Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Ekki hægt að gera ráð fyrir að kvika sé á uppleið

Read Full Article →

Innlent | mbl | 1.6.2026 | 23:10 Ekki hægt að gera ráð fyrir að kvika sé á uppleið Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlisfræðingur. mbl.is/Sigurður Bogi Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Enn skelfur suðvesturhornið Fundu skjálftann glöggt í gróðurhúsinu Svæðið á inni fyrir öðrum stórum skjálfta Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum Skjálftinn fannst víða » Fleiri tengdar fréttir „Ekki er hægt að gera ráð fyrir að kvika sé á leiðinni upp á einhvern máta eða að safnast saman, því ef svo væri þá væru skjálftarnir á miklu meira dýpi.“ Þetta segir Ari Trausti Guðmundsson jarðeðlis­fræðing­ur í samtali við mbl.is. „Þá er spurningin hver er orsök skjálftanna? Það ætlar Veðurstofan að skoða betur , samkvæmt fréttum í dag,” bætir hann við. Frétt af mbl.is Enn skelfur suðvesturhornið Tugum sinnum öflugri Snarpur jarðskjálfti sem átti upptök sín á Mosfellsheiði, skammt norður af afleggjaranum frá Suðurlandsvegi að Þrengslum, tilheyrir þeirri jarðskjálftahrinu sem staðið hefur yfir á svæðinu um helgina. Skjálftinn mældist 4,5, að stærð og var þannig umtalsvert áhrifameiri en sá stærsti fram að því sem mældist 3,3 að stærð síðdegis í gær. „Þessi var örlítið austar en hinn en á sama sprungukerfi og tugum sinnum öflugri,“ segir Ari. Spurður segir hann það þó ekki gefa miklar viðbótarupplýsingar. „Þarna er mikil spenna að losna og hún losnar í stærðarþrepum, stundum koma stóru skjálftarnir nánast fyrst og svo koma aðrir minni á eftir en stundum er þetta öfugt. Það eru engar reglur á þessu í sjálfu sér.“ Frétt af mbl.is Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði „Það er óvenjulegt“ Um skjálftahrinuna segir Ari Trausti að hún sé ekki í raun á óvæntum stað þótt venjulega verði meginskjálftahrinur í eldstöðvakerfum nær miðjum þeirra og nágrenni þeirra. „Það hefur skolfið enn norðaustar undanfarið en það er frekar óvænt að þarna skjálfi svona mikið. Bæði skjálftafjöldinn sem er orðinn nokkur hundruð og jafnvel stærðin yfir þrjá og nú alveg að 4,5 sem og ákefðin, þ.e. fjöldinn á stuttum tíma, það er óvenjulegt. Þá spyrja menn hvað sé þarna á ferðinni og skoða meðal annars upptakadýpið, sem er 2 til tæplega 5 kílómetrar og þar með í efri hluta jarðskorpunnar. Þannig að það er ekki hægt að gera ráð fyrir að þarna sé kvika á leiðinni upp á einhvern máta eða að safnast saman, því ef svo væri þá væru skjálftarnir á miklu meira dýpi.“ Frétt af mbl.is Skjálftinn fannst víða Stendur jafnvel í einhverjar aldir Gríðarleg skjálftavirkni hefur verið á Reykjanesskaganum og segir Ari Trausti hana vera farna að smita út frá sér á nýja staði og vísar til þess að gikkskjálftar og spennulosun fari að dreifast lengra og lengra út frá aðalumbrotasvæðinu við Grindavík og fleiri staða, enda flekagliðnunun alls metin um 4,5 metrar frá 2021. Það er þá samanlagt það sem fylgdi umbrotunum við Fagradalsfjall og svo við Grindavík og þar norður af. „Það hafa dunið yfir jarðskjálftar í Krýsuvíkurkerfinu, í kerfinu kennt við Brennisteinsfjöll og Bláfjöll, líka skjálftar á Reykjanesinu sjálfu og út á Reykjaneshrygg og það má tengja þetta meira og minna allt saman. Þetta er sem sagt bara byrjun á flekareksferli sem stendur jafnvel í einhverjar aldir, eina, tvær, þrjár, og einkennist af eldgosum og skjálftum í þessum kerfum, ef til vill líka í Hengilskerfinu, en ekki vitað í hvaða röð.“ Ari Trausti segir líkur á eldgosi á þessu sprungusvæði sáralitlar ef nokkrar en ekki hafi gosið á Mosfellsheiðinni í meir en 200 þúsund ár en stutt sé þó í eldborgir Svínahraunsbrunans. „Þarna er um að ræða það sem við köllum brotaskjálfta, sem tengjast ekki kvikuhreyfingum, en þessi stóri skjálfti í dag er enn frekari hvatning til þess að skoða hvað um er að ræða.“ Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Enn skelfur suðvesturhornið Fundu skjálftann glöggt í gróðurhúsinu Svæðið á inni fyrir öðrum stórum skjálfta Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum Skjálftinn fannst víða » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Umdeildur pólskur strætisvagn ekur á ný Ekki hægt að gera ráð fyrir að kvika sé á uppleið Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Carrick búinn að finna sinn mann? Ákært fyrir Järfälla-drápin Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vaknaði við þjófa þrátt fyrir öryggiskerfi Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar „Tilbúinn að taka 100% áhættu“ Viðskipti með Oculis vekja grunsemdir Mest lesið Í gær Í vikunni Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum Útskýring fengin á lágfluginu Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Nýjast á mbl.is » Umdeildur pólskur strætisvagn ekur á ný Ekki hægt að gera ráð fyrir að kvika sé á uppleið Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Carrick búinn að finna sinn mann? Ákært fyrir Järfälla-drápin Umræðan Þing í gíslingu Skýrsla sem segir ekki það sem okkur er sagt að hún segi Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu Krefur Ragnar svara um niðurskurðinn Röng túlkun ráðherra Mest lesið Í gær Í vikunni Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum Útskýring fengin á lágfluginu Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Sex flugferðum aflýst vegna áhafnaskorts Vara við leigubremsunni Viðstöðulaus skjálftahrina á Hellisheiði Hrifsa heiminn úr klóm tæknirisanna Flytja gríðarstór hús eftir þjóðveginum í nótt Loka skrifstofum: Funda um óvissu í starfi „Góðverk dagsins og jafnvel ársins“ Loka Vesturlandsvegi vegna malbikunar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Krefur móður svara: „Vinsamlega rökstyddu mál þitt“ Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Hótelstjóri veitir áfallahjálp nær daglega Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði

Share this article