Höfuðborgin iðar öll af lífi þar sem Listahátíð í Reykjavík er farin af stað. Hún hófst með pompi og prakt á laugardaginn með viðburðaríkri dagskrá í Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi, og Sinfóníuhljómsveit Íslands flutti eitt stærsta sinfóníska verk sögunnar eftir Mahler í Eldborg um helgina, tónleikarnir verða sýndir á RÚV í kvöld. Fischersund opnaði verk sitt Þokuverk í gróðurhúsinu á Lækjartorgi þar sem upplifa má ilmheim hátíðarinnar. Sýningar James Merry og Bjarkar voru líka opnaðar í Listasafni Íslands. Næstu tvær vikurnar verður Reykjavíkurborg undirlögð af Listahátíð þar sem gestir og gangandi fá að njóta listsýninga, tónleika, sviðsverka, tilraunakenndra matarupplifana og fyrirlestra svo dæmi séu nefnd. Lokahnykkurinn verður svo sunnudaginn 14. júní þegar botninn er sleginn í veisluna með danspartíi í Klúbbnum í Iðnó. Menningarþættirnir Víðsjá og Lestin á Rás 1 verða í beinni útsendingu frá Klúbbnum milli klukkan 16-18 í dag. Menningarvefurinn hefur tekið saman lista yfir nokkra af þeim viðburðum sem í boði verða en dagskrána í heild má finna hér. Hildur Guðnadóttir og Sinfóníuhljómsveit Íslands Tónskáldið margverðlaunaða, Hildur Guðnadóttir, er hátíðarlistamaður Listahátíðar í ár. Ferli hennar verður fagnað með þremur einstökum viðburðum. Hildur er eitt fremsta kvikmyndatónskáld samtímans og hlaut til að mynda Emmy- og Grammyverðlaun árið 2019 fyrir tónlistina í sjónvarpsþáttunum Chernobyl og Óskarsverðlaun árið 2020 fyrir tónlistina við kvikmyndina Joker. Fimmtudaginn 4. júní leiðir Hildur dagskrá í Eldborg sem nefnist Nærmynd þar sem hún segir frá eigin verkum og áhrifavöldum sínum og glímunni við að styrkja frásögn kvikmyndarinnar með áhrifamikilli tónlist. Flutt verða verk Hildar úr kvikmyndunum Tár, Joker, Haunting in Venice ásamt tónlist sem hefur haft mikil áhrif á skáldið sjálft. Laugardaginn 6. júní í Silfurbergi í Hörpu flytur Hildur ásamt hljómsveit í fyrsta sinn á Íslandi verkið Where to From ásamt eldra efni. Where to From er pantað af Listahátíð í Reykjavík, Barbican Centre, Vienne Konzerthaus og Holland Festival. Auk Hildar, sem syngur og leikur á selló, koma fram Liam Bryne sem leikur á víólu da gamba, söngkonurnar Jessika Kenney og Else Torp, víóluleikarinn Eyvind Kang og sellóleikarinn Claire O’Connell. Sunnudaginn 7. júní verður svo horft til fortíðar, nútíðar og framtíðar í Hallgrímskirkju þar sem flutt verða verk eftir Hildi og Jón Nordal heitinn. Meðal flytjenda eru Kór Hallgrímskirkju undir stjórn Steinars Loga Helgasonar, Björn Steinar Sólbergsson og Álfheiður Erla Guðmundsdóttir. Hildur býður svo í kvöldkaffi á Klúbbnum sunnudagskvöldið þar sem Melkorka Ólafsdóttir, dagskrárgerðarkona Rásar 1, ræðir við hana að tónleikunum í Hallgrímskirkju loknum. Rót – brúðuleiksýning Rót er ný ljóðræn brúðuleiksýning fyrir alla fjölskylduna úr smiðju Handbendi brúðuleikhúss. Verkið gerist árið 1995 og fjallar um strákinn Óla sem elst upp í sveit. Faðir hans er íslenskur en móðir hans er frá Paragvæ. Líf Óla tekur miklum breytingum þegar amma hans frá Paragvæ heimsækir fjölskylduna með allar sínar litríku sögur. Verkið fjallar um rætur, samkennd og sögurnar sem móta okkur. Í gegnum söng, brúðuleik og sjónræna galdra er ferðast á milli Íslands og Suður-Ameríku, fortíðar og nútíðar, raunveruleika og ímyndunar. Handbendi er margverðlaunað brúðuleikhús sem sérhæfir sig í frumlegum og áhrifaríkum sýningum, stofnað af Gretu Clough leikstjóra árið 2016. Stefán Ragnar Flautuleikarinn Stefán Ragnar Höskuldsson er í hópi íslensks tónlistarfólks sem hefur náð einstökum árangri í hinum alþjóðlega tónlistarheimi. Hann var fyrsti flautuleikari Metropolitan-óperunnar í New York frá 2008-2016 og hjá Sinfóníuhljómsveitinni í Chicago frá 2015–2025. Í fyrrahaust tók hann stöðu fyrsta flautuleikara Fílharmóníusveitarinnar í Berlín og kemur reglulega fram sem einleikari víða um heim. Nú kemur hann fram í fyrsta sinn á Listahátíð í Reykjavík og fara tónleikarnir bæði fram í Reykjavík og á æskuslóðum Stefáns fyrir austan, í Tónlistarmiðstöð Austurlands þann 2. júní og í Norðurljósasal Hörpu 3. júní. Með honum leika góðvinir hans Sigurgeir Agnarsson sellóleikari og Liam Kaplan píanóleikari. Á efnisskránni verða verk eftir tónskáld á borð við Prokofiev, Villa-Lobos og Mendelssohn. Óður til gleðinnar Föstudaginn 5. maí verður myndlistarsýning úkraínska listhópsins OPEN GROUP opnuð í Marshall-húsinu. Hópurinn hefur vakið alþjóðlega athygli fyrir áhrifamikil verk um innrásarstríð Rússlands í Úkraínu og afleiðingar þess fyrir úkraínsku þjóðina og menningu landsins. Á meðal verka á sýningunni er stór vídjóinnsetning, Repeat After Me II (20222024), sem var framlag Póllands á Feneyjatvíæringnum árið 2024 og hlaut mikið lof bæði gesta og gagnrýnenda. Fimmtudaginn 4. júní verður boðið upp á listamannaspjall við Mörtu Czyż sýningarstjóra og OPEN GROUP um sýninguna Ode to Joy sem þau setja einnig upp í Nýlistasafninu. Nowhere Hér er á ferðinni margslunginn og gáskafullur einleikur þar sem leikarinn og baráttumaðurinn Khalid Abdalla fer með áhorfendur Tjarnarbíós í óvænt ferðalag um eigin sögu í landslagi stórbrotinna heimsviðburða. Hann sækir innblástur í þátttöku sína í egypsku byltingunni 2011 og upplifun af gagnbyltingunni sem fylgdi í kjölfarið. Hann tekur á sögu nýlendustefnunnar og niðurbroti hennar, vináttu og missi, mótmælum og uppreisn gegn valdhöfum víða um veröld sem og ofbeldinu á Gaza. Hér fléttar hann saman hinu persónulega og hinu pólitíska í eins konar andævisögu. Viðburðurinn er haldinn í Tjarnarbíói 12. og 13. júní. Ingoma! A Revolution in Rythm Í Borgarleikhúsinu verður sannkölluð gleðisprengja með trommuleik, dansi og söng frá hinni heimsþekktu sveit Ingoma Nshya, fyrstu kvennatrommusveit Rúanda. Árið 2004 steig hópur kvenna byltingarkennt skref og braut aldagamlar hefðir sem meinuðu konum að svo mikið sem snerta trommur. Þær leituðu leiða til að endurheimta styrk, reisn og von í kjölfar þjóðarmorðsins í landinu og úr varð Ingoma Nshya sem síðan þá hefur öðlast heimsfrægð og stuðlað að auknu jafnrétti og sjálfstæði kvenna með gleði og valdeflingu að leiðarljósi. Sýningin, sem haldin er 11. og 12. júní, er saga þessara einstöku kvenna í formi tónlistar og frásagnar. Stofnandi hópsins, rúandska listakonan Kiki Katese, og rúandsk-kanadíska sópransöngkonan Ineza Mugisha, sem flúði þjóðarmorðið með fjölskyldu sinni, leiða áhorfendur í gegnum stórbrotna listsýningu tóna þar sem bæði ný og klassísk tónlist Austur- og Vestur-Afríku fær að njóta sín. Angel Blue Á lokadegi Listahátíðar í Reykjavík kemur hin bandaríska sópransöngkona Angel Blue fram á tónleikum í Eldborgarsal Hörpu ásamt píanóleikaranum Bryan Wagorn. Blue er ein áhrifamesta óperusöngkona samtímans og tvöfaldur Grammy-verðlaunahafi. Hún hefur vakið heimsathygli og er þekkt fyrir mikla breidd í túlkun sinni og þykir hafa silkimjúkan hljóm. Þau Blue og Wagorn ætla að bjóða upp á fjölbreytta efnisskrá þar sem allir tónlistarunnendur ættu að finna eitthvað við sitt hæfi. Yfir hátíðina verður einnig fjölmargt í boði fyrir yngstu gestina og má þar nefna Heimstónlistarhátíð fjölskyldunnar í Hörpu þann 13. júní þar sem boðið verður upp á fjölbreytta og lifandi dagskrá í opnum rýmum hússins. Þann 6. júní verður Elliðaárdalurinn uppfullur af lífi og nýjum ævintýrum þegar listafólk fyllir svæðið af töfrum og dýpkar tengslin við náttúruna í gegnum listrænar uppákomur og viðburði. Klúbburinn verður á sínum stað í Iðnó þar sem allir viðburðir eru ókeypis og boðið verður upp á fjölbreytta dagskrá alla hátíðina. Þar má nefna safaríkar umræður, funheita listaviðburði, vinnusmiðjur með listafólki og dans fram á nótt. Þess má geta að Lestin á Rás 1 verður í lifandi flutningi þann 12. júní á Klúbbnum.