Í aðsendri grein sem birt er í sjómannadagsblaði Fiskifrétta sem kom út í morgun, segir Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna, að spyrja ætti ESB áður en gengið verður til þjóðaratkvæðagreiðslu um hvort halda skuli áfram aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið hvort hægt sé að fá varanlega undanþágu frá fiskveiðistefnunni og frjálsu flæði fjármagns og fjárfestingum útlendinga í sjávarútvegi á Íslandi. „Sömu spurninga ætti að spyrja varðandi aðrar auðlindir okkar. Ef svar ESB er að ekki sé hægt að fá varanlegar undanþágur, um aldur og ævi, þannig að við Íslendingar ráðum áfram auðlindum okkar, þá er mitt svar skýrt að við ættum ekki að fara í þessa vegferð.“ Árni segir að ein af grunnstoðum ESB sé sameiginleg fiskveiðistefna (Common Fisheries Policy). Árni Sverrisson, formaður Félags skipstjórnarmanna. Sú stefna þýðir í einföldu máli að aðildarríki afsali sér sjálfsákvörðunarrétti sínum yfir fiskveiðum til ESB. Þar sé aflaheimildum úthlutað á grundvelli sögulegra veiðireynslu og samninga á milli ríkja. Það þýði að ef Ísland gengur í ESB, myndi þjóðin ekki ráða lengur yfir eigin fiskimiðum. Greinin í heild sinni er aðgengileg í sjómannadagsblaði Fiskifrétta sem kom út í morgun.