Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Semja um lægra verð fyrir Lýsi og selja í Polar Sea­food

Read Full Article →

Útgerðarfélagið Brim tilkynnti í kvöld um að stjórn félagsins hefði samþykkt kaup á öllu hlutafé í Lýsi fyrir 20 milljarða króna. Það er nokkuð lægra en upphaflegur kaupsamningur gerði ráð fyrir. Samhliða tilkynnti Brim um sölu á 50% hlut sínum í danska félaginu Polar Seafood Denmark A/S og 43% hlut sínum í útgerðarfélaginu Melnesi á Rifi á Snæfellsnesi. Brim tilkynnti í september 2025 um að félagið hefði fengið samþykkt kauptilboð í allt hlutafé Lýsi fyrir 30 milljarða króna. Tekið var fram á þeim tíma frá myndi dragast vaxtaberandi skuldir upp á 5,3 milljarða króna. Sjá einnig Viðskiptin kláruð á gamla mátann Samkomulagið felur í sér að heildarkaupverð greiðist til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brimi. Upphaflegt samkomulag miðaði við þáverandi markaðsverð hlutabréfaverð Brims, sem var 63 krónur á hlut. Uppfært samkomulag miðar við gengið 85 krónur á hvern hlut. Seljendur Lýsis munu eignast í kjölfar viðskiptanna 117.647.058 hluti, eða sem samsvarar um 6% af heildarhlutafé Brims nái félagið að nýta eigin bréf í þágu viðskiptanna. Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, er stærsti hluthafi Lýsis með 41% hlut samkvæmt fyrirtækjaskrá Skattsins. Brim tilkynnti samhliða í kvöld um að það hefði ákveðið að bjóða hluthöfum sínum kaup á hlutabréfum í útgerðarfélaginu fyrir 70 milljónir króna að nafnverði á genginu 88 krónur á hvern hlut sem jafngildir dagslokagengi Brims á föstudaginn. Brim býðst þannig til að kaupa eigin bréf fyrir allt að 6,2 milljarða króna. Selja í Polar Seafood fyrir tæpa 18 milljarða Brim tilkynnti í kvöld um sölu á 50% hlut sínum í danska félaginu Polar Seafood Denmark A/S (PSD). Kaupandinn er grænlenska félagið Polar Seafood Greenland A/S sem er meðeigandi í félaginu. Andivirði sölunnar er 925 milljónir danskra króna, eða um 17,8 milljarðar íslenskra króna. Brim fjárfesti í félaginu í október 2022 og var kaupverðið 625 milljónir danskra króna. Sjá einnig Brim fjár­festir í Polar Sea­food fyrir 12 milljarða Polar Seafood Denmark A/S er sölufyrirtæki, vinnsluaðili og útflytjandi sjávarafurða úr Norður-Atlantshafi. Félögin tvö munu halda áfram góðu samstarfi eins og verið hefur undanfarin ár. Samkomulagið er gert með fyrirvara um fjármögnun og samþykki opinberra eftirlitsaðila. Selja 43% í Melnesi til KG Fiskverkunar Þá hefur Brim hefur selt 43% hlut sinn í útgerðarfélaginu Melnesi á Rifi á Snæfellsnesi fyrir 1,8 milljarða króna. Kaupandi er KG Fiskverkun ehf. á Rifi, fimmti stærsti hluhtafi Brims með 4% hlut, og mun greiða með hlutafé í Brimi. KG Fiskverkun greiðir 20,7 milljón hluta í Brimi að nafnvirði og miðast viðskiptin við gengið 88 kr. á hlut sem var sölu gengi við lok markaða síðastliðinn föstudag. KG Fiskverkun átti fyrir viðskiptin 78 milljónir hluta. KG Fiskverkun er í 90% eigu bræðranna Daða og Fannars Hjálmarssona.

Share this article