Nú er ljóst að gengið verður til þjóðaratkvæðagreiðslu í ágúst um hvort íslensk stjórnvöld eigi að hefja samningaviðræður við Evrópusambandið um aðild. Týr bendir á að Íslendingar hafi nú þegar full yfirráð yfir auðlindum sínum og telur því hálfgerða erindisleysu að senda Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur til Brussel til samningaviðræðna um slíkt. *** Framganga Þorgerðar Katrínar hefur vakið töluverða athygli að undanförnu. Þannig sakaði hún andstæðinga aðildar að Evrópusambandinu hér á landi um að stunda hræðsluáróður í anda talsmanna Brexit á sínum tíma í viðtali við breska blaðið The Guardian. Gott ef hún lýsti ekki einnig yfir áhyggjum af því að andstæðingar aðildar væru handbendi áróðursvéla rússneskra stjórnvalda. Til að lesa meira Hægt að er kaupa áskrift að Viðskiptablaðinu, Fiskifréttum og Frjálsri verslun hér. Verð frá 6.295 kr. á mánuði Kaupa áskrift