Innlent | mbl | 5.6.2026 | 17:24 Uppsöfnuð spenna upptökin en ekki kvikuinnskot Jörðin gliðnaði um allt að tvo og hálfan metra í Grindavíkurbæ 10. nóvember 2023. Í kjölfarið var bærinn rýmdur. mbl.is/Eggert Jóhannesson Ólafur Pálsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Dregið mjög úr virkni „Skjálftarnir malla áfram“ Rúmlega 1.100 skjálftar: Dregið hefur úr virkninni „Þó að einn fótboltaleikur sé búinn þá byrjar annar“ » Fleiri tengdar fréttir Ný rannsókn alþjóðlegs hóps jarðvísindamanna gerir ráð fyrir að langtíma uppsöfnun spennu á flekamótum Norður-Ameríkuflekans og Evrasíuflekans drífi áfram eldsumbrot á Reykjanesskaga fremur en að upptök skjálftanna marki leið kviku sem sé að ryðja sér leið um skorpuna. Þorvaldur Þórðarson prófessor í eldfjallafræði, Halldór Geirsson prófessor í jarðeðlisfræði og Gregory De Pascale dósent í jarðfræði við Jarðvísindadeild Háskóla Íslands unnu meðal annarra að rannsókninni sem er byggð á umfangsmiklum mælingum á Reykjanesskaga frá 2021 til 2025. Eldgosin við Sundhnúkagíga komu flest upp á mjög afmörkuðu svæði á um 500 metra langri sprungu milli Stóra-Skógfells og Sýlingarfells. mbl.is/Árni Sæberg Frétt af mbl.is „Þó að einn fótboltaleikur sé búinn þá byrjar annar“ Gliðnun, misgengi og kvika vinna saman á flekamótunum Þorvaldur segir jarðskorpuna hafa gliðnað um næstum fjóra metra á tímabilinu, þar af um allt að tvo og hálfan metra 10. nóvember 2023, þegar Grindavíkurbær var rýmdur. Hann segir í samtali við mbl.is að gliðnun, misgengi og kvika vinni saman á flekamótunum. Í upphafi samtalsins rekur Þorvaldur varnagla sem við höfum séð rekinn iðulega undanfarið þegar hann útskýrir að vísindamenn séu ekki allir sammála um hvað hafi gerst á Reykjanesskaga frá 2021 og að það sé fullkomlega eðlilegur hluti af vísindunum. Hann segir að þó allir vísindamenn vinni með sömu gögnin sem safnað geti túlkanir á þeim verið ólíkar, m.a. vegna þess að unnið er með afleiddar mælingar, þ.e. ekki sé verið að mæla beint það sem sé að gerast. Að mati Þorvaldar er einn stærsti lærdómurinn af atburðarásinni að óvissan sé enn mikil og að enginn hafi endanleg svör um nákvæmlega hvað sé að gerast undir yfirborðinu. Segir hann mikilvægt að vísindamenn ræði saman og reyni að tala sig inn á túlkun sem allir geti fylgt. Frétt af mbl.is 27 milljónir rúmmetra af kviku undir Svartsengi Verið teygð í 800 ár Rannsóknin gagnrýnir þá túlkun sem Veðurstofa Íslands hefur gengið út frá um að upptök skjálftanna marki leið kviku sem sé að ryðja sér leið um skorpuna. Þorvaldur segir að því samkvæmt myndi skjálftahrinan í nóvember 2023 benda til þess að kvika sé til staðar undir stórum hluta svæðisins. Gögnin bendi frekar til þess að fyrst hafi orðið sniðgengishreyfingar, þar sem jarðskorpuflekarnir hliðrist lárétt hvor fram hjá öðrum og síðar hafi þróunin færst yfir í gliðnun, þar sem skorpan hafi opnast. Rannsóknin gerir ráð fyrir að þær miklu sprungumyndanir og sig sem varð í Grindavík hafi fyrst og fremst verið afleiðing þess að plötuskilin hafi brotnað. „Þau eru að brotna vegna þess að það er búið að vera að teygja þau í 800 ár. Það sem gerðist 2021 er að þá ertu búinn að koma teygjunni alveg í hámark nokkurn veginn og þá kemur þetta kvikuinnskot undir Fagradalsfjall. Það í raun og veru ýtir aðeins á teygjuna og það er bara nóg til þess að teygjan brestur,“ segir Þorvaldur. Túlkun rannsakenda er því að kvikan sé afleiðing fremur en orsök hreyfinganna. Þorvaldur bendir á að það samræmist því að eldgosin við Sundhnúkagíga komu flest upp á mjög afmörkuðu svæði á um 500 metra langri sprungu milli Stóra-Skógfells og Sýlingarfells. Töluvert meiri kvika vall upp úr iðrum jarðar við upp haf fyrsta gossins á Sundhnúkagígum í lok árs 2023 en í gosunum þar á undan. Kort/mbl.is Frétt af mbl.is Fimm ár liðin frá fyrsta gosinu í um 800 ár Lítið kvikuinnskot hreyfir ekki plötuskilin Að endingu setur Þorvaldur hreyfingar flekaskilanna á Íslandi í stærra samhengi. „Þetta er náttúrulega kannski annar stóri punkturinn í þessu. Hreyfingarnar hér á Íslandi, að vesturhluti landsins sé að fara í vestur og austurhlutinn að fara í austur og við erum með flekaskil hérna yfir landið sem veldur allri þessari eldvirkni, er afleiðing af miklu miklu stærri ferlum heldur en einhverju kvikuinnskoti í grunnri skorpunni á Íslandi. Það getur eiginlega ekki verið neitt annað en möttulstraumarnir sem keyra þetta áfram. Það hlýtur að vera flæði í möttlinum. Lítið kvikuinnskot á Íslandi er ekkert að fara að hreyfa þessi plötuskil. En þetta er náttúrulega hluti af sama ferlinu og að skilja hvað er að gerast hér hjálpar okkur að skilja stærri myndina. Það er það sem er lykilatriði í þessu.“ Tengdar fréttir Eldvirkni á Reykjanesskaga Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Dregið mjög úr virkni „Skjálftarnir malla áfram“ Rúmlega 1.100 skjálftar: Dregið hefur úr virkninni „Þó að einn fótboltaleikur sé búinn þá byrjar annar“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Myndband: Eyjólfur hífður upp með þyrlu Gæslunnar Faldi sig á bak við runna eftir stefnumót Úkraína - Ísland, staðan er 0:1 Þorvaldur segir kvikugang ekki upptök skjálftanna Myndir: Fjöldi fólks tók á móti Söru Björk Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Þeir sem ekki eru verst settir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Verið að svíkja öll loforð“ Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Þorvaldur segir kvikugang ekki upptök skjálftanna Staðfest að samræði við 13 ára væri nauðgun Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Andlát: Þórir Lárusson Ekki frá höfundum komið Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Lést við barnsburð á Landspítalanum Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nýjast á mbl.is » Myndband: Eyjólfur hífður upp með þyrlu Gæslunnar Faldi sig á bak við runna eftir stefnumót Úkraína - Ísland, staðan er 0:1 Þorvaldur segir kvikugang ekki upptök skjálftanna Myndir: Fjöldi fólks tók á móti Söru Björk Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Þeir sem ekki eru verst settir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Fór ráðuneytið á svig við siðareglur ríkisstjórnar? Sakborningur sendi yfirlýsingu vegna umfjöllunar Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna Um 300 þegar fengið viðvörun „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Sextán ára stúlka grunuð um líkamsárás í Firði Þuklaður á Íslandi en ekki í Róm Andlát: Þórir Lárusson Ekki frá höfundum komið Efni í stóran skjálfta nærri höfuðborgarsvæðinu Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Lést við barnsburð á Landspítalanum Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga