Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Hluta­bréf ISI hækka eftir upp­gjör

Read Full Article →

Hluta­bréf Iceland Sea­food International hækkuðu um 5,53% í Kaup­höllinni í dag og stóðu í 4,58 krónum við lokun markaða. Hækkunin kemur í kjölfar upp­gjörs félagsins fyrir fyrsta árs­fjórðung sem birt var í gær sem bar merki um áfram­haldandi viðsnúning í rekstri félagsins eftir erfið ár. Tekjur félagsins námu 146 milljónum evra á fyrsta árs­fjórðungi sem var um 22% aukning á milli ára. Fram­legð nam 13,1 milljón evra, reglu­bundin EBITDA 5,7 milljónum evra og reglu­bundinn hagnaður fyrir skatta 3,3 milljónum evra. Hagnaður tíma­bilsins nam 2,1 milljón evra sem er tvöfalt meiri hagnaður en í fyrra. Tólf mánaða rúllandi EBITDA hækkaði um 0,4 milljarða milli ára, í 3,3 milljarða frá 2,9 milljörðum á fyrsta ársfjórðungi 2025. Sjá einnig Hagnaður Iceland Seafood tvöfaldaðist Heildareignir námu 42,5 milljörðum í lok mars 2026, sem er hækkun um 5,3 milljarða frá sama tíma ári áður. Eigið fé nam 84,8 milljónum evra, eða um 12,2 milljörðum króna. Byggt á niðurstöðum fyrsta ársfjórðungs og áætlunum félagsins er afkomuspá ársins óbreytt frá ársbyrjun eða á bilinu 11,5 til 13,5 milljónir evra. Reitir hækkuðu um 2,56% og stóðu í 120 krónum. Við­skipti með bréf Reita námu 335 milljónum króna, næst­mest á markaði í dag. Eik hækkaði um 1,37%, Heimar um 1,12% og Síminn um 0,85%. Icelandair hækkaði einnig um 0,85% og stóð í 0,716 krónum við lokun. Festi hækkaði um 0,30% og Brim um 0,11%. Gengi JBT Marel lækkaði um 2,40% og Kaldalón um 1,49%. Síldar­vinnslan lækkaði um 0,87%, Ocu­lis um 0,54%, Kvika um 0,31%, Al­vot­ech um 0,24% og Ís­lands­banki um 0,14%. Úr­vals­vísi­talan OMXI15 lækkaði um 0,11% og stóð í 2.802,19 stigum við lokun markaða. Heildar­velta með hluta­bréf nam 2,3 milljörðum króna í 279 við­skiptum

Share this article