Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 9.7.2026 | 6:00 Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Höfuðstöðvar Evrópusambandsins. mbl.is/Sibba Andrés Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Ísland og ESB Ný skýrsla um stöðu Íslands birt á vef Áfram Ísland Ræða Ólafs Ragnars komin á Spotify Skuldaþróun skárri á Íslandi en í ESB ESB í besta falli að keppa í miðri annarri deild Nýr fræðsluvefur um upplýsingaöryggi » Fleiri tengdar fréttir Ríki sem ganga í Evrópusambandið (ESB) verða að lúta hinni sameiginlegu sjávarútvegsstefnu þess. Þetta staðfesti Rob Jetten forsætisráðherra Hollands í sérstakri umræðu í neðri deild hollenska þingsins í liðnum mánuði, þar sem hann var spurður út í möguleika á því að Ísland fengi undanþágur á sviði sjávarútvegs í aðildarviðræðum. Samkvæmt því gæti Ísland því ekki orðið fullgildur aðili að ESB og haldið óbreyttu forræði yfir sjávarútvegi eða staðið utan fiskveiðistefnunnar. Þingmaðurinn Michiel Hoogeveen vakti í umræðunni, sem fram fór 16. júní, máls á ummælum Costas Kadis sjávarútvegsstjóra ESB um hugsanlegt svigrúm fyrir Ísland í aðildarviðræðum. Þingmaðurinn þurfti að ganga eilítið á eftir svari, þar sem Jetten kvaðst fyrst ekki vilja blanda sér í aðildarmál Íslands; Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra hefði beðist undan hvers kyns afskiptum af aðildarferlinu. Þá spurði Hoogeveen hvort afstaða hollensku ríkisstjórnarinnar væri ekki örugglega sú að sameiginlega fiskveiðistefnan stæði óhögguð og að ríki sem vildi fulla aðild að ESB yrði að undirgangast hana. Jetten staðfesti það mjög stuttaralega: „Rétt, já.“ Þingmaðurinn rakti að framkvæmdastjórn ESB hefði þegar ýjað að undanþágum fyrir Ísland, áður en Íslendingar hefðu samþykkt að hefja viðræður að nýju, og spurði hvað þá yrði eftir af sameiginlegri stefnu sambandsins og hvað ætti að segja hollenskum sjómönnum, sem væru bundnir af stefnu ESB. Rob Jetten forsætisráðherra Hollands. AFP Hann lagði jafnframt fram tillögu um að sjávarútvegsstefnan, þar með taldar reglur um aðgang að fiskimiðum, yrði áfram óaðskiljanlegur hluti regluverks ESB í aðildarviðræðum. Hún var samþykkt með 146 atkvæðum af 150. Hvað sagði Kadis? Málið á sér nokkurn aðdraganda. Kadis kom til Íslands í apríl og kvaðst reiðubúinn að opna sjávarútvegskafla aðildarviðræðna um leið og þær hæfust. Hann sagði ekkert um undanþágur, en gaf þó til kynna að þær væru ekki óhugsandi: „Aðildarviðræður eru raunverulegar samningaviðræður.“ Breska blaðið Financial Times hafði síðar eftir Kadis 23. apríl að ESB væri opið fyrir undanþágum eða sérlausnum vegna Íslands, en deilt var um hvort þar ætti hann við varanlegar undanþágur eða tímabundna aðlögun og afmarkaðar sérlausnir. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra gekk þó lengra í viðtali á dögunum. Þá sagði hún Kadis sjávarútvegsstjóra hafa „beinlínis stafað það ofan í okkur“ að unnt væri að finna sérlausnir og „draga fram varanlegar undanþágur“. Ummæli Kadis eða túlkun þeirra vöktu jafnframt hörð viðbrögð í írskum sjávarútvegi. Aodh O’Donnell, framkvæmdastjóri írsku fiskframleiðendasamtakanna, sagði Íra verða að krefjast sömu réttinda og Íslendingum kynnu að bjóðast. Ekki gætu gilt einar reglur um Ísland en aðrar um sjávarútvegsþjóðir sem þegar væru innan sambandsins. Nánar má lesa um málið á bls.6 í Morgunblaðinu í dag Tengdar fréttir Ísland og ESB Ný skýrsla um stöðu Íslands birt á vef Áfram Ísland Ræða Ólafs Ragnars komin á Spotify Skuldaþróun skárri á Íslandi en í ESB ESB í besta falli að keppa í miðri annarri deild Nýr fræðsluvefur um upplýsingaöryggi » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Skiptast á árásum í baráttunni um Hormússund Besta veðrið á Austurlandi Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Ætla að skoða ný tækifæri með íbúunum Brúðkaupsdagurinn fór fram úr björtustu vonum Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Sama hvað það kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Lögregla óskar eftir að ná tali af tveimur mönnum Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ Straumurinn hlýtur að liggja austur Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Fá gefins pylsu ef henni er stolið „Það er á milli Grænlands og Danmerkur“ Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn Myndir: Aðgerðir gengu vel við Þjórsá Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu Nýjast á mbl.is » Skiptast á árásum í baráttunni um Hormússund Besta veðrið á Austurlandi Fiskveiðistefna ESB ófrávíkjanleg Ætla að skoða ný tækifæri með íbúunum Brúðkaupsdagurinn fór fram úr björtustu vonum Umræðan Vatnið er jafn blautt hinum megin lækjar Sama hvað það kostar Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Árásarmaðurinn 16 ára: Tvær stúlkur særðar „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ Ætla að skoða ný tækifæri með íbúunum Að minnsta kosti tveir að verki Mest lesið Í gær Í vikunni Býst ekki við því að hótelið rísi „Hækkum í raun bara af illri nauðsyn“ Fá gefins pylsu ef henni er stolið „Það er á milli Grænlands og Danmerkur“ Jón fær ekki krónu þrátt fyrir uppsögn Myndir: Aðgerðir gengu vel við Þjórsá Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu „Það er náttúrulega erfitt að hemja sig“ Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hafa ákveðið að loka í Norræna húsinu Andlát: Þrúður Vilhjálmsdóttir Austurlandið klárt í hitabylgju Málið rannsakað sem hatursglæpur Aðeins ein íslensk vændiskona í hópnum Skapar óviðunandi hættuástand Máluðu íslenska fánann yfir regnbogafánann Sjálfstæðismenn klofnuðu við ráðningu bæjarstjóra Vinafólk hjónanna kom að þeim í tjaldinu Náði að koma sér upp á bílinn í ánni Var á göngu með syni sínum Stöðvaðir 1.500 metrum frá landi Myndskeið: Trump snarsneri sér að Kristrúnu Nálgunarbanns krafist Hitabylgja á Austurlandi um næstu helgi Líkir ríflega 75 afbókunum við skemmdarverk Einn ákærðra fékk ríkisborgararétt eftir mótmæli Hviður geta náð 30 metrum á sekúndu

Share this article