Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Bandarísk bjórfyrirtæki veðja á HM

Read Full Article →

Bandarísk bjórfyrirtæki binda nú miklar vonir við komandi heimsmeistaramót í knattspyrnu sem hefst síðar í þessum mánuði. Á vef New York Times segir að bjórframleiðendur þar í landi hafi glímt við 17% sölusamdrátt undanfarinn áratug. Fyrirtæki á borð við Anheuser-Busch InBev hefur til að mynda varið meira en 110 milljónum dala í auglýsingar og styrktarsamninga við FIFA til að gera Michelob Ultra og önnur vörumerki sín að opinberum drykkjum mótsins. Aðrir bjórframleiðendur hafa einnig lagt allt undir í tengslum við HM en mótið sjálft hefst formlega þann 11. júní nk. og samanstendur af 104 leikjum í Bandaríkjunum, Mexíkó og Kanada. „Við viljum leggja mikla áherslu á barina því þeir verða staðirnir þar sem fólk kemur saman til að horfa á leikina. Það er ekkert eins og að horfa á sitt lið með vinum og fjölskyldu á góðum bar með köldum bjór,“ segir Michel Doukeris, forstjóri Anheuser-Busch InBev. Sjá einnig Providence tekur fullan þátt í HM Markaðssetning bjórfyrirtækja er einnig tilraun til að snúa við margra ára samdrætti í bjórdrykkju. Frá 2014 til 2024 dróst bjórneysla á heimsvísu saman um 3% en í Bandaríkjunum dróst neyslan saman um 17%. Yngri kynslóðir hafa til að mynda drukkið minni bjór en foreldrar þeirra og hafa margir neytendur snúið sér að kannabis eða áfengum sódavatns- og kokteildrykkjum. Neysla á slíkum drykkjum jókst til dæmis um 58% frá 2019 til 2024. Þrátt fyrir væntingar bjórfyrirtækja eru bareigendur ekki vissir um að mótið muni skila sér í aukinni bjórsölu. Knattspyrna nýtur ekki sömu vinsælda í Bandaríkjunum og ruðningur eða körfubolti og dýrir miðar ásamt áhyggjum af innflytjendastefnu stjórnvalda hafa dregið úr væntingum um aðsókn. „Knattspyrna er að vaxa hér í Bandaríkjunum og það verða leikir sem draga að sér aðdáendur, en það er samt sem áður ólíklegt að það verði eins stór úrslitakeppni og við sjáum í körfubolta eða ruðningi hér,“ segir Bobby McGuire, eigandi barsins Butch McGuire‘s í miðborg Chicago.

Share this article