Innlent | mbl | 3.6.2026 | 15:30 Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Tugir brotamanna með engin tengsl við Ísland afplána dóma hér á landi. mbl.is/Eyþór Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Undirbúningur er hafinn hjá Fangelsismálastofnun og heimferðar- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra við brottflutning erlendra brotamanna úr landi sem geta nú fengið reynslulausn þegar einn þriðji hluti refsitíma þeirra er liðinn, með breytingum á lögum um fullnustu refsinga sem samþykkt voru á Alþingi mánudag. Með því losnar um tugi rýma í íslenskum fangelsum og biðtími eftir afplánun styttist sem því nemur. Um er að ræða bráðabirgðaákvæði sem gildir til 1. júlí árið 2027 og tekur til allra þeirra dóma sem kveðnir hafa verið upp fram að gildistöku ákvæðisins, þar til það fellur úr gildi á næsta ári. Frétt af mbl.is Erlendir fangar eru í meirihluta Fara ekki aftur út í samfélagið hér „Þetta er heimild fyrir Fangelsismálastofnun til að veita reynslulausn eftir einn þriðja af refsitímanum gegn því að þeir sæti brottvísun tafarlaust,“ segir Ragna Bjarnadóttir fangelsismálastjóri í samtali við mbl.is. „Það er fjöldi erlendra brotamanna í íslenskum fangelsum sem hafa engin tengsl við landið. Við horfum í að það séu nokkrir tugir sem muni falla undir það á næstunni. Við erum í samtali við Útlendingastofnun og heimferðar- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra. Við erum byrjuð að undirbúa þetta, þannig við getum þegar farið að taka ákvarðanir um þá sem þegar liggur fyrir ákvörðun Útlendingastofnunar um brottvísun,“ útskýrir hún, en yfir sextíu brotamenn með erlent ríkisfang afplána dóma í fangelsum hér á landi. Það er Fangelsismálastofnunar að taka ákvörðun um það hverjir fá reynslulausn með þessum hætti og ríkislögreglustjóra að framkvæma brottvísun. Hve hratt ferlið gengur fyrir sig er háð því gengur að skipuleggja flutningana, en Ragna segir málið í forgangi. „Þetta snýst um að viðkomandi fari ekki aftur út í samfélagið hérna á Íslandi heldur fari strax í þetta ferli, með endurkomubanni.“ Frétt af mbl.is Kostnaður eykst vegna fjölda erlendra fanga Rjúfa kyrrstöðu Ákvörðun Útlendingastofnunar fylgir endurkomubann annað hvort til Íslands eða inn á Schengen-svæðið, eftir atvikum. „Ef viðkomandi er utan Schengen-svæðisins mun endurkomubannið snúast um endurkomu inn á svæðið, en ef viðkomandi er með dvalarleyfi eða er ríkisborgari einhvers Schengen-ríkis þá má ekki koma aftur til Íslands.“ Ragna segir skipta gríðarlega miklu máli að hægt sé að létta á fangelsiskerfinu með þessum hætti. „Það er ekkert leyndarmál að fangelsiskerfið hefur verið undir yfirálagi mjög lengi. Þetta er ein aðgerð af mörgum sem þarf að grípa til fangelsismálum, en þetta vissulega skiptir máli.“ Í tilkynningu á vef Stjórnarráðsins segir að lagabreytingarnar séu liður í áframhaldandi vinnu ráðuneytisins við að styrkja fullnustukerfið og bregðast við stöðu fangelsismála. Unnið sé að fjölgun afplánunarrýma en auk þess verði lögð áhersla á að nýta betur heimildir til að flytja erlenda fanga til afplánunar í heimaríki. Haft er eftir dómsmálaráðherra að verið sé að rjúfa kyrrstöðu síðasta áratugar í fangelsismálum „Þessi tímabundna aðgerð hefur áhrif strax, léttir á fangelsiskerfinu og tryggir að plássin nýtist betur fyrir þá sem eiga að afplána refsingu hér á landi ,“ er haft eftir ráðherra. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Stjóraleit Lundúnafélagsins hafin Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Rískúlur sumarsins komnar í verslanir: Hvaða bragð er af þeim? Signý tekin við stjórnarformennsku hjá Deloitte Verðlaunuð fyrir „persónulega og pólitíska“ bók Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hegðunar- og agavandamál áberandi Tuttugu ára tilmæli til ráðuneytisins enn í gildi „Krabbameinsgreindum er að fjölga“ Stjórnin „gjörsamlega að taka þetta mjög alvarlega“ Mest lesið Í gær Í vikunni Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Andlát: Steingrímur Ari Arason Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Fjárdráttur upp á 12,5 milljónir til rannsóknar Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans Þórunn klökknaði er hún kvaddi Áslaugu Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Áslaug Arna hættir á Alþingi Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Stjóraleit Lundúnafélagsins hafin Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Rískúlur sumarsins komnar í verslanir: Hvaða bragð er af þeim? Signý tekin við stjórnarformennsku hjá Deloitte Verðlaunuð fyrir „persónulega og pólitíska“ bók Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ásgeir: Skrýtin nálgun í pappírnum Stjórnin „gjörsamlega að taka þetta mjög alvarlega“ Meiri svartsýni í fréttum en raunveruleikinn sýnir Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Mest lesið Í gær Í vikunni Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Andlát: Steingrímur Ari Arason Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Fjárdráttur upp á 12,5 milljónir til rannsóknar Fara í vegagerð vegna sólmyrkvans Þórunn klökknaði er hún kvaddi Áslaugu Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Áslaug Arna hættir á Alþingi Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað