Sigurjón Andrésson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Skaftárhrepps. Ráðning Sigurjóns verður staðfest þegar ný sveitarstjórn tekur til starfa 9. júní. D-listinn og óháðir hlutu meirihluta í sveitarstjórn Skaftárhrepps eða þrjá menn af fimm en Ö-listinn er einn í minnihluta. „Ég er bæði spenntur og þakklátur fyrir þetta tækifæri. Fram undan eru spennandi verkefni og ég hlakka til að vinna með íbúum, starfsfólki og sveitarstjórn að áframhaldandi þróun og uppbyggingu Skaftárhrepps,“ er haft eftir Sigurjóni í tilkynningu. Sveinn H. Jensson, oddviti D-listans, og Sigurjón Andrésson, nýráðinn sveitarstjóri.Aðsend