Security News

Cybersecurity news aggregator

HIGH Attacks RÚV

Ísraelsher eyðileggur göng Hezbollah

This article describes a physical security threat where Hezbollah constructed extensive underground tunnels (over 200 meters long and 25 meters deep) in Southern Lebanon to store weapons for attacks against Israel. The Israeli military neutralized this threat by destroying the tunnels with explosives. The article also notes that the action was coordinated with international parties as part of broader diplomatic efforts, but it does not provide any technical details relevant to IT systems, such as CVSS scores, software versions, or digital workarounds.
Read Full Article →

Ísraelski herinn hefur eyðilagt göng sem Hezbollah-samtökin höfðu grafið í Suður-Líbanon. Göngin voru eyðilögð með sprengingu. Samkvæmt sameiginlegri yfirlýsingu Benjamíns Netanyahus forsætisráðherra og Israel Katz varnarmálaráðherra voru göngin rúmlega 200 metra löng og náðu meira en 25 metra niður í jörðina. Þar fundust að sögn þeirra hundruð vopna sem áttu að nýtast til árása á Ísrael og ísraelska borgara. Fyrr í vikunni undirrituðu Ísrael og Líbanon þríhliða rammasamkomulag ásamt Bandaríkjunum í Washington. Samkomulaginu er ætlað að greiða fyrir friðarviðræðum milli ríkjanna. Ísraelsk stjórnvöld segjast hafa tilkynnt Bandaríkjunum og fulltrúa þeirra í Líbanon fyrirfram um sprenginguna. Blaðamaður AFP í borginni Týros í Líbanon sá reyk stíga upp frá svæðinu nærri þorpinu Majdal Zoun og greindi frá því að íbúar hefðu yfirgefið nærliggjandi bæi eftir fregnir um yfirvofandi sprengingu.

Share this article