Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Stefna að upptöku evru

Read Full Article →

Innlent | mbl | 2.6.2026 | 15:19 Stefna að upptöku evru Daði Már flytur erindi sitt á ráðstefnunni í dag. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Engin töfralausn til í gjaldmiðlamálum Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu Röng túlkun ráðherra Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu » Fleiri tengdar fréttir Framtíð Íslands er best tryggð með nánari þátttöku í Evrópusamstarfinu. Ísland á að stefna að upptöku evru þegar skilyrði fyrir upptöku eru uppfyllt. Þetta kom fram í máli Daða Más Kristóferssonar, fjármála- og efnahagsráðherra, á ráðstefnu í Hörpu í dag í tilefni af útgáfu skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Frétt af mbl.is Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Áhætta í að sitja eftir með lítinn gjaldmiðil Daði segir áhættu fólgna í því að sitja eftir með lítinn gjaldmiðil í heimi þar sem völd stórra ríkja eða ríkjasambanda fara vaxandi. Hann segir skýrsluna mikilvægt framlag til góðrar og yfirvegaðrar umræðu um gjaldmiðlamál en leggur áherslu á að skýrslan hafi ekki að geyma neina beina tillögu. „Ákvörðunin er í eðli sínu pólitísk en líka lýðræðisleg og á endanum í höndum þjóðarinnar,“ segir Daði. Í erindi sínu segir Daði að ekki sé verið að ræða gjaldmiðlamál nú vegna þess að Ísland standi höllum fæti. Ekki sé verið að ræða mögulega upptöku evru vegna neyðar. Hún sé rædd vegna þess að við stöndum styrkum fótum og höfum alla burði til að horfa yfirvegað fram á veginn. Frétt af mbl.is Engin töfralausn til í gjaldmiðlamálum Rangt að láta eins og upptaka evru sé einföld lausn Daði segir spurninguna ekki vera hvort krónan hafi einhvern ávinning heldur hvort ávinningurinn vegi upp kostnaðinn, ekki aðeins í kreppum heldur að jafnaði yfir tíma. „Niðurstaða skýrslunnar bendir til þess að kostnaðurinn af krónunni sé umtalsverður, á sama tíma og geta hennar til að jafna sveiflur í hagkerfinu sé takmörkuð,“ segir Daði. Hann víkur að því að gengi krónunnar hafi stundum gegnt mikilvægu hlutverki í aðlögun þegar stór áföll hafa riðið yfir og segir að í litlu opnu hagkerfi geti gengið brugðist hratt við breyttum aðstæðum og hjálpað til við að endurheimta samkeppnishæfni þegar áfallið er mjög stórt. Frétt af mbl.is Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu Kveður ráðherrann þó að skýrslan minni okkur jafnframt á að þessi aðlögun sé ekki ókeypis og ekki alltaf eins einföld og stundum er látið í veðri vaka. Í erindi sínu undirstrikar Daði að umbætur á vinnumarkaði séu nauðsynlegar hvort sem Ísland heldur áfram með krónuna eða tekur upp evru. „Við getum ekki byggt upp stöðugleika til lengri tíma nema launaþróun, framleiðni og verðbólgumarkmið fari betur saman.“ Á sama tíma segir hann að rangt væri að láta eins og upptaka evru sé einföld lausn á öllum okkar málum. Hún komi ekki í stað ábyrgra opinberra fjármála og leysi ekki sjálfkrafa spennu á vinnumarkaði. Heldur hann því samt sem áður fram að evran geti tvímælalaust breytt umgjörðinni til betri vegar. Hún geti dregið úr gengisáhættu, lækkað viðskiptakostnað og skapað stöðugra umhverfi fyrir heimili og fyrirtæki. Frétt af mbl.is Röng túlkun ráðherra Ísland á krossgötum á ný Að mati Daða stendur Ísland á krossgötum og ekki í fyrsta skipti. Nefnir hann stofnun NATO árið 1949, varnarsamninginn við Bandaríkin 1951 og aðild Íslands að EFTA 1970 og EES 1993 í því sambandi. „Við þurfum að spyrja okkur. Er betra fyrir Ísland að standa utan Evrópusambandsins eða vera fullur þátttakandi í því samstarfi sem mótar okkar nánasta efnahagslega umhverfi? Ég tel svarið skýrt. Ísland á að vera virkur þátttakandi í Evrópusambandinu, Ísland á að hafa rödd þar sem reglurnar eru mótaðar og Ísland á að líta á upptöku evru sem hluta af þeirri stærri framtíðarsýn.“ Tengdar fréttir Ísland og ESB Beint: Valkostir Íslands í gjaldmiðlamálum Engin töfralausn til í gjaldmiðlamálum Getum ekki verið með bundið fyrir bæði augu Röng túlkun ráðherra Evruskýrslan án skýrrar niðurstöðu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Landsliðsmarkvörður á leið í Fossvoginn? Stefna að upptöku evru Áfram lækkar hlutabréfaverð Oculis Frá Liverpool til Madrídar Frederiksen heldur áfram um stjórnartaumana Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Skelfilega erfið mál“ Umræðan verið „óvægin, ósanngjörn og röng“ „Skjálftarnir malla áfram“ Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Markaðsvirði Oculis hrynur Margt á huldu um kjör flugmanna Icelandair Skýrt umboð til breytinga Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Landsliðsmarkvörður á leið í Fossvoginn? Stefna að upptöku evru Áfram lækkar hlutabréfaverð Oculis Frá Liverpool til Madrídar Frederiksen heldur áfram um stjórnartaumana Umræðan Af hverju er ESB svona vinsælt? Krónan kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Markaðsvirði Oculis hrynur Fólk vill „burt með þetta rugl“ Skýrt umboð til breytinga Nýjar loftmyndir sýna Ölfusárbrú taka á sig mynd Mest lesið Í gær Í vikunni Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Markaðsvirði Oculis hrynur Margt á huldu um kjör flugmanna Icelandair Skýrt umboð til breytinga Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nafn mannsins sem lést á Hólmsheiði Braut gegn stúlku sem lá á bráðamóttöku Mótmælendur öskruðu og blístruðu á þingheim Flugi Icelandair aflýst vegna mönnunarvanda Jafnlaunavottun lögð niður Kort: Hrinan á svæði þar sem líkur eru á gosupptökum „Ætlaði aldrei að eignast nýja vini“ Útskýring fengin á lágfluginu Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Grunnskólakennari sakaður um að maka saur Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Einn ráðherra á meðal launahæstu ríkisstarfsmanna Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað

Share this article