Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Keppir fyrsta sinni á HM í bekkpressu

Read Full Article →

Íþróttir | mbl | 31.5.2026 | 12:50 Keppir fyrsta sinni á HM í bekkpressu Jón Sigurður Gunnarsson undir stönginni á HM í Varsjá á fimmtudaginn í klassískri bekkpressu. Í dag keppir hann í bekkpressu með búnaði. Ljósmynd/Aðsend Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Ég byrjaði að æfa bekkpressu upp úr tvítugu samhliða áhaldafimleikum og félagi minn sagði mér að ég gæti orðið sterkur í henni af því að ég er góður í hringjum,“ segir Jón Sigurður Gunnarsson kraftlyftingamaður í samtali við mbl.is en hann keppir nú á sínu fyrsta heimsmeistaramóti í bekkpressu í Varsjá í Póllandi, hvort tveggja klassískri bekkpressu og með stuðningsbúnaði. Hann er tiltölulega nýkominn úr hléi frá kraftlyftingum sem hann tók á meðan hann einbeitti sér að fimleikunum í áratug en nú hefur stálið átt hug hans allan í þrjú ár og nokkur Íslandsmet í höfn í bekkpressu og þrílyftu þar sem Jón Sigurður keppir í -59 kg flokki. Aðdragandann að HM í Póllandi segir hann hafa verið að í fyrra hafi komið í ljós að hann hafi verið kominn allnærri A-lágmörkum fyrir HM í bekkpressu og í febrúar á þessu ári náði Jón Sigurður þessum lágmörkum fyrir klassíska bekkpressu og bekkpressu með búnaði. Þar með var keppnisrétturinn í höfn. Jón Sigurður keppti í klassískri bekkpressu á fimmtudaginn og segir markmiðið þar einkum hafa verið að bæta sitt eigið Íslandsmet. „Mikil vinna hjá mér fyrir mót fer alltaf í að létta mig niður í minn þyngdarflokk og þá þarf ég að huga vel að mataræði og æfingum til þess að komast þægilega undir og án allra öfga,“ útskýrir hann. Jón Sigurður átti ekki í vandræðum með 115 og 122,5 kg en 127,5, sem átti að verða bæting á hans eigin Íslandsmeti síðan í ársbyrjun fór ekki í þetta skiptið. Þarna getur jafn einfalt fyrirbæri og dagsformið fræga skilið milli feigs og ófeigs, flestir sem fengið hafa keiminn af stálinu um ævina þekkja að þeir dagar koma sem bókstaflega allt fer upp, hvort sem er á æfingu eða í keppni, og svo eru aðrir dagar aðeins meira í mínus. Ljósmynd/Aðsend Íslandsmetið stóð óhaggað Þrjár lyftur fær hver keppandi þegar um keppni í bekkpressu er að ræða og Jón Sigurður opnaði með 115 kg eins og hann gerði á Íslandsmeistaramótinu í janúar. „Ég hafði hugsað mér að opna hærra en mér leið bara þannig í upphituninni að við ákváðum að hafa þetta öruggt og ná löglegri lyftu til að fá árangurinn alla vega skráðan,“ segir Jón Sigurður en þessi „við“ eru auk hans sjálfs þjálfararnir Hjálmar Andrésson og Þórunn Brynja Jónasdóttir. Japan á keppendur í nær öllum flokkum heimsmeistaramótsins og hér stendur Jón Sigurður á milli þeirra landanna Tatsuya Kawashima og Shu Hamaguchi. Ljósmynd/Aðsend Byrjunarþyngdin fór upp og eins 122,5 kg í annarri lyftunni. Þá var komið að því að slá ríkjandi Íslandsmet í flokknum, 125 kg, sem Jón Sigurður setti sjálfur á ÍM í janúar, og þar með fóru 127,5 kg á stöngina en upp fór sú þyngd ekki í þetta sinnið og Jón Sigurður þar með í sjöunda sæti í flokknum af sjö keppendum en reynslan komin í hús – að hafa keppt á sínu fyrsta heimsmeistaramóti. „Þannig að ég endaði með 122,5 kg en ég hefði lent í þessu sama sæti þótt ég hefði tekið 127,5 kg svo það skipti engu máli á þessu móti,“ segir hann og játar að nokkuð súrt hafi verið að ná ekki því markmiði að setja nýtt Íslandsmet. Keppir í búnaði í dag Japaninn Shu Hamaguchi bar sigur úr býtum í -59 kg flokki með 172,5 kg og segir Jón Sigurður hann einfaldlega svakalegan og ljóstrar því upp aðspurður að Japan eigi fulltrúa í öllum flokkum á mótinu. „Mikil vinna hjá mér fyrir mót fer alltaf í að létta mig niður í minn þyngdarflokk og þá þarf ég að huga vel að mataræði og æfingum til þess að komast þægilega undir og án allra öfga,“ segir Jón Sigurður Gunnarsson. Ljósmynd/Aðsend Jón Sigurður keppir svo í bekkpressu með búnaði í dag og þá í fjögurra manna flokki og aldrei að vita hvað gerist þá. Hvað finnst þér nú persónulega um kraftlyftingakeppni með búnaði? „Ég er reyndar búinn að mynda mér skoðun á því,“ svarar Jón Sigurður um hæl, „ég var óviss með þetta til að byrja með, manni leið bara eins og það væri einhver svindltækni. Ef þú notar þennan búnað rétt ertu að bæta mörgum kílóum á lyftuna þína, maður sér árangurinn hraðar sem er ótrúlega skemmtilegt. Í klassískri bekkpressu er árangurinn hins vegar hægari og þú sérð ekki bætingar nema þú virkilega vinnir fyrir þeim, en því meira sem þú vinnur fyrir þeim, þeim mun betur líður þér þegar þú loksins bætir þig og mér finnst hvort tveggja skemmtilegt,“ heldur hann áfram og á þar við klassísku aðferðina, „á kjötinu“ sem kallað er, og hins vegar keppni í hjálparbúnaði. Tekur hann fram að heimsmetið í bekkpressu með búnaði í -59 kg flokki sé 240 kg sem er rúmlega fjórföld líkamsþyngd þess sem á bekknum lá en það er einmitt Japaninn öflugi Hamaguchi sem Jón Sigurður mætir í dag. Blogga um frétt Mest lesið Í gær Í vikunni Klopp að fá nýtt starf? Chelsea stráði salti í sár Arsenal Greindist aftur 13 ára - safnað í framtíðarsjóð Naumt tap Íslands í Japan Efnilegur 16 ára drengur látinn Kolbeinn enn ósigraður eftir rothögg Hræðist ofbeldisfullan son sinn Slot ofarlega á lista hjá stórveldinu DeAndre Kane handtekinn í Bandaríkjunum Gamla ljósmyndin: Fyrsti leikur Stjörnunnar í efstu deild París SG Evrópumeistari eftir vítakeppni Kærastan sónaði út úr leiðindum í Svíþjóð Slot rekinn frá Liverpool Nú er það svart fyrir Frey DeAndre Kane handtekinn í Bandaríkjunum Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu Chelsea stráði salti í sár Arsenal Aron ræddi ekki bara við FH Langlíklegastur til að taka við Liverpool Óvænt niður í B-deildina Hafþór Júlíus notað ólögleg lyf frá 19 ára aldri Látinn aðeins 21 árs Liverpool að reka Slot eftir allt? París SG Evrópumeistari eftir vítakeppni Fjallið sigraði Elginn á Steraleikunum Dagur Sigurðsson fær háa sekt Fjölskyldan glímt við mörg áföll Eiður Smári í nýtt starf í sumar HSÍ aflýsir vegna dræmrar miðasölu Sendir frá sér yfirlýsingu Fleira áhugavert Eldri hjón unnu 336 milljónir Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Fimm í gæsluvarðhald vegna fíkniefnamáls Mest lesið Í gær Í vikunni Klopp að fá nýtt starf? Chelsea stráði salti í sár Arsenal Greindist aftur 13 ára - safnað í framtíðarsjóð Naumt tap Íslands í Japan Efnilegur 16 ára drengur látinn Kolbeinn enn ósigraður eftir rothögg Hræðist ofbeldisfullan son sinn Slot ofarlega á lista hjá stórveldinu DeAndre Kane handtekinn í Bandaríkjunum Gamla ljósmyndin: Fyrsti leikur Stjörnunnar í efstu deild París SG Evrópumeistari eftir vítakeppni Kærastan sónaði út úr leiðindum í Svíþjóð Slot rekinn frá Liverpool Nú er það svart fyrir Frey DeAndre Kane handtekinn í Bandaríkjunum Liverpool sendir frá sér yfirlýsingu Chelsea stráði salti í sár Arsenal Aron ræddi ekki bara við FH Langlíklegastur til að taka við Liverpool Óvænt niður í B-deildina Hafþór Júlíus notað ólögleg lyf frá 19 ára aldri Látinn aðeins 21 árs Liverpool að reka Slot eftir allt? París SG Evrópumeistari eftir vítakeppni Fjallið sigraði Elginn á Steraleikunum Dagur Sigurðsson fær háa sekt Fjölskyldan glímt við mörg áföll Eiður Smári í nýtt starf í sumar HSÍ aflýsir vegna dræmrar miðasölu Sendir frá sér yfirlýsingu Fleira áhugavert Eldri hjón unnu 336 milljónir Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Segir tryggingu í höfn: „Ég er í engum flýti“ Spyr hvort staða Landsbókasafns sæmi þjóðinni

Share this article