Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Áslaug Arna flytur heim, tekur sæti á þingi og býður í veislu

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 3 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Alþingi Áslaug Arna flytur heim, tekur sæti á þingi og býður í veislu Alexander Kristjánsson Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, er flutt aftur til landsins og tekur senn á ný sæti á þingi. Áslaug hefur síðasta vetur verið í leyfi frá þingmennsku og stundað nám í New York en hún útskrifaðist á dögunum. Í færslu á samfélagsmiðlum býður Áslaug stuðningsmönnum til fögnuðar í anddyri Parliament-hótelsins við Austurvöll á fimmtudag kl. 17 en tekur sérstaklega fram að það sé ekki útskriftarveisla. Facebook / Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir Fyrir 22 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Mik­il­vægt að efla for­varn­ir gegn sjálfs­víg­um í fang­els­um Maður fannst látinn í fangaklefa á Hólmsheiði í morgun eftir að hafa svipt sig lífi. Formaður Afstöðu félags fanga segir að efla þurfi forvarnir með bættri sálfræðiþjónustu í fangelsum og fjölgun fagfólks. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Reykjavíkurborg Hefði haldið að það væru brýnni verk­efni í borg­inni en fána­regl­ur Borgarfulltrúi Vinstrisins segir sérstakt að fánareglur séu eitt af fyrstu málum á dagskrá hjá nýjum meirihluta í borginni. Tillaga meirihlutans um að fella núgildandi fánareglur úr gildi geri það óskýrt hvenær og hvaða fánum megi flagga. Fyrir 1 tímaÍÞRÓTTIR Fótbolti Naumt tap Ís­lands í Tókýó Íslenska karlalandsliðið í fótbolta tapaði naumlega fyrir Japan, 1-0 í vináttulandsleik í Tókýó í dag. Sigurmark Japana kom á 87. mínútu. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dýravelferð Vilja hertar reglur um frost­lög sem not­að­ur hefur verið til að drepa dýr Formaður Dýraverndarsambands Íslands biður stjórnvöld um að takmarka innflutning á frostlegi og banna þá sem innihalda ákveðin eiturefni. Lögurinn sé notaður til að eitra fyrir dýrum og sé stórhættulegur. Merkja þurfi umbúðir betur og auka meðvitund Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Suðurland „Staða ferða­þjón­ust­unn­ar er góð í sumar“ segir hót­el­stjóri Hótels Rangár Staða ferðaþjónustunnar er góð í sumar segir Friðrik Pálsson á Hótel Rangá. Hann setur hins vegar spurningarmerki við haustið. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samgöngur Sex ferðum Ic­elandair aflýst – Enn langt í land í kjara­deilu Ekki tókst að manna áhafnir fyrir sex flugferðir Icelandair í dag og var flugi til og frá London, Glasgow og Róm því aflýst. Enn er langt í land í kjaradeilu Icelandair og Félags íslenskra atvinnuflugmanna. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Ferðaþjónusta Hver kúnni var sigur, en nú þarf að vísa fólki frá Ragnhildur Ágústsdóttir stofnaði fyrirtækið Lava Show ásamt eiginmanni sínum með ekkert nema bjartsýnina að vopni. Þau áttu þá tvo unga syni sem báðir höfðu verið greindir með einhverfu og þriðji drengurinn var á leiðinni. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Grunur um sjálfs­víg á Hólms­heiði í nótt Maður lést í fangelsinu á Hólmsheiði í nótt. Samkvæmt heimildum fréttastofu sat hann inni fyrir manndráp og er grunur um að hann hafi framið sjálfsvíg. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lýðheilsa Reyk­ing­ar á und­an­haldi en tób­aks­notk­un mikil meðal evr­ópskra ung­menna Reyklausi dagurinn er í dag. Sígarettureykingar fara minnkandi víða um heim en Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin hefur miklar áhyggjur af auknum vinsældum nikótínpúða og rafrettna meðal ungs fólks. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Leigu­bíla­stöð­in flutt í Jóla­garð­inn - en verður ekki jóla­hús Gamla leigubílastöð BSO við Strandgötu á Akureyri verður flutt í Jólagarðinn í Eyjafjarðarsveit. Eigandi garðsins segir þau þurfa að hafa hraðar hendur, enda á húsið að vera farið um miðjan júní. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Læknar án landa­mæra ugg­andi yfir út­breiðslu ebóla Læknar án landamæra eru uggandi yfir útbreiðslu ebóla í nokkrum ríkjum Mið-Afríku. Aldrei hafa jafnmörg tilfelli verið skráð svo skömmu eftir að faraldri var lýst yfir. Heilbrigðisyfirvöld í Kongó ráði ekki við að hefta útbreiðsluna. Fyrir 6 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Fannst fyndið að gera pól­it­ísk­ar fer­skeytl­ur „Mér leið eins og ég væri mjög mikið á grensunni að gera pólitískar ferskeytlur og reyna að vera fyndin,“ segir Lóa Hlín Hjálmtýsdóttir sem nýlega gaf út myndasögusafnritið FNÆS. Í því eru nær allar myndasögur sem hún hefur birt frá árinu 2021. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Hiti að 15 stigum í dag Hugrún Hannesdóttir Diego Hæð við Jan Mayen og kraftlítið lægðasvæði suður í hafi valda austlægri eða breytilegri átt á landinu í dag. Víða má búast við golu eða kalda og stöku skúrum á víð og dreif. Hiti verður 7 til 15 stig en svalara á Suðaustur- og Austurlandi. Þar má búast við súld eða dálítilli rigningu. Á morgun verður hæg breytileg átt og á Austurlandi verður áfram svöl þokusúld. Líkur eru á stöku skúrum í öðrum landshlutum og sæmilega mildu veðri en þó geta þokubakkar látið á sér kræla við ströndina. RÚV / Ragnar Visage Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Jarð­skjálfti af stærð­inni 2,8 skammt frá Hell­is­heið­ar­virkj­un Markús Þ. Þórhallsson Jarðskjálfti af stærðinni 2,8 varð laust fyrir klukkan sjö í morgun, um þrjá kílómetra austan við Húsmúla, skammt frá Hellisheiðarvirkjun. Skjálftinn átti upptök um 3 kílómetra austan Húsmúla skammt frá Hellisheiðarvirkjun. Carbfix / Árni Sæberg Á annan tug minni eftirskjálfta hafa mælst í kjölfarið að sögn Ingibjargar Andreu Bergþórsdóttur, náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Þarna hafa mælst um fimmtíu mjög smáir skjálftar síðustu vikuna, sem Andrea segir varla hægt að tala um sem hrinu. Hún segir langlíklegast að skjálftarnir tengist jarðskorpuhreyfingum. Ekki hafa borist tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist í byggð. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Ellefu bak við lás og slá eftir nótt­ina fyrir lík­ams­árás og marg­vís­leg lög­brot önnur Markús Þ. Þórhallsson Ellefu manns var stungið bak við lás og slá í gærkvöld og nótt. Þ / RÚV Tveir voru handteknir fyrir líkamsárás í miðborg Reykjavíkur í gærkvöld eða nótt að því er segir í morgunskeyti lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu án þess að tíundað sé frekar hvað hafi átt sér stað. Þar voru jafnframt tveir handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt, sá þriðji fyrir brot á áfengislögum og stjórnandi rafhlaupahjóls var tekinn eftir að hafa ekið því á bíl. Ökumaður var handtekinn fyrir að keyra ölvaður á byggingu í Hafnarfirði og auk hans voru nokkrir handteknir fyrir ölvunarakstur víðs vegar um borgina. Ellefu gistu fangageymslur í morgun. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Trump segir Írana hafa sam­þykkt að þróa ekki kjarna­vopn Bandaríkjaforseti staðhæfir að íranskir ráðamenn hafi lofað að koma sér ekki upp kjarnavopnum. Fréttir herma að forsetinn hafi sent mjög ákveðið orðaðar tillögur að friðarsamkomulagi án þess að innihald þeirra sé vitað. Hann ýjar áfram að árásum. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Hátt settur músa­veið­ari sem finnst best að leggja sig Hann er orðinn köttur sex forsætisráðherra og hitt marga af fyrirmennum heims. Hann lætur sér þó alla jafna fátt um finnast og finnst best að leggja sig. Þetta er kötturinn Larry sem býr í Downingstræti 10 í Lundúnum. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Perú Nokkur hund­ruð and­æfðu for­seta­fram­boði Keiko Fuj­imori Nokkur hundruð mótmæltu forsetaframboði hægrikonunnar Keiko Fujimori í höfuðborg Perú og nokkrum öðrum borgum um helgina. Mótmælendur óttast að hún muni stjórna með jafnharðri hendi og faðir hennar heitinn. Kosningarnar verða 7. júní. Fyrir 9 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Ísra­els­her réðst á sveit­ir Hez­boll­ah handan Litani-fljóts­ins Ísraelskir hermenn, stórskotalið og skriðdrekasveitir hafa ruðst enn lengra en áður inn í Líbanon og hafa farið yfir Litani-fljótið. Þar gerði flugherinn stórfelldar loftárásir á sveitir Hezbollah. Herinn kveðst reiðubúinn að ráðast enn lengra inn. 31. maí 2026 kl. 4:30ERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Hús nötr­uðu og fólki var brugð­ið þegar víga­hnött­ur sprakk í 64 kíló­metra hæð yfir landi Hávær sprenging glumdi í eyrum íbúa New Hampshire og Massachusetts í Bandaríkjunum að næturlagi af völdum vígahnattar sem tættist í sundur í nokkurra tuga kílómetra hæð. Krafturinn var á við að 300 tonn af TNT hefðu sprungið. 31. maí 2026 kl. 3:37ÍÞRÓTTIR Körfubolti San Ant­onio Spurs kæfðu vonir Okla­homa um að verja tit­il­inn og mæta New York Knicks í úr­slit­um NBA Markús Þ. Þórhallsson San Antonio Spurs mæta New York Knicks í úrslitum bandarísku NBA-körfuboltadeildarinnar eftir 111-103 sigur á Oklahoma City Thunder í vesturdeildinni í nótt. Shai Gilgeous-Alexander varnarmaður Oklahom í glímu við þá Victor Wembanyama og Julian Champagnie, liðsmenn Spurs. EPA / GERALD LEONG Þar með er ljóst að Oklahoma City ver ekki titilinn sem liðið tryggði sér í fyrra. Sjö leiki þurfti til að skera úr um úrslitin og Spurs leiddu nánast allan tímann í nótt. Franski varnarmaðurinn Victor Wembanyama skoraði 22 stig og átti sjö stoðsendingar og Julian Champagnie skoraði 20, þar á meðal sex þriggja stiga körfur. New York Knicks komst í úrslitin eftir að hafa burstað Cleveland Cavaliers 4 - 0 í einvíginu um að komast þangað. Fyrsti leikur í úrslitum NBA verður á miðvikudaginn. 31. maí 2026 kl. 3:25ERLENDAR FRÉTTIR Venesúela Gonza­lez krefst for­seta­kosn­inga svo fljótt sem verða má og lýsir stuðn­ingi við Mach­ado Efna skal til forsetakosninga í Venesúela hið fyrsta segir frambjóðandi stjórnarandstöðunnar, sem Bandaríkin og fleiri ríki hafa lýst raunverulegan sigurvegara kosninganna árið 2024. Hann lýsir yfir stuðningi við leiðtoga stjórnarandstöðunnar. 31. maí 2026 kl. 2:30ERLENDAR FRÉTTIR Danmörk Herinn talinn þurfa 180 þúsund manna vara­lið komi til styrj­ald­ar Komi til styrjaldarátaka þarf danski herinn að geta kallað til 180 þúsund varaliðsmenn til varnar landinu og berjast við hlið hermanna Atlantshafsbandalagsins. Leyniskjöl sýna að til stendur að auka varnir í átt því sem var á tímum kalda stríðsins. 31. maí 2026 kl. 1:37ERLENDAR FRÉTTIR

Share this article