Frá upphafi árið 1999 hefur Iceland Airwaves verið þekkt fyrir að kynna bæði nýjar og spennandi alþjóðlegar raddir og það besta sem íslensk tónlist hefur upp á að bjóða. Önnur tilkynning hátíðarinnar fyrir árið 2026 heldur þeirri hefð áfram með fjölbreyttum hópi listamanna sem endurspegla breidd og fjölbreytileika samtímatónlistar. Íslenskir listamenn sem tilkynntir eru í dag eru: Andervel, Bjarni Daníel, BKPM, Brynja, Brynja Rán, Einakróna, Falinn Gjóður, Flesh Machine, Gosi, Haukur Páll, Jónfrí, knackered, LiteFun, LÓN, Marsibil, RAKEL, SAKARIS, Sævar Jóhannsson, SCAM, Spouses, Úlfur Úlfur og Valborg Ólafs. Erlendu nöfnin sem bætast við dagskrána eru: Any Young Mechanic (AU), bed (JP), BLUAI (BE), Esmeralda Road (UK), Formal Sppeedwear (UK), Heartworms (UK), Jamie Duffy (IE), Jamie Woon (UK), JEFF3 (DK), Lucy Dreams (AT), Mar Pujol (ES-CT), Nori (UK), punktò (LT), Revenge of Calculon (UK), Sex Week (US), The Gnomes (AU), The Itch (UK), Them Flying Monkeys (PT), Vicky Sometani (UK) og YARD (IE). Hér eru frekari upplýsingar um dagskránna, miðasölu og þá sem fram koma að þessu sinni. Rapparinn JEFF3 frá Kaupmannahöfn blandar saman afrohouse, amapiano og skandinavísku rappi í bassaþungum lögum fullum af orku. Tónlist hans hafa skapað honum orðspor sem einn af áhugaverðustu nýliðum dönsku senunnar. Iceland Airwaves fer fram dagana 5.–7. nóvember í miðborg Reykjavíkur og bætast nú 42 listamenn frá 12 löndum við formlega dagskrá hátíðarinnar Heartworms er heiti bresku tónlistarkonunnar Jojo Orme sem hefur vakið mikla athygli fyrir dökkt og dramatískt popp. Frumraun hennar Glutton For Punishment markaði stórt skref fram á við og í kjölfarið fylgdu umfangsmiklar tónleikaferðir um Bretland. Iceland Airwaves fer fram dagana 5.–7. nóvember í miðborg Reykjavíkur og bætast nú 42 listamenn frá 12 löndum við formlega dagskrá hátíðarinnar Breska sveitin The Itch stígur svo á svið í fyrsta sinn á Íslandi með smelli af plötunni It’s The Hope That Kills You. Þau munu án nokkurs vafa trylla dansgólfið. Iceland Airwaves fer fram dagana 5.–7. nóvember í miðborg Reykjavíkur og bætast nú 42 listamenn frá 12 löndum við formlega dagskrá hátíðarinnar Sálarsöngvarinn Jamie Woon verður svo með r og b-skotna sálartónlist frá hjartanu. Tónlist hans gefur áhorfendum bæði tækifæri til að dansa og klökkna yfir textunum. Iceland Airwaves fer fram dagana 5.–7. nóvember í miðborg Reykjavíkur og bætast nú 42 listamenn frá 12 löndum við formlega dagskrá hátíðarinnar RAKEL snýr aftur á dagskrána árið 2026, ein af sérstæðustu nýjum röddum Íslands og sigurvegari Iceland Airwaves PLUS verðlaunanna 2025. Síðan hefur ferill hennar verið á miklu flugi. Iceland Airwaves fer fram dagana 5.–7. nóvember í miðborg Reykjavíkur og bætast nú 42 listamenn frá 12 löndum við formlega dagskrá hátíðarinnar Andervel , tónlistarverkefni listamannsins José Luis Anderson sem er fæddur í Mexíkó en býr á Íslandi, verður á meðal fulltrúa heimamanna Iceland Airwaves 2026. Hann sækir innblástur í víðtæka þjóðlagahefð og flytur texta á spænsku, íslensku og ensku. Iceland Airwaves fer fram dagana 5.–7. nóvember í miðborg Reykjavíkur og bætast nú 42 listamenn frá 12 löndum við formlega dagskrá hátíðarinnar Rafpopphljómsveitin SCAM kemur einnig fram á hátíðinni en það er raf-poppverkefni íslensku tónskáldanna og tónlistarframleiðendanna Herdísar Stefánsdóttur og Sölku Valsdóttur. Sveitin hefur virkilega fengið tónlistarunnendur til að sperra eyrun síðustu mánuði auk þess sem þær hafa fengið mikið lof fyrir framkomu á tónleikum. Iceland Airwaves fer fram dagana 5.–7. nóvember í miðborg Reykjavíkur og bætast nú 42 listamenn frá 12 löndum við formlega dagskrá hátíðarinnar Fimm manna sveitin Any Young Mechanic frá Adelaide semur í kvikmyndalegum stíl þar sem stórar sögur og sterkar tilfinningar fá að njóta sín. Frumraun þeirra, The Modern Shoe Is Ruining The Foot, færir hefðbundna tónlist inn í nútímann með metnaðarfullum útsetningum og ævintýralegum lagasmíðum. Iceland Airwaves fer fram dagana 5.–7. nóvember í miðborg Reykjavíkur og bætast nú 42 listamenn frá 12 löndum við formlega dagskrá hátíðarinnar Japanska sveitin bed hefur skapað sér orðspor sem ein besta tónleikasveit Japans. Með blöndu af post-pönki, teknói og rokki flytja þau kraftmikla tónlist sem hefur vakið athygli langt út fyrir heimalandið. Iceland Airwaves fer fram dagana 5.–7. nóvember í miðborg Reykjavíkur og bætast nú 42 listamenn frá 12 löndum við formlega dagskrá hátíðarinnar Írski tónlistarmaðurinn Jamie Duffy hefur heillað milljónir hlustenda með tónlist sem tengir saman klassíska hefð og nútímalega nálgun. Eftir vinsældir á vinsældalistum og uppselda tónleika hefur hann fest sig í sessi sem eitt stærsta nýja nafn írskrar tónlistar. Iceland Airwaves fer fram dagana 5.–7. nóvember í miðborg Reykjavíkur og bætast nú 42 listamenn frá 12 löndum við formlega dagskrá hátíðarinnar Meðfram þriggja daga tónlistarveislunni fer fram röð sérviðburða. Shygirl kemur hátíðinni af stað í Silfurbergi Hörpu þann 4. nóvember. Stórstjarnan Daði Freyr og Sinfóníuhljómsveit Íslands sameinast í Eldborg þann 5. nóvember og botninn er sleginn í hátíðina þann 8. nóvember þegar The Streets stígur á svið í Eldborg. Iceland Airwaves fer fram dagana 5.–7. nóvember í miðborg Reykjavíkur og bætast nú 42 listamenn frá 12 löndum við formlega dagskrá hátíðarinnar