Innlent | Morgunblaðið | 2.6.2026 | 11:20 „Þá er bara hægt að pakka saman og hætta þessu“ Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor á Árnastofnun. mbl.is/Sigurður Bogi Sævarsson Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Íslenska Gervigreindin eyðileggur fyrir lestri Njálu Orðskýringarnar orðnar óskiljanlegar Staðan gjörbreytt á einum áratug Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Enginn mætti frá ríkisstjórninni » Fleiri tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Krefur Ragnar svara um niðurskurðinn „Það eru ansi margar spurningar sem vakna“ Þriggja ára bóknámið ekki fyrir alla Orðskýringarnar orðnar óskiljanlegar Staðan gjörbreytt á einum áratug » Fleiri tengdar fréttir Ríkuleg bókmenntasaga þjóðarinnar sem nær aftur um aldir er undirstaða þess mannlífs og menningarlífs sem hér ríkir. Við megum ekki missa tengslin við sagnaarfinn því annars gætum við allt eins „pakkað saman og hætt þessu“. Þetta segir Gísli Sigurðsson, rannsóknarprófessor á menningarsviði Árnastofnunar. Hann og samstarfsmaður hans, rannsóknarprófessorinn Haukur Þorgeirsson, eru sammála um að búa þurfi betur að íslenskukunnáttu allt frá barnsaldri til þess að tryggja veg Íslendingasagnanna. Morgunblaðið greindi í gær frá því að meira en helmingur framhaldsskóla hafi dregið úr lestri Íslendingasagna síðasta áratuginn. Skólarnir hafa ýmist fækkað sögum sem eru lesnar, lesa aðeins hluta þeirra eða hafa skipt lengri verkum á borð við Njáls sögu eða Egils sögu Skallagrímssonar út fyrir styttri texta. Kennarar segja minnkandi lestrargetu og bókmenntaskilning spila veigamikla rullu í þessari þróun sem og stytting framhaldsskólans í þrjú ár. Einn kennari komst svo að orði að kennsla Íslendingasagna hefði á síðustu árum breyst í eins konar þýðingu kennara á sögunum fyrir nemendur sem skilja þær ekki. Frétt af mbl.is Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Frétt af mbl.is Staðan gjörbreytt á einum áratug Það frumlegasta í íslenskum listum Spurður hvort Íslendingasögurnar séu ef til vill barns síns tíma segir Gísli svo alls ekki vera. Fyrir það fyrsta missi klassískar bókmenntir aldrei erindi sitt og Íslendingasögurnar séu það frumlegasta sem gerst hefur í listum frá því að land byggðist. Hvaða þýðingu hefði það ef við myndum einfaldlega gefast upp á þessum bókum? „Já, þá er bara hægt að pakka saman og hætta þessu, held ég,“ segir Gísli. Hætta hverju? „Bara þessu mannlífi hér og menningarlífi og vera að reyna að búa eitthvað til hér sem hefur upphaf, miðju og endi. Það hvílir allt á þessum tengslum sem við höfum. Við erum svo fá að við í rauninni þurfum þessa tímavitund sem bókmenntirnar gefa okkur til þess að vera nógu stór til þess að geta staðið á eigin fótum.“ Frétt af mbl.is „Ég held við séum að missa stjórn á þessu“ Bókmenntirnar lykillinn að íslensku þjóðríki Eru það ekki einmitt bókmenntirnar sem hafa gert okkur kleift að standa á eigin fótum? „Bókmenntirnar voru lykillinn að því að fólk hafði rök í höndunum til þess að búa til þessar hugmyndir um þjóðerni og sjálfstætt þjóðríki hér á nítjándu og fyrri hluta 20. aldar,“ segir Gísli og bætir við að þær hafi mótað það hvernig við tengjumst og upplifum landið, bæði í gegnum goðafræðina og sögurnar. „Þetta eru bara eins og hver önnur heimsforréttindi sem að við getum ekki misst eða gloprað niður vegna þess að einhverjum dettur í hug að það sé allt í einu orðið erfitt að lesa þetta, ég hef ekki trú á því.“ Þarf ansi margar barna- og unglingabækur Gísli bætir þó við að vandamálið felist ekki aðeins í því hvaða bækur framhaldsskólar velja á leslista sína. „Þjálfunin í lestri hefur greinilega einhvers staðar farið úrskeiðis löngu áður en kemur í framhaldsskólann,“ segir hann. Þannig sé til lítils að láta framhaldsskólanemendur lesa til dæmis Brennu-Njáls sögu hafi þeir ekki þegar öðlast færni í því að lesa sér til gagns. „Það þarf að vera búið að lesa ansi margar barna- og unglingabækur og reyfara áður en það fer að renna vel í gegn.“ Frétt af mbl.is „Hef áhyggjur af mér sjálfri því ég les svo lítið“ Frétt af mbl.is Svarið kom á óvart: Allar bækurnar á ensku Haukur Þorgeirsson rannsóknarprófessor. Íslenskukunnáttan kjarninn Samstarfsmaður Gísla, rannsóknarprófessorinn Haukur Þorgeirsson, tekur í sama streng. „Heimur Njálu er víðfeðmur og gjöfull og ég óska þess sannarlega að sem flestir nemendur hafi af honum ánægjuleg kynni. En það er greinilega íslenskukunnáttan sem takmarkar okkur,“ segir hann. „Spurningin hlýtur að vera hvort við ætlum að gera það sem þarf til að hér vaxi úr grasi kynslóðir íslenskra nemenda sem hafa fullt vald á móðurmálinu. Til þess þarf að skapa réttar aðstæður fyrir nemendur strax í grunnskóla og leikskóla. Þar þarf að vera umhverfi þar sem börnin fá að heyra og lesa nóg af fjölbreyttu íslensku máli til að byggja upp nauðsynlegan orðaforða. Það er þannig sem þau verða tilbúin að takast á við texta eins og Njálu á unglingsárunum.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Íslenska Gervigreindin eyðileggur fyrir lestri Njálu Orðskýringarnar orðnar óskiljanlegar Staðan gjörbreytt á einum áratug Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Enginn mætti frá ríkisstjórninni » Fleiri tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Krefur Ragnar svara um niðurskurðinn „Það eru ansi margar spurningar sem vakna“ Þriggja ára bóknámið ekki fyrir alla Orðskýringarnar orðnar óskiljanlegar Staðan gjörbreytt á einum áratug » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Öflugur stormur veldur usla í Japan Heitasta parið núna snæddi saman í Tókýó „Þá er bara hægt að pakka saman og hætta þessu“ Búinn að semja við Liverpool Falsaðar Apple-vörur flæða yfir Svíþjóð Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Skýrt umboð til breytinga Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Svæðið á inni fyrir öðrum stórum skjálfta Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Tveir skólar sameinast í haust Markaðsvirði Oculis hrynur Skýrt umboð til breytinga „Það eru ansi margar spurningar sem vakna“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Öflugur stormur veldur usla í Japan Heitasta parið núna snæddi saman í Tókýó „Þá er bara hægt að pakka saman og hætta þessu“ Búinn að semja við Liverpool Falsaðar Apple-vörur flæða yfir Svíþjóð Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Skýrt umboð til breytinga Krefur Ragnar svara um niðurskurðinn Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Tveir skólar sameinast í haust Markaðsvirði Oculis hrynur Skýrt umboð til breytinga „Það eru ansi margar spurningar sem vakna“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað