Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Brim kaupir Lýsi á lægra verði

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 1.6.2026 | 0:01 Brim kaupir Lýsi á lægra verði Stjórn Brims hf. hefur samþykkt að kaupa Lýsi á 20 milljarða króna, en ekki 30 milljarða eins og áður hafði verið samið um. Guðmundur Kristjánsson, forstjóri Brims, og Katrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis. Samsett mynd Setja bókamerki Stjórn Brims hf. hefur samþykkt kaup á öllum hlutabréfum í Lýsi hf. fyrir 20 milljarða króna. Er það 10 milljörðum krónum lægra en upphaflega var samið um. Tilkynnt var um samþykki við kauptilboði Brims þann 23. september 2025 með fyrirvara um samþykki stjórna félaganna, hluthafafundar kaupanda og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Brim hf. til Kauphallarinnar í kvöld. Segir þar að endursamið hafi verið um verð og greiðslukjör í viðskiptunum sem tekur m.a. tillit til vaxtaberandi skulda. „Heildarkaupverð greiðist til helminga með reiðufé og til helminga með hlutabréfum í Brim og er miðað við gengið 85 kr. á hvern hlut í félaginu þannig að seljendur eignast í kjölfar viðskiptanna 117.647.058 hluti sem samsvarar um 6% af heildarhlutafé Brims nái félagið að nýta eigin bréf í þágu viðskiptanna. Kaupverðið verður allt greitt að fullu þegar viðskiptin verða frágengin að fengnu samþykki opinberra aðila,“ segir í tilkynningunni. Frétt af mbl.is Brim kaupir Lýsi hf. fyrir 30 milljarða Selja hlut sinn í Melnesi og Polar Seafood Í öðrum tilkynningum til Kauphallarinnar í kvöld, en þær eru alls fjórar talsins frá Brim, segir að Brim hf. hafi selt 43% hlut sinn í útgerðarfélaginu Melnesi á Rifi á Snæfellsnesi. Kaupandi er KG Fiskverkun ehf. á Rifi. Söluverð er 1,8 milljaður króna og greiðir kaupandi með hlutafé í Brimi hf. en félagið hefur verið í röð stærstu hluthafa í félaginu. KG Fiskverkun greiðir 20,7 milljónir hluta í Brimi að nafnvirði og miðast viðskiptin við gengið 88 kr. á hlut sem var sölugengi við lok markaða síðastliðinn föstudag. Þá hefur Brim gengið frá samkomulagi um sölu á 50% hlut sínum í danska félaginu Polar Seafood Denmark A/S (PSD), en S-13 Holding ApS, dótturfélag Brims, hefur haldið á hlut Brims í PSD í Danmörku. Kaupandinn er grænlenska félagið Polar Seafood Greenland A/S sem er meðeigandi í félaginu. Samkomulagið er gert með fyrirvara um fjármögnun og samþykki opinberra eftirlitsaðila. Andvirði sölunnar er 925 milljónir danskra króna. Brim fjárfesti í félaginu í október 2022 og var kaupverðið 625 milljónir danskra króna. Bjóða hluthöfum kaup á hlutabréfum Síðast en ekki síst býður Brim hluthöfum kaup á hlutabréfum að nafnvirði 70 milljónir króna á genginu 88 kr. fyrir hvern hlut. Arctica Finance hf. hefur umsjón með viðskiptum. Aðalfundur félagsins fyrr á þessu ári veitti stjórn þess heimild til að kaupa eigin hluti í félaginu. Heimildin og takmarkast við að samanlögð kaup fari ekki yfir 10% af heildarhlutafé félagsins á hverjum tíma. Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Er Donald Trump að reka Ísland inn í ESB? Sigurður Már Jónsson Eignatengsl í sjávarútvegi, enn og aftur! Fleira áhugavert Vill selja Landsbankann vegna samgöngusáttmálans Einn fluttur á slysadeild eftir umferðaslys Segir deiluna „mjög erfiða“ Segja stöðuna betri: „Skiljanlega er fólki brugðið“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Brim kaupir Lýsi á lægra verði Finnbjörn: Enginn að taka á þessu með okkur Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Sómi í nýjar hendur Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Skoða sameiningu tveggja sjóða Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Segja gagnaver og einkaneyslu skýra hagvöxt Sómi í nýjar hendur Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Segja gagnaver og einkaneyslu skýra hagvöxt Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Samkomulag í höfn og verkfalli aflýst Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Óttast að atvinnulífið sé úr jafnvægi Alvarleg staða á íbúðamarkaði Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Alvarleg staða á íbúðamarkaði Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Sómi í nýjar hendur Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Lykilstjórnendur kaupa meirihluta í Air Atlanta „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum Pistlar » Sigurður Már Jónsson Er Donald Trump að reka Ísland inn í ESB? Sigurður Már Jónsson Eignatengsl í sjávarútvegi, enn og aftur! Fleira áhugavert Líkur á að kjarasamningar bresti Menn „passlega ánægðir og passlega óánægðir“ Hér um bil dáinn í El Grillo Leggja línurnar um lágmarksbirtu í nýbyggingum Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Brim kaupir Lýsi á lægra verði Finnbjörn: Enginn að taka á þessu með okkur Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Sómi í nýjar hendur Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Skoða sameiningu tveggja sjóða Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Segja gagnaver og einkaneyslu skýra hagvöxt Sómi í nýjar hendur Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Segja gagnaver og einkaneyslu skýra hagvöxt Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Samkomulag í höfn og verkfalli aflýst Margt jákvætt í nýjum verðbólgutölum Óttast að atvinnulífið sé úr jafnvægi Alvarleg staða á íbúðamarkaði Helga hættir sem framkvæmdastjóri Bláa lónsins Alvarleg staða á íbúðamarkaði Klíníkin bætir við sig sérhæfðri starfsemi Fjölda sagt upp hjá Rapyd: Nú rekið af gervigreind Bendir á fleiri leiðir en að hækka laun Vilja reisa nýtt hótel og leita að fjárfestum Sómi í nýjar hendur Hlutabréf Oculis féllu eftir að prófanir skiluðu ekki árangri Lykilstjórnendur kaupa meirihluta í Air Atlanta „Fjórða vaktin“ íþyngjandi fyrirtækjum

Share this article