Innlent | mbl | 1.6.2026 | 18:40 „Þarna stóð ég og gat ekki annað“ Ræða Snorra var trufluð með blístri og frammíköllum. Skjáskot/Alþingi Björn Diljan Hálfdanarson [email protected] Setja bókamerki Það er fátítt að fólk raski friðnum í þingsal Alþingis að sögn Snorra Mássonar, þingmanns Miðflokksins. Gera þurfti hlé á þingfundi fyrr í dag vegna mótmæla sem brutust út á þingpöllum þegar Snorri var að flytja ræðu um fyrirhugaða brottfararstöð. „Maður er náttúrulega alls ekki vanur því að það sé verið að raska friðnum inni í þingsal þannig að fyrst þarf maður að gera sér grein fyrir hvað sé á seyði, hvaða menn eru þetta,“ segir Snorri í samtali við mbl.is. „Síðan lítur maður upp og þá kemur í ljós að þarna er hópur ungmenna, að því er virtist, sem var með flautur að gera athugasemdir við frumvarp um brottfararstöð. Þegar maður gengur úr skugga um að þarna séu menn ekki með eitthvað enn vafasamara í hyggju þá verður þetta nú frekar broslegt.“ Frétt af mbl.is Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Illa vegið að Snorra Fannst þér mótmælin beinast gegn þér persónulega? „Mér fannst náttúrulega illa að mér vegið, framsögumaður málsins var nýbúinn að klára og þetta er mál meirihlutans, þannig að ég veit ekki hvað ég á að lesa í það, en þarna stóð ég og gat ekki annað,“ segir hann. Hann hafi svo fengið að taka aftur til máls þegar mótmælendurnir voru á bak og burt. „En það er miður að uppákomur hafi orðið fleiri en þessi sem rýra þetta traust sem við sýnum hvert öðru með því að hafa þingpallana opna,“ segir Snorri. Frétt af mbl.is Halda mótmælum áfram fyrir utan húsið Mikið óyndisúrræði Hann segir að ýmis félagasamtök og aðgerðasinnar hafi með málflutningi sínum bjagað umræðuna um brottfararstöð hér á landi. „Þó að þetta sé mikið óyndisúrræði og enginn kæri sig í raun og veru um að þurfa að grípa til þeirra ráðstafana sem gerðar eru með frumvarpinu, þá er það talið nauðsynlegt í ljósi öryggishagsmuna.“ Hann segist þó hafa goldið varhug við ýmsum þáttum frumvarpsins. „Sú nálgun að vera með sífellda plástrastarfsemi og sífellt kostnaðarsamari úrræði til að glíma við afleiðingar misráðinnar útlendingastefnu er ekki lausnir til framtíðar,“ segir hann. „Það ætti miklu frekar að efla bæði lagaumgjörðina og forvarnirnar á landamærum frekar en að stofna til svona úrræðis sem enginn veit hvernig getur undið upp á sig í kostnaði, utanumhaldi og rekstri.“ Frétt af mbl.is Mælti fyrir brottfararstöð á þingi Frétt af mbl.is Brottfararstöð liður í að létta á fangelsum Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Bestu augnmaskarnir núna „Þarna stóð ég og gat ekki annað“ Lokun á Hringvegi í kvöld Sjálfstæðisflokkurinn ekki stærri í rúm þrjú ár Martin áfram magnaður Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Einn fluttur á slysadeild eftir umferðarslys Skuldahengja yfir ríkjum heims Staðan gjörbreytt á einum áratug Mest lesið Í gær Í vikunni Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Jafnlaunavottun lögð niður Útskýring fengin á lágfluginu Skólabygging sett á söluskrá Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Nýjast á mbl.is » Bestu augnmaskarnir núna „Þarna stóð ég og gat ekki annað“ Lokun á Hringvegi í kvöld Sjálfstæðisflokkurinn ekki stærri í rúm þrjú ár Martin áfram magnaður Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Fjármagnar rannsóknir á almyrkva á Íslandi Röng túlkun ráðherra Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Mest lesið Í gær Í vikunni Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Jafnlaunavottun lögð niður Útskýring fengin á lágfluginu Skólabygging sett á söluskrá Sigmundur Davíð kynnir nýjan fjölskyldumeðlim Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði