Málningarverslunin Sérefni hagnaðist um 103 milljónir króna í fyrra, samanborið við 42 milljóna hagnað árið áður. Tekjur námu 1.225 milljónum og jukust um 4% milli ára. Framlegð nam 594 milljónum, sem er 11,4% aukning milli ára. Stöðugildi voru 26 á árinu og fjölgaði um 2 milli ára. Eignir voru bókfærðar á 398 milljónir í lok árs og eigið fé nam 268 milljónum. Stjórn leggur til að 30 milljónir verði greiddar í arð en árið áður nam arðgreiðslan 84 milljónum Lykiltölur / Sérefni ehf. 2025 2024 Tekjur 1.225 1.178 Eigið fé 268 250 Eignir 398 383 Afkoma 103 42 - í milljónum króna Fréttin birtist fyrst í Viðskiptablaðinu .