Security News

Cybersecurity news aggregator

MEDIUM Attacks RÚV

Leiðtogar fordæma aðgangshörku Ísraela í Suður-Líbanon

  • What: Israeli military operations in southern Lebanon
  • Impact: Civilian casualties and international diplomatic reactions
Read Full Article →

Leiðtogar Bretlands, Frakklands og Þýskalands hvetja Ísraelsmenn til að láta af hernaðaraðgerðum í Líbanon. Þrátt fyrir að vopnahlé sé í gildi hefur Ísraelsher aukið enn á árásarhörku gagnvart Hezbollah-hreyfingunni í suðurhluta landsins. Fjöldi fólks hefur verið drepinn og særst í atlögum hersins sem sölsaði undir sig miðaldakastalann Beufort í Litanidal í gær. Emmanuel Macron Frakklandsforseti segir ekkert réttlæta þá miklu stigmögnun sem orðið hefur í Suður-Líbanon og þýski utanríkisráðherrann Johann Wadepuhl tekur í sama streng. Breski utanríkisráðherrann Yvette Cooper segir að Ísraelar verði að hætta drápum á almennum borgurum og eyðileggingu innviða sem dragi verulega úr möguleikum á friðarsamkomulagi. Hezbollah verði að láta af árásum á Ísrael og afvopnast auk þess sem stríðandi fylkingum beri að virða vopnahléð og setjast að samningaborði. Frakkar kröfðust þess að haldinn yrði skyndifundur í öryggisráði Sameinuðu þjóðanna eftir að ísraelskar hersveitir fóru yfir hið hernaðarlega mikilvæga Litanifljót og náðu yfirráðum yfir Beaufort-kastala eftir harða bardaga við liðsmenn Hezbollah.

Share this article