Innlent | mbl | 16.4.2026 | 11:57 Ísafjarðarflug tryggt til næstu fjögurra ára Flugvélin getur flutt 37 farþega í einu. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Vegagerðin og Icelandair hafa undirritað nýjan samning um áætlunarflug til Ísafjarðar sem gildir til fjögurra ára. Samkvæmt samningnum verður flogið að lágmarki 452 hringferðir á ári frá 1. september 2026 til 31. ágúst 2030. Heildarsamningsfjárhæð nemur 1,69 milljörðum króna. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair. Ferðum fækkað um tæp 30 prósent Fjöldi ferða samkvæmt samningnum er um 28,5 prósentum lægri en gert var ráð fyrir í upphaflegu útboði Vegagerðarinnar. Flugið til Ísafjarðar var boðið út fyrr á árinu og gerði Vegagerðin ráð fyrir að heildarkostnaður yrði um 1,3 milljarðar króna. Aðeins eitt tilboð barst, frá Icelandair, upp á rúma 3,5 milljarða króna. Vegagerðin hafnaði því tilboði en bauð félaginu til samningsviðræðna sem leiddu að lokum til samkomulags. Frétt af mbl.is Tóku tillit til áhættu í tilboðinu Flugáætlun breytileg eftir árstíma Samkvæmt samningnum verður flogið mismikið eftir árstíðum. Á veturna verður lágmarksfjöldi sjö ferðir á viku, níu ferðir á viku á vor- og haustmánuðum og tíu ferðir á viku yfir sumartímann frá maí til ágúst. Notast verður við Dash-8 flugvélar af gerðinni DHC-8-200 sem taka 37 farþega og hafa verið notaðar í Ísafjarðarflug um árabil. Mikilvægt fyrir Vestfirðinga Bergþóra Þorkelsdóttir, forstjóri Vegagerðarinnar, segir í fréttatilkynningu niðurstöðuna afar mikilvæga fyrir samgöngur á Vestfjörðum. „Við erum ánægð með að hafa náð þessum samningi enda ekki sjálfgefið að hægt væri að ná samkomulagi. Þessi niðurstaða er gríðarlega mikilvæg fyrir Vestfirðinga þar sem flugið er mjög mikilvægur þáttur í samgöngum fjórðungsins,“ segir hún. Bogi Nils Bogason og Bergþóra Þorkellsdóttir. Samsett mynd Sjá tækifæri í ferðamennsku Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair, segir í fréttatilkynningu félagið ánægt með að halda áfram flugi til Ísafjarðar. „Flugleiðin er mikilvæg fyrir íbúa á Vestfjörðum, en einnig teljum við tækifæri fólgin í því að þessi frábæri áfangastaður verði áfram aðgengilegur í sölu- og dreifikerfi okkar fyrir viðskiptavini okkar í Evrópu og Norður-Ameríku,“ segir hann. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Snýr aftur heim í Úlfarsárdalinn Þurfti að vinna úr fortíðinni áður en hann varð faðir Ítölsk veisla hafin í Krónunni Innkalla hamborgara vegna salmonellusýkingar Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax ESB? Nei takk! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað Óábyrgt að fara að lofa einhverju Mesta atvinnuleysi í mars síðan 2022 Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað „Ég mun ekki reka þannig pólitík“ Bandaríkjaher skoðar aðstæður í Narsarsuaq Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn Nýjast á mbl.is » Kann ekki að meta að vera sökuð um blekkingar Snýr aftur heim í Úlfarsárdalinn Þurfti að vinna úr fortíðinni áður en hann varð faðir Ítölsk veisla hafin í Krónunni Innkalla hamborgara vegna salmonellusýkingar Umræðan Það er svo margt hægt að gera strax ESB? Nei takk! Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Vinsælum veitingastöðum lokað Mesta atvinnuleysi í mars síðan 2022 Óábyrgt að fara að lofa einhverju Engin stemning fyrir flokkshroka Mest lesið Í gær Í vikunni Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Vinsælum veitingastöðum lokað Andlát: Svavar Sigmundsson Handtekinn við að þvo föt eftir árásina „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Engin stemning fyrir flokkshroka Hækkar byggingarkostnað „Ég mun ekki reka þannig pólitík“ Bandaríkjaher skoðar aðstæður í Narsarsuaq Andstaða við inngöngu snareykst milli ára Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Skaut föstum skotum á Ingu og uppskar klapp Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Loftbrú breytt peninganna vegna Hitinn allt að 10 stigum Sækir um eigið embætti eftir „leikritið“ í haust Óboðlegt að framkvæmdastjóri fari svona fram Stefán, Lúkas Geir og Matthías mættu í Landsrétt „Þá er mitt atkvæði að fara eitthvað annað“ Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Lýsir eftirsjá: „Börnin mín eiga ekki pabba núna“ Flugstjórinn meðal þeirra tekjuhæstu í flugbransanum Typpastækkun í Hafnarfirði orðin að lögreglumáli Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Lést eftir fall í Ölfusá Var hissa á eigin afboðun í Silfrinu Myndskeið sýnir frá handtöku ökumannsins Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum MAST og lögregla við Húsdýragarðinn