Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Brim í sex milljarða endur­kaupum fyrir Lýsis­við­skiptin

Read Full Article →

Brim hefur samþykkt til­boð frá hlut­höfum um kaup á eigin bréfum fyrir rúma sex milljarða króna. Þetta kemur fram í kaup­hallar­til­kynningu Brims. Félaginu bárust samþykkt til­boð frá hlut­höfum fyrir sam­tals 69 milljónir hluta að nafn­virði. Kaup­verðið var 88 krónur á hlut og nemur heildar­kaup­verð bréfanna 6,1 milljarði króna. Upp­gjör endur­kaupanna fer fram mið­viku­daginn 3. júní. Endur­kaupin eru hluti af stærri endur­skipu­lagningu á efna­hag og eigna­safni Brims í kjölfar kaupa félagsins á Lýsi. Brim til­kynnti nýverið að félagið hefði náð samkomulagi um kaup á öllu hluta­fé í Lýsi fyrir 20 milljarða króna. Sjá einnig Brim í sex milljarða endur­kaupum fyrir Lýsis­við­skiptin Það er tölu­vert lægra verð en upp­haf­lega var miðað við þegar Brim til­kynnti í septem­ber í fyrra að félagið hefði fengið samþykkt kaup­til­boð í allt hluta­fé Lýsis fyrir 30 milljarða króna, að frá­dregnum vaxta­berandi skuldum upp á 5,3 milljarða króna. Í upp­færðu sam­komu­lagi verður kaup­verðið greitt að hálfu með reiðufé og að hálfu með hluta­bréfum í Brimi. Upp­haf­lega miðaði sam­komu­lagið við markaðsverð Brims á þeim tíma, eða 63 krónur á hlut. Nú er miðað við 85 krónur á hlut. Þessi breyting skiptir veru­legu máli fyrir fjölda þeirra hluta sem Brim þarf að af­henda selj­endum Lýsis. Þar sem hluta­bréfa­verð Brims er nú hærra en þegar upp­haf­lega var samið þarf færri hluti til að greiða þann hluta kaup­verðsins sem greiddur er með bréfum. Sam­hliða hefur heildar­verð Lýsis verið lækkað um­tals­vert. Selj­endur Lýsis munu eignast 117,6 milljónir hluta í Brimi, eða sem nemur um 6% af heildar­hluta­fé félagsins, nái Brim að nýta eigin bréf til að efna þann hluta við­skiptanna. Katrín Péturs­dóttir, for­stjóri Lýsis, er stærsti hlut­hafi Lýsis með 41% hlut sam­kvæmt fyrir­tækja­skrá Skattsins. Brim átti fyrir endur­kaupin 30,5 milljónir eigin hluta, sem sam­svarar 1,56% af heildar­hluta­fé félagsins. Við það bætast 20,8 milljónir hluta við upp­gjör á sölu Brims á hlut sínum í Mel­nesi og síðan 69 milljónir hluta sam­kvæmt endur­kaupunum. Að þeim við­skiptum loknum mun Brim eiga 120,3 milljónir eigin hluta, eða sem sam­svarar 6,15% af heildar­hluta­fé félagsins. Sam­hliða kaupunum á Lýsi hefur Brim losað um fjár­muni með sölu eigna. Félagið hefur selt 50% hlut sinn í danska félaginu Polar Sea­food Den­mark til með­eig­anda síns, Polar Sea­food Green­land. Sölu­verðið er 925 milljónir danskra króna, eða um 17,8 milljarðar ís­lenskra króna. Brim keypti hlutinn í Polar Sea­food Den­mark í október 2022 fyrir 625 milljónir danskra króna. Félagið er sölu­fyrir­tæki, vinnslu­aðili og út­flytjandi sjávar­afurða úr Norður-At­lants­hafi. Brim hefur sagt að félögin muni áfram halda góðu sam­starfi þrátt fyrir söluna. Þá hefur Brim einnig selt 43% hlut sinn í út­gerðarfélaginu Mel­nesi á Rifi á Snæ­fells­nesi fyrir 1,8 milljarða króna. Kaupandinn er KG Fisk­verkun ehf. á Rifi, sem er einn stærsti hlut­hafi Brims. Kaup­verðið er greitt með hluta­bréfum í Brimi, alls 20,8 milljónum hluta að nafn­virði, og miðast við­skiptin við gengið 88 krónur á hlut. Við­skiptin sýna að Brim er að endur­raða eigna­safni sínu og fjár­mögnun í tengslum við kaup félagsins á Lýsi. Annars vegar hefur kaup­verð Lýsis verið lækkað veru­lega frá upp­haf­legum áformum. Hins vegar selur Brim eignar­hluti í Polar Sea­food Den­mark og Mel­nesi, en kaupir jafn­framt eigin bréf sem hægt er að nýta við upp­gjör við selj­endur Lýsis. Endur­kaupin draga þannig úr þörf Brims fyrir út­gáfu nýrra hluta eða af­hendingu hluta sem félagið ætti ekki til. Þau milda jafn­framt útþynningu núverandi hlut­hafa vegna þess hluta kaup­verðs Lýsis sem greiddur verður með hluta­bréfum. Í ein­földu máli er Brim að fjár­magna og undir­búa upp­gjör Lýsis­við­skiptanna með því að selja eignir, kaupa eigin bréf og nýta hærra hluta­bréfa­verð en lagt var til grund­vallar í upp­haf­legu sam­komu­lagi. Lægra kaup­verð fyrir Lýsi og sala á öðrum eignum gera félaginu kleift að ljúka við­skiptunum á hagstæðari for­sendum en upp­haf­lega var út­lit fyrir.

Share this article