Kauphöll Íslands, sem starfrækir kauphöll Nasdaq á Íslandi, hagnaðist um 350 milljónir króna á síðasta ári, samanborið við 378 milljóna króna hagnað árið áður. Arðsemi eigin fjár var 53,8%. Stjórn félagsins leggur til að greiddur verði arður til hluthafa að fjárhæð 370 milljónir króna á árinu 2026, sem samsvarar 106 % af hagnaði ársins 2025, að því er segir í nýbirtum ársreikningi. Tekjur Kauphallarinnar námu 899 milljónum króna á árinu 2025, sem samsvarar 1,5% samdrætti milli ára. Rekstrarhagnaður dróst saman um 4,8% milli ára og nam 358 milljónum króna. Eignir Kauphallar Íslands hf. námu 1,2 milljörðum króna í lok árs 2025 og eigið fé var 649 milljónir. Eiginfjárhlutfall félagsins var 54,6%. Systurfélag Kauphallar Íslands hf., útibú Nasdaq CSD SE á Íslandi sem hét áður Nasdaq verðbréfamiðstöð, hefur ekki skilað ársreikningi fyrir árið 2025. Minni velta en fleiri viðskipti Í skýrslu stjórnar segir að á árinu 2025 hafi íslenski markaðurinn einkennst af háum vöxtum og áframhaldandi verðbólgu, en þátttaka markaðsaðila hafi engu að síður verið áfram mikil. Bent er á að hlutabréfavísitalan OMXI15 lækkaði um 2,08%, á meðan arðleiðrétta vísitalan OMXI15GI hækkaði um 0,4%. OMXIPI vísitalan lækkaði um 8,97% og arðleiðrétta OMXIGI vísitalan dróst saman um 5,93%, sem endurspeglar lakari heildarávöxtun hlutabréfa. Velta með hlutabréf nam alls 1.055 milljörðum króna, sem er 16% samdráttur frá árinu 2024, en fjöldi viðskipta jókst í 124.007 og var 28% meiri en árið áður. Heildarmarkaðsvirði hlutabréfa var 2.534 milljarðar króna í lok árs 2025, sem jafngildir 22% lækkun frá árslokum 2024. Kauphöllin segir eina nýskráningu á aðalmarkaðinn hafa átt sér stað í fyrra, þegar JBT Marel tók við af Marel. Aftur á móti var Play afskráð. Velta á skuldabréfamarkaðnum í fyrra nam 1.833 milljörðum króna og dróst saman um 1% frá árinu 2024. Viðmiðunavísitalan NOMXIBB hækkaði um 7,5% á árinu.