Innlent | mbl | 15.9.2026 | 17:03 „Ég hef fengið nóg“: Enskan unnið fullnaðarsigur Snorri Másson, varaformaður Miðflokksins, í ræðustól á Alþingi. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Alþingi „Fullkomlega villt í þykkri holtaþoku“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð „Algjörlega óþolandi og ólíðandi“ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ » Fleiri tengdar fréttir Íslenska Bilið breikkar mest á Íslandi Er vandinn víðtækari en lestur á Laxness? Hófst allt með örlagaríku snappi Fólk verði að takast á við arfinn á sinn hátt „Ég veit að munurinn er svona mikill“ » Fleiri tengdar fréttir Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, vill skylda fyrirtæki til að hafa íslensku á auglýsingum og skiltum og að íslenski textinn sé meira áberandi en texti á öðrum tungumálum. „Ég hef fengið nóg,“ sagði Snorri í ræðu á Alþingi í dag og taldi upp ensk orð sem gjarnan blasa við fólki í verslunum og þjónustu: „Grocery store, bakery, lunch, menu, street food, take away, open, closed.“ Sagði hann þetta aðeins toppinn á ísjakanum þegar kæmi að „ótæpilegum ágangi“ enskunnar. „Þetta hefur stórversnað þannig á allra síðustu árum að enskan virðist sums staðar hafa unnið fullnaðarsigur.“ Íslenskan verði mest áberandi Snorri lagði samhliða fram frumvarp um breytingar á markaðssetningarlögum þar sem lagt er til að auglýsingar á Íslandi skuli vera á íslensku. Önnur tungumál mættu vera með en íslenski textinn yrði að vera mest áberandi, til dæmis efst, feitletraður eða stærri. Reglan næði einnig til skilta, vegvísa, heita á tegund atvinnustarfsemi og útiauglýsinga, þar á meðal auglýsinga í stjórnmálabaráttu. „Matvöruverslun var það, virðulegur forseti, ekki ‚grocery store‘,“ sagði Snorri. Segir núverandi reglur ekki hafa dugað Í gildandi lögum er kveðið á um að auglýsingar sem ætlað er að höfða til íslenskra neytenda skuli vera á íslensku. Snorri vill fella þá afmörkun brott og segir núverandi fyrirkomulag hafa „haldið illa“. Í greinargerð frumvarpsins eru meðal annars nefnd skilti í Flugstöð Leifs Eiríkssonar sem birtast alfarið á ensku. Þá er vísað til Frakklands, Lettlands, Eistlands og Québec í Kanada sem dæmi um svæði þar sem gripið hefur verið til ráðstafana til verndar tungumálinu. Snorri sagði hvatningu til fyrirtækja og stofnana ekki hafa dugað og því væri tímabært að grípa til lagasetningar. „Hversu langt á þetta að ganga áður en við bregðumst við? Tíminn er núna. Þetta er spurning um sjálfsvirðingu okkar sem þjóðar.“ Tengdar fréttir Alþingi „Fullkomlega villt í þykkri holtaþoku“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð „Algjörlega óþolandi og ólíðandi“ „Pólitískir aktívistar á launum hjá hinu opinbera“ » Fleiri tengdar fréttir Íslenska Bilið breikkar mest á Íslandi Er vandinn víðtækari en lestur á Laxness? Hófst allt með örlagaríku snappi Fólk verði að takast á við arfinn á sinn hátt „Ég veit að munurinn er svona mikill“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Gæti verið lengi frá „Ég hef fengið nóg“: Enskan unnið fullnaðarsigur Segir aðgerðir Rússa „kærulausar og ögrandi“ Eva Laufey: Tekur nýjasta æðið skrefinu lengra Norðmaðurinn féll á lyfjaprófi Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðalmálið að húsið „sé vel lokað“ Afstaða Samkeppniseftirlitsins kom á óvart Lækkunarhrina á íslenska markaðnum „Minnst slæmu“ skattarnir urðu fyrir valinu Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Leggja til skerðingu húsnæðisbóta Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Leiguverð úr öllu samhengi við önnur lönd „Við erum illa stödd sem mannkyn“ Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Björgunarsveit komin upp við vegg Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn Nýjast á mbl.is » Gæti verið lengi frá „Ég hef fengið nóg“: Enskan unnið fullnaðarsigur Segir aðgerðir Rússa „kærulausar og ögrandi“ Eva Laufey: Tekur nýjasta æðið skrefinu lengra Norðmaðurinn féll á lyfjaprófi Umræðan Þegar vísitalan skilar sér í veskið Hindrun í vegi fríverzlunar við Bandaríkin Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aðalmálið að húsið „sé vel lokað“ Ákærður í tengslum við banaslys í sumar Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Afstaða Samkeppniseftirlitsins kom á óvart Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Hólmbert Friðjónsson Telur kröfurnar vera „galna nálgun“ Segja ákvörðunina „þungt högg“ Varla búin að dýfa tánni ofan í og er nú á leið á HM Undirbúinn fyrir komu út í samfélagið Á vettvangi til hálf tíu: Lögreglan tekin við Leggja til skerðingu húsnæðisbóta Ekki verið mjög stór kostnaðarliður Leiguverð úr öllu samhengi við önnur lönd „Við erum illa stödd sem mannkyn“ Allt tiltækt lið kallað út í Elliðaárdal Fljóta þeir sofandi að feigðarósi? „Ekki einfalt að gefa eftir verk en við verðum að gera það“ „Hvar í helvítinu átti hann að falla annars staðar?“ Boða verkfall 23. september Banamaður Bryndísar Klöru á Vernd Hópslagsmál í bílakjallara Segir húsið hafa verið „til vandræða“ Innherjaskilyrði Kauphallar virkjast Sama stjórn en nýr forstjóri á Vogi Þiggja fé án þess að vinna handtak Skorað á Þorgerði að segja af sér Verða ótryggðir vegna veikinda eða slysa Sakborningar einkum á framfæri sveitarfélaga „Þvottavélar og örbylgjuofnar út um allan veg“ Ný sundlaug opnuð í Garðabæ Björgunarsveit komin upp við vegg Blaðamenn upplýstu viðmælendur í Leifsstöð Nærvera Bjarka við kennsluréttindanám afþökkuð Kýs frekar kókaín en snjallsíma fyrir son sinn