Viðskipti | mbl | 5.3.2026 | 18:26 Verðbólguvorið runnið upp Árni Sigurjónsson, fráfarandi formaður SI. mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Íslenskt atvinnulíf og heimilin í landinu finna rækilega fyrir auknu atvinnuleysi og hækkandi verðbólgu hérlendis. Þetta sagði Árni Sigurjónsson, fráfarandi formaður Samtaka iðnaðarins, er hann setti iðnþingið í dag. „Spekingar töluðu um að loknu hinu meinta verðmætasköpunarhausti – sem var reyndar öfugmæli eftir allt saman – væri nú runnið upp verðbólguvor. Það er því miður mikið til í því,“ sagði Árni. „Nýjustu atvinnuleysistölur vekja sömuleiðis ugg í brjósti okkar allra, því fátt er meira eitur í beinum Íslendinga en atvinnuleysið. Íslenskt atvinnulíf og heimilin í landinu finna rækilega fyrir þessari stöðu og þar glímum við fyrst og fremst við heimatilbúnar orsakir, sem hægt hefði verið að stemma stigu við og afstýra.“ Hann sagði það skjóta skökku við að aðgerðir og ákvarðanir hins opinbera viðhaldi og auki raunar verðbólgu. „Sú staðreynd að ríki og sveitarfélög hafi verið leiðandi í launaþróun og tekið fram úr hinum almenna markaði er fráleit staða sem við þurfum að ná samstöðu um að breyta,“ sagði hann. Höfum hvorki tíma né ráð fyrir ósamstöðu Í ávarpi sínu lagði Árni mikla áherslu á samstöðu í mikilvægum umbótamálum á óvissu- og umbrotatímum. „Hvort heldur sem horft er til stöðu efnahagsmála hér innanlands eða þeirrar spennu og óróa sem vex stöðugt í alþjóðamálum, ríður á að standa saman. Við sem samfélag höfum hvorki tíma né ráð á að tala í óeiningu þegar allt umhverfið í kringum okkur er jafn hverfult og raun ber vitni,“ sagði hann. Hann sagði forsendur slíkra breytinga vera aukið samtal við stjórnvöld, atvinnulíf, aðila vinnumarkaðarins og aðra hagaðila. Hann hvetur til þess að þessi samtöl hefjist nú. „Gleymum okkur samt ekki í samtalinu því árangur næst nefnilega ekki með því að bíða eftir fullkomnum aðstæðum – árangur næst þegar menn leggja af stað,“ bætti hann svo við. Nýsköpunin mikilvæg Þá segir hann mikinn samhljóm hafa fundist um mikilvægi nýsköpunar. Vöxtur tækni- og hugverkaiðnaðar undanfarinn áratug hafi verið ævintýralegur. „Útflutningstekjur tækni- og hugverkaiðnaðar á síðasta ári námu tæplega 370 milljörðum króna, sem samsvarar 18% af heildarútflutningstekjum hagkerfisins,“ sagði hann. Ríkisstjórnin eigi að reka samfélagið Árni kallar eftir sterkri pólitískri forystu í þessum brýnu verkefnum. „Það eru margir til kallaðir til að gefa álit og ráð í stöðunni. Það er hins vegar svo að það eru fáir útvaldir sem hafa raunveruleg áhrif og völd til að snúa þessari óheillaþróun við.“ Hann sagði ríkisstjórnina ekki mega einskorða hlutverk sitt við rekstur ríkisins því hún eigi fyrst og fremst að reka samfélagið. Að lokum þakkar hann fyrir gott samstarf en Árni hefur verið formaður samtakanna síðastliðin sex ár. „Ef við stillum saman strengina og finnum samhljóminn sem víðast mun árangurinn ekki standa á sér,“ segir hann í lok ávarpsins. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Ríkisútvarpið, hryðjuverkasamtök og Íran Sigurður Már Jónsson Markmiðið að veikja hernaðarmátt Írana Fleira áhugavert Segir Davíð ekki hafa notið sannmælis Kjarnorkuvetur í kvikmyndabransa Greindist með sjaldgæfa berkla í endaþarmi Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Þorsteinn kjörinn formaður SI Betri fyrirmynd en Stjáni Blái 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Gefast upp á deilunni og lofa Íslendingum afslætti Indland sækir fram á öllum sviðum Ísland standi frammi fyrir nýjum áskorunum Íslandssjóðir hagnast um 262 milljónir Beint: Iðnþing Samtaka Iðnaðarins í Hörpu Wayne Louw ráðinn aðalrekstrarstjóri Verne Hrafn ráðinn framleiðslustjóri Gosfélagsins 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Gefast upp á deilunni og lofa Íslendingum afslætti Skoða risavirkjun á Grænlandi Hrafn ráðinn framleiðslustjóri Gosfélagsins Íslandssjóðir hagnast um 262 milljónir Hlutabréfavísitölur falla í Bandaríkjunum Indland sækir fram á öllum sviðum Hillerup frá Microsoft til Lucinity Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Andri lætur af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar Skoða risavirkjun á Grænlandi 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Gefast upp á deilunni og lofa Íslendingum afslætti 21 milljarðs gjaldþrot Play Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte Cabin kaupir Hótel Laka Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand Pistlar » Sigurður Már Jónsson Ríkisútvarpið, hryðjuverkasamtök og Íran Sigurður Már Jónsson Markmiðið að veikja hernaðarmátt Írana Fleira áhugavert Íranar í myrkrinu Fjórir handteknir eftir alvarlega árás „Öryggið er fyrir öllu“ Ráðherra vill afnema „neitunarvald“ landeigenda Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Þorsteinn kjörinn formaður SI Betri fyrirmynd en Stjáni Blái 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Gefast upp á deilunni og lofa Íslendingum afslætti Indland sækir fram á öllum sviðum Ísland standi frammi fyrir nýjum áskorunum Íslandssjóðir hagnast um 262 milljónir Beint: Iðnþing Samtaka Iðnaðarins í Hörpu Wayne Louw ráðinn aðalrekstrarstjóri Verne Hrafn ráðinn framleiðslustjóri Gosfélagsins 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Gefast upp á deilunni og lofa Íslendingum afslætti Skoða risavirkjun á Grænlandi Hrafn ráðinn framleiðslustjóri Gosfélagsins Íslandssjóðir hagnast um 262 milljónir Hlutabréfavísitölur falla í Bandaríkjunum Indland sækir fram á öllum sviðum Hillerup frá Microsoft til Lucinity Jón Þorsteinn ráðinn forstjóri Beru Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand Seðlabankinn gerir alvarlegar athugasemdir Andri lætur af störfum sem forstjóri Ölgerðarinnar Skoða risavirkjun á Grænlandi 55 af 84 íbúðum fóru í útleigu Gefast upp á deilunni og lofa Íslendingum afslætti 21 milljarðs gjaldþrot Play Þorsteinn lætur af störfum sem forstjóri Deloitte Cabin kaupir Hótel Laka Gengi bréfa ekki lægra síðan eftir Covid-fallið 2020 Atvinnuleysistölur nálgast kreppuástand