Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Talið er nú í fyrir tónleika á Þingvöllum

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 30.5.2026 | 17:40 Talið er nú í fyrir tónleika á Þingvöllum Davíð Antonsson, til vinstri, og Rubin Pollock úr Kaleo. Á hægri væng myndarinnar standa Ósk Gunnarsdóttir og Jakob Frímann Magnússon sem hafa veg og vanda af Bergmáli því sem verður á Þingvöllum. mbl.is/Sigurður Bogi Sigurður Bogi Sævarsson [email protected] Setja bókamerki „Við erum að undirbúa fallega hátíð þar sem landsmönnum gefst kostur á að heyra til frábærra listamanna,“ segir Rubin Pollock, einn liðsmanna Kaleo. Hljómsveitin verður í aðalhlutverki á tónleikunum Bergmáli, sem verða á Þingvöllum 20. júní nk. Þá verður talið í og taktur sleginn. Um þessar mundir eru liðin tíu ár frá því AB, platínuhljómplata Kaleo, kom út og nú er væntanleg endurbætt útgáfa hennar. Sum laganna sem á plötunni er að finna verða flutt á Þingvöllum í næsta mánuði, svo og lagið Still No Good, sem var frumflutt í nýrri útgáfu í gær. Frétt af mbl.is Útilokar ekki að veðurbreytir verði notaður á Þingvöllum Einstök stemning Á Þingvallatónleikunum kemur fram hópur skipaður úrvali íslenskra tónlistarmanna. Þetta eru auk Kaleo þau Emilíana Torrini, Mugison, Stuðmenn, Helgi Björnsson, Hjálmar, GDRN, Júníus Meyvant, KK, Árný Margrét og fleiri góðir sem senn verða kynntir. „Þegar svo margir góðir listamenn mæta myndast einstök stemning,“ segir Davíð Antonsson trommuleikari Kaleo. Mikið er undir hjá liðsmönnum sveitarinnar um þessar mundir. Í undirbúningi er sjö vikna tónleikaferð um Kanada og Bandaríkin en Bergmál á Þingvöllum er þó nær í tíma. Þar verður mikið lagt undir og sköpuð umgjörð sem hæfir stað og stórbrotinni náttúru. Tónleikagestum verður stefnt til að ganga frá Hakinu niður Almannagjá þar sem lúðrasveit mun standa undir klettum og leika Öxar við ána. Hljómsveitin Kaleo lék fyrir þúsundir í Vaglaskógi síðasta sumar. mbl.is/Þorgeir Hugmynd úr Vaglaskógi Undirbúningur að Bergmáli hefur tekið eitt ár, en farið var af stað með verkefnið strax í kjölfar tónleika Kaleo í Vaglaskógi fyrir norðan. Hugmyndin að tónleikum á helgistað og í þjóðgarði er fengin úr Vaglaskógi og kom frá liðsmönnum Kaleo. „Jakob Frímann Magnússon, maður líkastur náttúruafli, sem skipulagði og undirbjó tónleikana í Vaglaskógi, tók okkur á orðinu. Hann er sjálfsagt eini maðurinn sem gæti komið í kring viðburði eins og þeim sem nú verður á Þingvöllum,“ segir Davíð úr Kaleo. „Fregnir af dagskrá tónleikanna og því sem í vændum er hafa bergmálað víða,“ segir Jakob Frímann Magnússon tónleikahaldari. „Á fyrstu tveimur dögum miðasölu á tónleikana fóru út alls 17.500 miðar sem væntanlega er Íslandsmet. Þetta hefur valdið misskilningi um að allt væri uppselt, sem er misskilningur. Vissulega saxast á, en sem betur fer er nokkuð enn til af óseldum miðum. Um undirbúning tónleikanna get ég sagt að þar var allt lagt undir. Leitað var atfylgis víða, svo sem hjá þjóðgarðsverði, Þingvallanefnd og forsætisráðherra sem endanlega gaf grænt ljós.“ Frétt af mbl.is Taka á móti 20.000 gestum en óttast ekki vanhelgun Fólk fari með rútu á Þingvelli Vænst er allt að 20.000 manns á Þingvelli 20. júní. Til þess að koma í veg fyrir umferðarteppur er fólki ráðlagt að fara á svæðið með rútum, sem fara frá Sundahöfn í Reykjavík frá kl. 10 um morguninn, fram og til baka allan daginn. Dagskrá hefst svo kl. 11 með hljóðfæraslætti og söng á Valhallarsviði og kl. 14 á Dynbergi, sem er nærri Öxarárfossi. Allar upplýsingar um ferðir, dagskrá og fleira er á moment.is og keytoiceland.is. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Talið er nú í fyrir tónleika á Þingvöllum Societies built on trust París SG - Arsenal, staðan er 1:1 Myndskeið: Svaraði óvænt á reiprennandi spænsku Ákært í manndrápsmáli frá 2022 Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lyfta grettistaki í Gambíu Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Eldri hjón unnu 336 milljónir „Sýnir að þessar slár eru að gera sitt gagn“ Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Leyniherbergi í Alþingishúsinu Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Miðill læknaði hann af kviðsliti Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Talið er nú í fyrir tónleika á Þingvöllum Societies built on trust París SG - Arsenal, staðan er 1:1 Myndskeið: Svaraði óvænt á reiprennandi spænsku Ákært í manndrápsmáli frá 2022 Umræðan Staðalbúnaður tungumálsins Óhreina tauið Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Líkur á að kjarasamningar bresti Reynum að fanga sál Evrópu Segja stöðuna betri: „Skiljanlega er fólki brugðið“ Miðill læknaði hann af kviðsliti Mest lesið Í gær Í vikunni Myndband: Handtaka í Hveragerði Tekur undir orð Bjarna Breyta fánareglum Reykjavíkurborgar Timburdekkið lagt niður „Grunsamleg háttsemi“ við grunnskóla Hluthafar greiði launin Leyniherbergi í Alþingishúsinu Skatturinn slæm ákvörðun en Ísland nái sér á strik Miðill læknaði hann af kviðsliti Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Inga farin í veikindaleyfi Eldri hjón unnu 336 milljónir Myndband: Handtaka í Hveragerði Veðurstofan varar við eldingaveðri og gul viðvörun gengur yfir Inga Sæland: Vonast til að verða ekki lengi frá Andlát: Stefán Jökulsson Séra Kristján segir af sér vegna meints brots Einn fluttur á slysadeild eftir harðan árekstur Daði tjáir sig um símtalið við Hildi Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum „Alvarlegt atvik í vesturbæ Kópavogs“ Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað

Share this article