Hagnaður Iceland Seafood International (ISI) á fyrsta ársfjórðungi meira en tvöfaldaðist milli ára og nam 2,1 milljón evra eða um 305 milljónum króna. Félagið birti uppgjör eftir lokun Kauphallarinnar í dag. Rekstrartekjur ISI á fyrsta ársfjórðungi námu 21,2 milljörðum króna, sem svarar 22,4% aukningu frá sama tímabili í fyrra. Rekstrarhagnaður fyrir afskriftir (EBITDA) jókst um 5,8% milli ára og nam 5,7 milljörðum króna á fjórðungnum. Tólf mánaða rúllandi EBITDA hækkaði um 0,4 milljarða milli ára, í 3,3 milljarða frá 2,9 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi 2025. Heildareignir námu 42,5 milljörðum í lok mars 2026, sem er hækkun um 5,3 milljarða frá sama tíma ári áður. Eigið fé nam 84,8 milljónum evra, eða um 12,2 milljörðum króna. Byggt á niðurstöðum fyrsta ársfjórðungs og áætlunum félagsins er afkomuspá ársins óbreytt frá ársbyrjun eða á bilinu 11,5 til 13,5 milljónir evra. Ægir Páll: Höfum haldið sjó í krefjandi umhverfi Ægir Páll Friðbertsson, forstjóri ISI, segir niðurstöðu fyrsta fjórðungs vera afar ánægjulega. Sjá einnig Framboð af þorski er í sögulegu lágmarki „Við höfum náð að halda sjó í krefjandi umhverfi en minnkandi þorskkvóti á heimsvísu hefur leitt til þess að framboð er mun minna en undanfarin ár. Allar deildir fyrirtækisins juku sölu samanborið við sama tímabil árið 2025. Þetta styrkir okkur fyrir áframhaldandi starfsemi á árinu. Góð loðnuvertíð hafði einnig jákvæð áhrif á fjórðunginn, sem og góð sala á síld. Horfur fyrir næstu mánuði gera ráð fyrir að framboð á þorski verði áfram takmarkað, á meðan laxamarkaðurinn mun líklega einkennast af verðnæmni, með stöðugra verði og góðu framboði. Til að styrkja okkur í aðfangakeðjunni fyrir argentínska rækju fjárfestum við í útgerð í Argentínu á síðasta ári en áhrif þeirrar fjárfestingar mun birtast á seinni hluta ársins.“