er ekki náttúruafl Hluthafar greiði launin Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Haustið ber með sér óvissu Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Timburdekkið lagt niður Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ „Grunnsamleg háttsemi“ við grunnskóla Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Hluthafar greiði launin Líkur á að kjarasamningar bresti Eldri hjón unnu 336 milljónir Vill tengja Tansaníu, Tesla og Ísland Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað

Share this article