Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Áslaug Arna hættir á þingi

Read Full Article →

Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrverandi dómsmálaráðherra og háskóla–, iðnaðar– og nýsköpunarráðherra, hefur ákveðið að láta af þingmennsku. Hún greindi frá þessu í ræðu á Alþingi í morgun. Áslaug Arna hefur gegnt þingmennsku frá árinu 2016 eða frá því að hún var 25 ára gömul. Þar af var hún ráðherra á árunum 2019-2024. Hún hefur undanfarið ár stundað nám við Columbia-háskóla og útskrifaðist þaðan á dögunum. „Ég hef gefið stjórnmálunum öll mín fullorðinsár,“ sagði Áslaug Arna. „Í dag verða því kaflaskil í mínu lífi. Ég hef ákveðið að láta af þingmennsku. Ég geri það með þakklæti í hjarta og trú á framtíðina. Ég kveð Alþingi, en ég kveð ekki hugsjónirnar. Ég kveð þingmennsku, en ekki viljann til að leggja mitt af mörkum.“ Hún rifjaði upp ummæli sín í viðtali frá árinu 2015 þar sem hún talaði um að stjórnmálin þyrftu að vera opnari fyrir ungu fólki og nýjum hugmyndum. „Ég sagði þá, orðrétt: „Alþingi ætti að vera eftirsóknaverður staður til að starfa á í nokkur ár, en síðan á maður að geta farið annað. Við eigum að hætta að horfa á stjórnmál sem ævistarf.“ Ári síðar var ég kjörin á þing. Og nú eru liðin tíu ár.“ Áslaug Arna er menntaður lögfræðingur en hún lauk MA-prófi í lögfræði við Háskóla Íslands árið 2017.

Share this article