Árið 2025 misstu tæplega 12.600 vörubílstjórar í Bandaríkjunum starfsleyfi eftir að hafa fallið á tungumálaprófi sem mældi enskukunnáttu þeirra. Til samanburðar misstu aðeins sex bílstjórar leyfi sitt af sömu ástæðu árið 2024. Á vef WSJ er fjallað um málið en þar segir að bandarísk stjórnvöld hafi verulega hert eftirlit sitt meðal vörubílstjóra í landinu. Samkvæmt rannsókn frá Los Angeles-höfn árið 2021 voru tveir þriðju af öllum vörubílstjórum innflytjendur og um 75% þeirra voru frá Rómönsku Ameríku. Austur-Evrópubúar samsvara einnig stórum hluta vörubílstjóra í miðríkjum Bandaríkjanna og eru um 20% af vörubílstjórum á vesturströnd Bandaríkjanna innflytjendur frá Indlandi. Hátt í 200 þúsund bílstjórar eru einnig með sérstök atvinnuökuskírteini sem leyfa þeim að aka strætisvögnum eða 18-dekkja vörubílum á þjóðvegum Bandaríkjanna án þess að vera með lögheimili í landinu. Sjá einnig Nebraska berst gegn rafvæðingu vörubíla Einn þeirra sem höfðu þannig skírteini en misstu það svo tímabundið er Karan Singh en hann stöðvaði við vigtarstöð vegna hefðbundins eftirlits á meðan hann keyrði með frosinn kjúkling eftir þjóðvegi 80. Eftir vigtunina framkvæmdi eftirlitsmaðurinn tungumálapróf fyrir Karan en hann var nýfluttur til Bandaríkjanna frá Indlandi. Hann svaraði fyrstu spurningunum rétt og sagði bæði hvaðan hann hefði sótt farminn og hvert áfangastaðurinn væri. Þegar hann var spurður hvenær hann hefði síðast sofið misskildi hann spurninguna og hélt að eftirlitsmaðurinn hefði spurt hann hvenær hann hefði síðast fengið frí. Karan svaraði nokkrum spurningum til viðbótar en eftir að hafa fengið vitlaus svör ákvað eftirlitsmaðurinn að svipta hann ökuréttindum. Karan sat fastur við þjóðveginn þar til annar bílstjóri gat komið til að sækja hann og afhenda farminn á áfangastað. Flestir vörubílstjórar í Bandaríkjunum eru á fimmtugs- og sextugsaldri og endast ekki margir í starfinu í langan tíma. Bílstjórar þurfa að glíma bæði við ófyrirsjáanlegan vinnutíma og laun og ofan á það eru þeir lengi í burtu að heiman. Umferðalögfræðingurinn Greg Reed segir að slík störf séu ekki mjög aðlaðandi fyrir Bandaríkjamenn en séu mjög eftirsótt af innflytjendum. Um 72% af öllum vöruflutningum í Bandaríkjunum eiga sér stað á þjóðvegum landsins en það hefur hins vegar reynst erfitt að finna starfsmenn til að fylla í þær 2,2 milljónir staða við að aka vörubílum. Eigendur vörubílafyrirtækja segja nú að tungumálaprófin gætu fælt enn fleiri vörubílstjóra frá því að keyra til ákveðinna ríkja.