Hann er með 85 kWh rafhlöðu sem skilar 610 hestöflum og 522 km drægni. Krafturinn er það mikill að það tekur hann einungis fjórar sekúndur að fara úr kyrrstöðu upp í 100 km hraða. EHS5 er vel búinn, meðal annars með panorama-glerþaki. EHS5 kemur í tveimur útfærslum, Premium og Pro, og munar litlu í búnaði. Pro er með 20" álfelgur í stað 19" í Premium og þá er Pro með nuddi í framsætum og rúskinnsinnréttingu í þaki. Rauða flaggið á húddinu Nafn Hongqi þýðir rauða flaggið og er það sýnilegt í merki bílaframleiðandans, sem er líkt og rauður borði sem liggur frá grilli og upp á húdd bílsins. Bíllinn er straumlínulagaður og minnir meira á sportbíl en jeppa. Hann er 4750 mm að lengd, breiddin er 1900 mm og heildarhæðin er 1640 mm. Fínasta stærð er á farangursrými, en það er 462 l og stækkanlegt í 1601 l með aftursætin niðri. Það tekur bílinn einungis 20 mínútur að hlaða frá 10-80% í DC hleðslu en hann er með 265 kW DC hraðhleðslumöguleika. Þá er hann einnig með 11 kW AC hleðslumöguleika fyrir heimahleðslustöð. Minimalismi í hönnuninni á innanrýminu. Innanrýmið er mjög minimalískt og lítið sem ekkert er um takka. Líkt og margir bílar í dag er EHS5 með alla stjórnun í gegnum margmiðlunarskjáinn. Það er hægt að vista flýtiaðgerðir í stjórntökkum í stýri en það þarf að venjast og er örugglega ekki fyrir alla. Til að mynda þarf að fara í gegnum tvær eða fleiri aðgerðir til að stilla hita í sætum eða stýri og þá er næstum óhjákvæmilegt að taka augun af veginum. Kostur er að það er sjónlínuskjár sem er virkilega góður, með stórt sjónsvið og kemur þar meðal upp veglínuaðstoð. Góðir aksturseiginleikar Aksturseiginleikar bílsins eru nokkuð góðir. Hann er ótrúlega snöggur upp miðað við stærð og þyngd, en bíllinn er 2.291 kg. Fjöðrunin er hins vegar í mýkri kantinum miðað við kraftinn sem bíllinn býr yfir og fannst mér hún mega vera stífari. Stýrið er þægilegt og hann er léttur í keyrslu. Eins og áður sagði fannst mér vanta vissa takka fyrir einfaldar aðgerðir og þá hefði verið gott að vera með fleiri takka í stýri. Nánar er fjallað um málið í sérblaði Viðskiptablaðsins, Bílar . Áskrifendur geta lesið greinina í heild hér .