Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hvernig er hægt að vera Íslandsmeistari í fimleikum, bekkpressu og í sirkus?

Read Full Article →

Jón Sigurður Gunnarsson er farsæll fimleikamaður og er til að mynda áttfaldur Íslandsmeistari á hringjum. En hann lætur það ekki nægja því hann á einnig Íslandsmet í bekkpressu og hefur verið að keppa erlendis í greininni. Svo þegar hann á lausa stund leikur hann listir sínar í sirkus. Jón Sigurður, eða Nonni eins og hann er gjarnan kallaður, varð Íslandsmeistari á hringjum fyrst árið 2014 og hefur unnið titilinn alls átta sinnum. Þá varð hann Íslandsmeistari í fjölþraut árið 2016. Nonni hefur keppt í bekkpressu frá árinu 2013 og hefur lagt enn meira kapp í greinina að undanförnu. Hann á nú Íslandsmetið í 59 kílóa flokki – 125 kíló í klassískri bekkpressu og 157 og hálft kíló með búnaði. Innslagið um Nonna má sjá hér að neðan. Jón Sigurður Gunnarsson er áttfaldur Íslandsmeistari í fimleikum og hefur nú eignað sér Íslandsmet í bekkpressu. Þess á milli sýnir hann í sirkús. Hvernig virkar þetta allt saman? Bekkpressan heldur honum sterkum Hann segir fimleika og lyftingar vinna vel saman en þrátt fyrir það séu ekki margir sem blandi því saman, í það minnsta á afreksstigi. Vitaskuld fer mikill tími í það að sinna tveimur afreksíþróttum en í hvorum salnum dvelur Nonni lengur? Engir fimleikamenn á HM - en allt morandi í Japönum Nonni segir að það sé ekki mikið um fimleikamenn á HM í bekkpressu. „Ég var núna á HM um daginn og það voru engir fimleikamenn þar, sko. Það var allt morandi í Japönum reyndar. Þeir eiginlega áttu mótið. Það sama í fimleikunum, þeir eru ógeðslega sterkir í þessu, báðum greinum.“ Er meira inni í fimleikasalnum Vitaskuld fer mikill tími í að sinna tveimur afreksíþróttum en í hvorum salnum dvelur hann lengur? „Ég er meira inni í fimleikasal. Það fer aðeins meiri æfingartími í fimleika á meðan kraftlyftingar eru meiri þolinmæðisvinna með hvíld. Hvíldin er mjög mikilvæg. Í hlutastarfi í sirkusnum Það fara eflaust margir klukkutímar í hverri viku í íþróttirnar tvær, en hvernig finnur hann tíma fyrir sirkusinn? „Já, þetta er svona hlutastarf. Ég er að setja upp sýningar og sýna í sýningum. Ég var núna síðustu tvær helgar að gera akróbatík, félagafimleika eins og við köllum það. Það var með félaga mínum Sindra, þar sem við erum að fara í heljarstökk og ég er að standa á höndum á honum og svona.“ Sér fyrir endann á fimleikunum Nonni er 34 ára gamall og því fer að styttast í annan endann á fimleikaferlinum – hann segir það gott að hafa aðra íþrótt sem hann getur áfram stundað eftir fimleikana „Núna er ég svolítið á krossgötum, sko, af því að fimleikaferillinn fer að enda. Þá er bara geggjað að bekkpressan og kraftlyftingarnar taki svona vel á móti mér. Það er spennandi. Það er nóg af markmiðum, mótum og medalíum sem hægt er að vinna þar.“

Share this article