Innlent | mbl | 4.6.2026 | 23:40 Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn Í hópi þeirra fanga sem stendur til að flytja úr landi eru burðardýr í meirihluta. mbl.is/Eggert Jóhannesson Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Flestir þeirra tíu erlendu brotamanna sem Fangelsismálastofnun og heimferðar- og fylgdardeild ríkislögreglustjóra undirbúa nú að flytja úr landi, afplána dóma fyrir fíkniefnainnflutning og voru svokölluð burðardýr. Bæði er um að ræða konur og karla og er aldursbilið breitt, að sögn forstjóra Fangelsismálastofnunar. Brotamennirnir eru langflestir með evrópskt ríkisfang og enginn þeirra hefur nein tengsl við Ísland. Með breytingum á lögum um fullnustu refsinga, sem samþykktar voru á Alþingi á mánudag, er nú hægt að veita erlendum brotamönnum reynslulausn eftir að einn þriðji hluti refsitíma þeirra er liðinn, ef Útlendingastofnun hefur þegar staðfest brottvísun þeirra. Eru þeir þá fluttir tafarlaust úr landi og sæta endurkomubanni til landsins eða inn á Schengen-svæðið, eftir atvikum. Um bráðabirgðaákvæði er að ræða sem gildir til 1. júlí 2027 og nær til allra þeirra dóma sem hafa verið kveðnir upp fram að gildistöku ákvæðisins, þangað til það fellur úr gildi á næsta ári. Frétt af mbl.is Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Heimild en ekki skylda Um 20 brotamenn afplána dóma í fangelsum hér á landi sem hafa staðfesta brottvísun, eða um tíu til viðbótar við þá sem nú þegar er farið að undirbúa að flytja úr landi. Engir dómar eða brotaflokkar eru undanskildir og getur því ákvæðið einnig náð til þeirra sem afplána dóma fyrir manndráp, nauðganir eða alvarlegar líkamsárásir. Ragna Bjarnadóttir forstjóri Fangelsismálastofnunar segir koma til greina að brotamenn með þunga dóma fái reynslulausn eftir að einn þriðji af refsitímanum er liðinn, en ekki hafi enn verið tekin ákvörðun um það. „Þetta er heimild fyrir stofnunina, þetta er ekki skylda, þannig ég get ekki svarað því núna hvernig fer um öll þau mál en þetta verður skoðað,“ segir Ragna í samtali við mbl.is. Hvert og eitt tilfelli verður metið að sögn Rögnu, en hún getur ekki sagt til um það hvað er sérstaklega skoðað við matið. Frétt af mbl.is Erlendir fangar eru í meirihluta Frjálsir ferða sinna Brotamennirnir fara ekki úr landi sem fangar og verða þeir því frjálsir ferða sinna í heimalandinu eftir brottflutninginn. Ragna segir það eitt af því sem verður horft til við matið. „Það þarf að fara fram heildstætt mat og svo er það hlutverk Útlendingastofnunar að leggja mat á hinn þáttinn, hvort skilyrði til brottvísunar séu fyrir hendi.“ Alls afplána í dag um sextíu brotamenn með erlent ríkisfang dóma í íslenskum fangelsum. Frétt af mbl.is Kostnaður eykst vegna fjölda erlendra fanga Frétt af mbl.is 234 dómar fyrnst vegna skorts á plássi Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Jiu-jitsu-þjálfari tók flugdólg til bæna Eiginkona Gísla birti hjartnæma mynd Opnunardagurinn skilaði 18 löxum Umræðan Evran er ekki töfralausn Hvíl í friði, jafnlaunavottun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Græðir ekkert á því að mjólka dauða belju“ Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn Fór ráðuneytið á svig við siðareglur ríkisstjórnar? Mat ráðuneytis annað en höfunda Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Jiu-jitsu-þjálfari tók flugdólg til bæna Eiginkona Gísla birti hjartnæma mynd Opnunardagurinn skilaði 18 löxum Umræðan Evran er ekki töfralausn Hvíl í friði, jafnlaunavottun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Fór ráðuneytið á svig við siðareglur ríkisstjórnar? Friðuðu húsi verður ekki breytt Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Brotamenn með þunga dóma gætu fengið reynslulausn Mest lesið Í gær Í vikunni Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað