Að öllu gamni slepptu er JAC E30X nettur og hagkvæmur rafbíll með frekar rúmgóðu innanrými. Hringlaga ljósin að framan gefa E30X retróútlit og þá er litavalið sem í boði er skemmtilegt og líflegt. Reynsluakstursbíllinn var tvílitur, hvítur með svörtu þaki, en einnig er hægt að fá bílinn einlitan. E30X kemur með 51,5 kW rafhlöðu og áætlaða drægni frá 374 til 524 km. Hámarkshleðslugeta með DC 64 kW hraðhleðslu er gefin frá 30-80% á 30 mínútum. Með einfasa AC 7,4 kW hleðslu tekur 12 klukkustundir að hlaða hann frá 0-100%. Góður staðalbúnaður Staðalbúnaður í E30X er m.a. Apple CarPlay & Android Auto snjallsímatenging, 8 loftpúðar, 12,8“ LED-snertiskjár, 360° myndavélakerfi, panorama-glerþak, 4 ISOFIX-festingar, vegan leðuráklæði, kæling í framsætum, geymsluhólf með kælingu og hita í armhvílu og þráðlausri farsímahleðslu. Stór margmiðlunarskjárinn setur svip sinn á annars líflega innréttingu. Í mælaborðinu er 6,2” ökumannsskjár sem er fastur við stýrið. Hægt er að stilla hæð stýrisins en ekki fjarlægð frá ökumanni, sem er miður. Ökumannsskjárinn er nokkuð skýr en hins vegar eru upplýsingar í skjánum frekar litlar, t.a.m. klukkan. Fyrir miðju er síðan 12,8” stór LED-snertiskjár þar sem flestar stillingar eru gerðar. Þar er hægt að breyta um akstursham en í boði er vistvænn akstur, venjulegur og akstur í snjó. Kannski kemur á óvart að engin sportstilling skuli vera en hins vegar er bíllinn ágætlega sprækur í normal-stillingunni og kannski ekki hægt að biðja um meira. Hann er um 7,8 sekúndur í hundraðið og er það þokkalegt þar sem bíllinn er 134 hestöfl. Hann er hins vegar léttari en margur rafbíllinn, einungis 1.440 kg. Farangursrýmið er 310 lítrar. Lífleg innrétting Innréttingin er, líkt og útlit bílsins, í senn lífleg og retró. Sætin eru nokkuð þægileg og pláss fyrir 4 til 5. Fótapláss í aftursætum er mjög gott enda gólfið flatt. Hægt er að velja um dökka eða ljósa innréttingu bæði á mælaborði og sætum. Hönnuðir E30X hrífast greinilega af tígul- og hringlaga mynstri. Tígulmynstrið er sýnilegt í hitablástursopnun fyrir hliðarrúðu, á mynstri í hliðarhurðum og svo í sérstökum skrautlista í mælaborði. Hringlaga formin koma skemmtilega út í framljósum, hliðarspeglum sem og hurðarhandföngum að innan. Framendinn er einfaldur og viðkunnanlegur. Nánar er fjallað um málið í sérblaði Viðskiptablaðsins, Bílar . Áskrifendur geta lesið umfjöllunina í heild hér .