Innlent | mbl | 3.6.2026 | 6:00 Íslendingar í sérstakri stöðu en glata forskotinu Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands, telur að um ákveðna uppgjöf sé að ræða. mbl.is/Hákon Elínborg Una Einarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Íslenska „Þá er bara hægt að pakka saman og hætta þessu“ Gervigreindin eyðileggur fyrir lestri Njálu Gáfust upp á að leggja próf fyrir nemendur Orðskýringarnar orðnar óskiljanlegar Staðan gjörbreytt á einum áratug » Fleiri tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Hegðunar- og agavandamál áberandi Krefur Ragnar svara um niðurskurðinn „Það eru ansi margar spurningar sem vakna“ Gervigreindin eyðileggur fyrir lestri Njálu Gáfust upp á að leggja próf fyrir nemendur » Fleiri tengdar fréttir Halldór Laxness Staðan gjörbreytt á einum áratug Tuttugu og tveggja tíma upplestur Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár » Fleiri tengdar fréttir Ármann Jakobsson, prófessor í íslenskum bókmenntum fyrri alda við Háskóla Íslands og einn helsti sérfræðingur þjóðarinnar í Íslendingasögum, segir að einn daginn verði ef til vill alveg eins að kenna Íslendingum og útlendingum sögurnar. En það verði ekki góður dagur. Sjálfur kenndi hann í framhaldsskóla í sex ár en spurður út í þau tíðindi að meirihluti framhaldsskóla hafi dregið úr lestri íslendingasagna síðasta áratuginn og að þar af hafi um helmingur tekið Njálu af leslistum sínum, annað hvort í heild eða að hluta, segir hann: „Mín skoðun er sú að Íslendingasögur séu ekkert erfiðara lestrarefni en bara íslenskar skáldsögur frá fyrri hluta 20. aldar. Þannig að mér finnst ákveðin uppgjöf felast í þessu.“ Frétt af mbl.is Hætt að lesa Njálu í skólum landsins Auðveldara en Laxness Hann telur skáldsögur Halldórs Laxness til að mynda þyngri texta en Íslendingasögurnar sem hann telur á pari við verk rithöfunda á borð við Gunnar Gunnarsson og Svövu Jakobsdóttur. „Svo kennarar sem gefast upp á Íslendingasögunum eru í rauninni líka að gefast upp á þessum höfundum,“ segir Ármann. Hann efast ekki um áhrif styttingar framhaldsskólans í þessu samhengi en segir jafnframt að til þess að tryggja góða íslenskukennslu í framhaldsskólum þurfi kennarar að vera faglega sterkir. „Það er stundum deilt um það hvort þeir séu nógu faglega sterkir. Það væri mjög gott ef allir íslenskukennarar hefðu sótt námskeið, til dæmis í íslenskudeild Háskólans, eða að minnsta kosti í íslenskuáföngum menntavísindasviðs.“ Frétt af mbl.is „Ég held við séum að missa stjórn á þessu“ Framlag Íslands til heimsmenningarinnar Spurður af hverju það skipti máli að halda áfram að lesa sögur á borð við Njálu segir Ármann: „Mér finnst mjög eðlilegt að fólk þekki menningararfinn og Íslendingar eru í mjög sérstakri stöðu að því leyti að við eigum verk sem bara má líta á sem menningararf heimsins eins og Njáls sögu. Ég hef farið á ráðstefnur erlendis og hitt fólk sem er ekki sérfræðingar í Íslendingasögunum en hefur samt lesið Njálu. Það þykir bara eðlilegur hluti af menntun fólks sem er vel menntað. Þá þekkirðu hana alveg bara eins og Ilíonskviðu eða Hringadróttinssögu eða verk Charlotte Brontë eða Jane Austen. Þannig að mér finnst svolítið skrítið ef þjóð sem hefur alveg sérstaklega góðan aðgang að þessum verkum hættir að kenna þau.“ Frétt af mbl.is Þjóðin verður fátækari Eins að kenna útlendingum einn daginn Þá bendir Ármann á að á síðustu öld hafi skólakerfið og menntafrömuðir fært íslenska tungu markvisst nær íslenskunni sem finna má í fornsögunum til þess að koma fólki aftur í samband við fornöldina og textana sem þá voru ritaðir. „Ég teldi það mjög slæmt ef við myndum kasta þessu forskoti frá okkur.“ En hvaða þýðingu myndi það hafa fyrir Íslendinga ef við hættum að skilja og hættum að þekkja þennan menningararf sem Íslendingasögurnar eru? „Ég hef bæði kennt Íslendingasögur Íslendingum og útlendingum,“ segir Ármann. „Og einn daginn verður kannski bara eins að kenna Íslendingum þetta og útlendingum. En það er ekki góður dagur,“ segir Ármann. „Við höfum ákveðna nálægð, við skiljum ákveðna hluti en kannski kemur að því einhvern daginn að við skiljum þá ekkert lengur betur en aðrir.“ Lestu umfjöllunina í heild sinni: Frétt af mbl.is Staðan gjörbreytt á einum áratug Tengdar fréttir Íslenska „Þá er bara hægt að pakka saman og hætta þessu“ Gervigreindin eyðileggur fyrir lestri Njálu Gáfust upp á að leggja próf fyrir nemendur Orðskýringarnar orðnar óskiljanlegar Staðan gjörbreytt á einum áratug » Fleiri tengdar fréttir Skólakerfið í vanda Hegðunar- og agavandamál áberandi Krefur Ragnar svara um niðurskurðinn „Það eru ansi margar spurningar sem vakna“ Gervigreindin eyðileggur fyrir lestri Njálu Gáfust upp á að leggja próf fyrir nemendur » Fleiri tengdar fréttir Halldór Laxness Staðan gjörbreytt á einum áratug Tuttugu og tveggja tíma upplestur Mesta hrósið sem maður getur hugsað sér Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa Ekki fengið annað eins af fyrirspurnum í mörg ár » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Aðdáendur reyndu að klippa af henni hárið Hægviðri og víða skúrir Erfitt að glíma við ytri áföll Andlát: Steingrímur Ari Arason Seðlabankastjóri gagnrýnir skýrsluna Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Endurskoða Suðurlandsbraut strax Umræðan verið „óvægin, ósanngjörn og röng“ Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir „Krabbameinsgreindum er að fjölga“ Mest lesið Í gær Í vikunni Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Gáfust upp á að leggja próf fyrir nemendur Lögmaður kærður fyrir að draga sér talsvert fé Borgin eigi ekki að reka utanríkisstefnu Andlát: Margrét Jónsdóttir Láta vélmenni slá gras á Klambratúni Umfangsmiklir húsflutningar gengu vel Stefna að upptöku evru Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Nýjast á mbl.is » Aðdáendur reyndu að klippa af henni hárið Hægviðri og víða skúrir Erfitt að glíma við ytri áföll Andlát: Steingrímur Ari Arason Seðlabankastjóri gagnrýnir skýrsluna Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hegðunar- og agavandamál áberandi Hildur: „Fyrst og fremst spennt“ „Krabbameinsgreindum er að fjölga“ Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Mest lesið Í gær Í vikunni Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Gáfust upp á að leggja próf fyrir nemendur Lögmaður kærður fyrir að draga sér talsvert fé Borgin eigi ekki að reka utanríkisstefnu Andlát: Margrét Jónsdóttir Láta vélmenni slá gras á Klambratúni Umfangsmiklir húsflutningar gengu vel Stefna að upptöku evru Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt