Innlent | mbl | 3.6.2026 | 14:35 | Uppfært 14:53 „Þó að einn fótboltaleikur sé búinn þá byrjar annar“ Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Dregið mjög úr virkni „Skjálftarnir malla áfram“ Rúmlega 1.100 skjálftar: Dregið hefur úr virkninni Enn skelfur suðvesturhornið Fundu skjálftann glöggt í gróðurhúsinu » Fleiri tengdar fréttir Skjálftavirknin í eldstöðvakerfinu sem kennt er við Brennisteinsfjöll og Bláfjöll er nokkurn veginn í beinu framhaldi af gossprungunum sem mynduðu Svínahraunið. Þorvaldur Þórðarson eldfjallafræðingur segir það athyglisverðast við skjálftavirknina en stærsti skjálftinn í hrinunni reið yfir eftir hádegi á mánudag og mældist 4,5 að stærð. Átti hann upptök sín 2,9 kílómetra austnorðaustur af Litlu kaffistofunni. Frétt af mbl.is Dregið mjög úr virkni Frétt af mbl.is Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Einhvern tímann getur það þá endað með gosi Það að virknin sé í beinu framhaldi af gossprungunum sem mynduðu Svínahraunið og Svínahraunsbrunann gæti að mati Þorvaldar þýtt að eitthvað svipað sé komið af stað og endaði á þeim tíma með gosi. Þar vísar hann til hrauns sem talið er vera Kristnitökuhraunið, eða þess hrauns sem rann þegar menn voru að rífast um hvort við ættum að vera áfram heiðin eða eða taka upp kristni forðum daga, eins og Þorvaldur orðar það. Hann segir virknina áframhald af þeirri virkni sem hefur verið í gangi. Hún geti alveg dáið út og við ekkert frekar orðið vör við hana. „Þetta getur náttúrulega líka bent til þess að þarna sé komin einhver kvika á ferð og einhvern tímann í framtíðinni getur það þá endað með eldgosi en það er ekkert sem bendir til þess að það komi eldgos á morgun,“ segir Þorvaldur. Hann bendir á að ekki hafi mælst landris svo skjálftinn á mánudag geti verið tektónískur en það geti einnig þýtt að einhverjar kvikuhreyfingar séu þarna undir sem hafi komið þessu af stað. „Það er alls ekkert útilokað.“ Frétt af mbl.is „Skjálftarnir malla áfram“ Eldstöðvakerfi á Reykjanesskaga (bleik). Jarðskjálftabelti liggur eftir skaganum og markar flekaskilin (rauð). Jarðhitasvæði eru einnig sýnd (gul). Sprungusveimar Hengils til norðausturs og Reykjaness til suðvesturs eru svartir. Kort/ÍSOR/Ólafur Flóvenz Skorpan brotnar áður en kvika kemur inn Þú segir tektónískur en vitum við hvort um sniðgengis- eða siggengisskjálfta er að ræða. Hver er munurinn? „Sniðgengisskjálftarnir eru með norður-suður-hreyfingu á yfirborði þar sem spennusviðið breytist nær yfirborði. Neðar í skorpunni eru þetta nú sennilegast skjálftar sem ganga austur-vestur,“ segir Þorvaldur. Hann segir skilaboðin sem skjálftinn sé í raun að senda er að skorpan brotnar áður en kvika kemur inn í sprunguna. „Þessir norður-suður-sniðgengisskjálftar skýra líka af hverju sprungurnar eru yfirleitt skástígar, þær hliðra sér til,“ segir Þorvaldur og bætir því við að þeir séu nú ekki alveg norður-suður heldur aðeins austan við norður. „Síðan eru hinir skjálftarnir siggengisskjálftar. Þar sem þú ert að draga mótin í sundur og togkrafturinn er í raun og veru nokkurn veginn hornrétt á flötinn sem þú ert að toga í sundur. Þannig að það opnar sprungurnar, það er gliðnunin. Ef þú leggur lófana saman eru siggengisskjálftarnir eins og þú værir að skilja þá að beint út frá hvor öðrum en sniðgengisskjálftarnir eins og þú værir að renna þeim í sitt hvora áttina, útskýrir Þorvaldur. Frétt af mbl.is Rúmlega 1.100 skjálftar: Dregið hefur úr virkninni Reykjanesskaginn er kominn í gang Segir Þorvaldur einfaldast að líta á atburðarásina sem áframhald af mynstri sem við höfum verið að sjá. „Reykjanesskaginn er kominn í gang og hann er að búa sig undir fleiri atburði á öðrum stöðum. Síðan er stóra spurningin, hvar verður það á endanum? Þessi er nú kannski meira á Bláfjallareininni. Hún er komin í gang eins og Brennisteinsfjallareinin, Fagradalsfjallsreinin og Sundhnúkareinin og Reykjanesið. En það að vera komnar í gang þýðir ekki endilega að það séu að koma eldgos. Þetta er bara farið að búa sig undir atburði.“ Frétt af mbl.is Virknin færist innar: Skjálftar í Húsfellsbruna Frétt af mbl.is Ekki hægt að gera ráð fyrir að kvika sé á uppleið Geta þessar jarðhræringar haft bein áhrif á stöðu eldstöðvanna sem kenndar eru við Svartsengi, Eldvörp og Fagradalsfjall? „Já og nei. Ef þú ert með spennulosun á öðrum stöðum þá getur það líka slakað bara á ástandinu í Svartsengi og getur líka haft þannig áhrif að það loki því. Við vitum ekki alveg af hverju eitt gerist en hitt gerist ekki,“ segir Þorvaldur. Þorvaldur kveður mun minni líkur á gosi á Svínahraunssvæðinu en segir þó að ekki megi gleyma því að Mosfellið, Sandfellið í Kjós og Hvalfell í botni Hvalfjarðar séu gosmyndanir sem eru tiltölulega ungar, ekki nema nokkurra tuga þúsunda ára, sem sitja mislægt ofan á rofnu yfirborði. Bendir eldfjallafræðingurinn þá á að þegar talað sé um litlar og miklar líkur, í þessu sambandi, séu miklar líkur samt sem áður mjög litlar líkur. Líkur séu öllu heldur mismunandi litlar. Frétt af mbl.is Svæðið á inni fyrir öðrum stórum skjálfta „Ef svipað getur gerst þarna og í Grindavík þá þurfum við náttúrulega að hugsa um Hellisheiðarvirkjun og rafmagnslínurnar sem koma þarna niður,“ segir Þorvaldur. mbl.is/Árni Sæberg Megum ekki slaka á Segir Þorvaldur að skjálftahrinan nú og snarpi skjálftinn á mánudag veki okkur aðeins til umhugsunar. „Ef svipað getur gerst þarna og í Grindavík þá þurfum við náttúrulega að hugsa um Hellisheiðarvirkjun og rafmagnslínurnar sem koma þarna niður og annað,“ segir Þorvaldur og heldur áfram: „Við megum ekki slaka neitt á, við þurfum bara að halda áfram að vinna þessa vinnu við að reyna að koma með traust og uppbyggilegt hættumat fyrir allt svæðið og reyna að meta hver hættan er og gera okkur eins tilbúin eins og við mögulega getum til að takast á við hugsanlega atburði sem gætu gerst þarna í framtíðinni. Þetta er bara staðan hjá okkur í dag. Þó að einn fótboltaleikur sé búinn þá byrjar annar.“ Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Dregið mjög úr virkni „Skjálftarnir malla áfram“ Rúmlega 1.100 skjálftar: Dregið hefur úr virkninni Enn skelfur suðvesturhornið Fundu skjálftann glöggt í gróðurhúsinu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Sænskur þingmaður segir af sér vegna gruns um barnaníð Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Lopez segist ekki komin með nýjan kærasta Útilokar ekki félagaskipti Hvarfið á borði alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Borgin eigi ekki að reka utanríkisstefnu Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Umræðan verið „óvægin, ósanngjörn og röng“ Tuttugu ára tilmæli til ráðuneytisins enn í gildi Mest lesið Í gær Í vikunni Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Andlát: Steingrímur Ari Arason Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans Þórunn klökknaði er hún kvaddi Áslaugu Fjárdráttur upp á 12,5 milljónir til rannsóknar Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Áslaug Arna hættir á Alþingi Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Sænskur þingmaður segir af sér vegna gruns um barnaníð Þyrla kölluð út vegna elds í fiskibáti Lopez segist ekki komin með nýjan kærasta Útilokar ekki félagaskipti Hvarfið á borði alþjóðadeildar ríkislögreglustjóra Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Frederiksen heldur áfram um stjórnartaumana Hefur greinilega farið úrskeiðis löngu áður „Skelfilega erfið mál“ Mest lesið Í gær Í vikunni Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Andlát: Steingrímur Ari Arason Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans Þórunn klökknaði er hún kvaddi Áslaugu Fjárdráttur upp á 12,5 milljónir til rannsóknar Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Áslaug Arna hættir á Alþingi Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað