Innlent | Morgunblaðið | 1.6.2026 | 6:00 Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Fyrir um áratug lásu nær allir stúdentar Njáls sögu sem hluta af námi sínu en í dag er staðan allt önnur. Ástæðurnar eru margþættar. mbl.is/Anton Brink Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Íslenska Staðan gjörbreytt á einum áratug Enginn mætti frá ríkisstjórninni Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Eins konar æði gripið Íslendinga Myndskeið: Ísland sendir Apple kveðju » Fleiri tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Funda um fyrirhugað símafrí Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka Víðir vill ekki tjá sig Til marks um metnaðar- og áhugaleysi » Fleiri tengdar fréttir Síðasta áratuginn hefur hlutfall nemenda sem lesa Brennu-Njáls sögu sem hluta af skyldunámi sínu til stúdentsprófs hríðfallið. Um helmingur framhaldsskóla hefur tekið söguna, sem löngum hefur verið talin höfuðrit íslensks bókmenntaarfs, af leslistum sínum, annaðhvort í heild eða að hluta. Frétt af mbl.is Staðan gjörbreytt á einum áratug Þetta eru niðurstöður könnunar sem Morgunblaðið framkvæmdi meðal íslenskra framhaldsskóla en 14 af 24 framhaldsskólum sem svöruðu fyrirspurn blaðsins hafa dregið úr lestri Íslendingasagna síðustu árin. Átta skólar hafa alfarið hætt að kenna Njálu og fjórir lesa nú aðeins hálfa söguna. Frétt af mbl.is Laxness hverfur úr skólum landsins Kennslan orðin að eins konar þýðingu Ástæðurnar virðast margþættar en almennur samhljómur er um að stytting framhaldsskólans úr fjórum árum í þrjú vegi þar þyngst. Við hana fækkaði kennslustundum í íslensku og hefur það bitnað á kennslu lengri bókmenntaverka. Þá segjast kennarar upplifa að geta nemenda til að glíma við Íslendingasögur fari minnkandi, að þeir skilji jafnvel ekki orðskýringarnar sem fylgja sögunum og að kennsla, til dæmis Njálu, hafi í auknum mæli þróast yfir í eins konar þýðingu á textanum fyrir nemendur sem skilja ekki söguna. Frétt af mbl.is Engin áhersla á íslenskuna í raun Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands, telur að um ákveðna uppgjöf sé að ræða. mbl.is/Hákon Ekki bara uppgjöf gagnvart Íslendingasögunum Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands, telur að um ákveðna uppgjöf sé að ræða og bendir á að orðaforðinn í Íslendingasögunum sé álíka flókinn og í skáldsögum frá miðri síðustu öld. Hann telur skáldsögur Halldórs Laxness til að mynda þyngri texta en Íslendingasögurnar sem hann telur á pari við verk rithöfunda á borð við Gunnar Gunnarsson og Svövu Jakobsdóttur. „Svo kennarar sem gefast upp á Íslendingasögunum eru í rauninni líka að gefast upp á þessum höfundum,“ segir Ármann. En hvaða þýðingu myndi það hafa fyrir Íslendinga ef við hættum að skilja og hættum að þekkja þennan menningararf sem Íslendingasögurnar eru? „Ég hef bæði kennt Íslendingasögur Íslendingum og útlendingum,“ segir hann. „Og einn daginn verður kannski bara eins að kenna Íslendingum þetta og útlendingum. En það er ekki góður dagur. Við höfum ákveðna nálægð, við skiljum ákveðna hluti en kannski kemur að því einhvern daginn að við skiljum þá ekkert betur en aðrir.“ Lestu umfjöllunina í heild sinni: Tengdar fréttir Íslenska Staðan gjörbreytt á einum áratug Enginn mætti frá ríkisstjórninni Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Eins konar æði gripið Íslendinga Myndskeið: Ísland sendir Apple kveðju » Fleiri tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Svarar gagnrýni kennara: „Niðurstaðan stendur“ Funda um fyrirhugað símafrí Kennari segir skóla án aðgreiningar ekki virka Víðir vill ekki tjá sig Til marks um metnaðar- og áhugaleysi » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Fjármagnar rannsóknir á almyrkva á Íslandi Sex fórust þegar ölvaður ökumaður ók inn í mannfjölda Hitinn allt að 16 stigum Staðan gjörbreytt á einum áratug Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Fimm í gæsluvarðhald vegna fíkniefnamáls Óræð niðurstaða um krónu og evru Einn fluttur á slysadeild eftir umferðaslys Mest lesið Í gær Í vikunni „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Skólabygging sett á söluskrá „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Ég náði árangri með einlægninni Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Gripnir skilríkislausir við umfangsmikinn matvælaþjófnað Skuldahengja yfir ríkjum heims Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Fjármagnar rannsóknir á almyrkva á Íslandi Sex fórust þegar ölvaður ökumaður ók inn í mannfjölda Hitinn allt að 16 stigum Staðan gjörbreytt á einum áratug Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Dróni lenti á kjarnorkuveri í Úkraínu Umferðarteppa í Kollafirði vegna framkvæmda Segir tryggingu í höfn: „Ég er í engum flýti“ Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Mest lesið Í gær Í vikunni „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Skólabygging sett á söluskrá „Svo dystópíulegt að það er næstum kómískt“ „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Ég náði árangri með einlægninni Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Gripnir skilríkislausir við umfangsmikinn matvælaþjófnað Skuldahengja yfir ríkjum heims Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað