Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Icelandia hagnast um 916 milljónir

Read Full Article →

Ferðaþjónustusamstæðan Icelandia, sem hét áður Kynnisferðir, hagnaðist um 916 milljónir króna á síðasta ári. Hagnaður ársins 2024 nam 497 milljónum og jókst því um 84% á milli ára. Rekstrartekjur samstæðunnar námu 15,0 milljörðum á síðasta ári, samanborið við 12,3 milljarða árið áður, og jukust þar af leiðandi um 22% á milli ára. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) nam 2,6 milljörðum en var 1,6 milljarðar árið áður. EBITDA jókst því um 55% á milli áranna 2024 og 2025. Samstæða Icelandia inniheldur vörumerki á borð við Reykjavik Excursions, Flybus, Icelandic Mountain Guides og Dive.is. Icelandia sinnir einnig almenningssamgöngum og flutningum. „Síðasta ár var í samræmi við þau markmið og áætlanir sem við settum okkur. Við höfum lagt mikla áherslu á tækniframfarir og sjálfvirknivæðingu sem hefur gefið okkur betri yfirsýn og gert okkur kleift að taka skjótar og upplýstar ákvarðanir. Vöxturinn er ánægjulegur og við horfum af bjartsýni til framtíðar,” segir Björn Ragnarsson , forstjóri Icelandia. Í tilkynningu segir félagið að vöxturinn skýrist bæði af innri og ytri vexti en á árinu var gengið frá kaupum á dagsferðahluta Hópbíla með kaupum á Reykjavík Sightseeing og Gray Line Iceland. Sjá einnig Icelandia kaupir Reykjavik Sightseeing og Bushostel Í október 2025 var undirritaður samningur um sölu bílaleigurekstrar dótturfélagsins Bílaleigu Kynnisferða undir vörumerkinu Enterprise rent-a-car til Okkar bílaleigu ehf. Afhending rekstursins fór fram í upphafi árs 2026. Að sögn Björns er þetta þáttur í stefnumótun samstæðunnar um að einbeita sér að kjarna ferðaþjónustunnar. Sjá einnig Bílaleiga Kynnisferða keypt af Okkar bílaleigu Í nóvember 2025 var undirritað samkomulag um sameiningu Icelandia og Arctic Adventures, tveggja stærstu ferðaþjónustufyrirtækja landsins. Samkomulagið er gert með fyrirvara um áreiðanleikakönnun á báðum félögum og samþykki Samkeppniseftirlitsins. Sjá einnig Arctic Adventures og Icelandia í sam­runa­viðræðum „Við erum spennt fyrir þessum möguleika og trúum því að sameining okkar muni skila enn betri þjónustu fyrir ferðamenn á Íslandi," sagði Björn.

Share this article