Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Minnast Jörundar Hilmarssonar með ráðstefnu

Read Full Article →

Innlent | mbl | 3.6.2026 | 23:05 Minnast Jörundar Hilmarssonar með ráðstefnu Jörundar Garðars Hilmarssonar, samanburðarmálfræðings og eins helsta tokkarískufræðings heims, verður minnst með ráðstefnu í Háskólanum í Vilníus í Litáen um helgina. Ljósmynd/Úr einkasafni Setja bókamerki Komandi helgi, 5. til 6. júní, stendur Háskólinn í Vilníus í Litáen fyrir ráðstefnunni „Faldar brýr, endurfundnir slóðar – Ísland – Litáen í tímans rás“ í minningu Jörundar Garðars Hilmarssonar málfræðings, sem hefði orðið áttræður í mars á þessu ári, en Jörundur féll frá langt fyrir aldur fram árið 1992. Annað tilefni ráðstefnunnar er að í ár eru 35 ár síðan Ísland og Litáen tóku upp stjórnmálasamband en Ísland varð árið 1991 fyrst ríkja heimsins til að viðurkenna Eystrasaltsríkin Eistland, Lettland og Litáen sem sjálfstæð ríki í kjölfar falls Sovétríkjanna. Titill ráðstefnunnar á ensku er „Hidden Bridges, Rediscovered Paths: Iceland – Lithuania Through Time“ en tungumál ráðstefnunnar er enska. Í tilkynningu frá skólanum kemur fram að Jörundur hafi lagt gjörva hönd á plóg við uppbyggingu menningar- og stjórnmálatengsla landanna og hafi hann haldið fyrstu málstofuna sem haldin var um íslenska tungu við Háskólann í Litáen og að sama skapi fyrstu málstofu um litáísku við Háskóla Íslands. Eins varð Jörundur fyrstur íslenskra þýðenda til að þýða bók af litáísku og íslensku og varð fyrsti heiðursræðismaður Litáens á Íslandi. Guðni Th. flytur opnunarerindið Opnunarfyrirlestur ráðstefnunnar heldur Guðni Th. Jóhannesson, prófessor í sagnfræði við Háskóla Íslands og fyrrverandi forseti, og ber erindi hans yfirskriftina „Morality and Expediency: Icelandic-Lithuanian Relations, 1918–1988“ eða „Siðferði og hagkvæmni: Íslensk-litáísk tengsl, 1918–1988“ en auk Guðna hafa átta gestafræðimenn frá Íslandi, Noregi, Litáen og Taívan framsögu á ráðstefnunni sem Harald Aspelund, sendiherra Íslands fyrir Litáen, með aðsetur í Helsinki í Finnlandi, opnar formlega. Á ráðstefnunni verður sýning listakonunnar Þorgerðar Jörundsdóttur dóttur Jörundar, „Samtvinnaðir raunveruleikar“, eða „Intertwined Realities“ einnig opnuð formlega. Jörundur hóf nám á því sviði sem varð hans sérgrein, indóevrópskri samanburðarmálfræði, við Háskólann í Ósló árið 1966 og lauk þaðan magistersprófi árið 1977. Gömlu indóevrópsku málin voru honum hugleikin, einkum tokkaríska. Lauk hann doktorsprófi frá Háskólanum í Leiden í Hollandi og ritaði þar rúmlega 400 blaðsíðna doktorsritgerð um álitamál í tokkarískri hljóðkerfís- og beygingarfræði sem var hans sérsvið. Skrifaði Halldór Ármann Sigurðsson prófessor í minningargrein um Jörund árið 1992 að menn kunnugir fræðunum fullyrtu að Jörundur hefði verið á meðal mestu tokkarískufræðinga í heiminum, ef ekki fremstur þeirra allra. „Enginn vafi er á að Jörundur hefði getað valið úr kennslu- og rannsóknarstörfum við ýmsar af fremstu háskóladeildum heimsins í samanburðarmálfræði, en hann kaus þó að starfa hér heima, við rýran bókakost og lítinn viðurgerning Háskóla íslands,“ skrifaði Halldór enn fremur. Jörundur var stundakennari við Háskóla Íslands með hléum árin 1974 til 1985, styrkþegi við Alexander von Humboldt-stofnunina í Þýskalandi 1979–1981 og aftur 1988 og varð dósent í almennum málvísindum við HÍ 1. júlí 1989. Vytautas Landsbergis, þáverandi forseti Litáens, skrifaði einnig eftir Jörund og sagði í minningargrein sinni að fyrir brennandi áhuga hans og þekkingu á litáísku hafi skáldsaga Kazys Boruta, Myllan á Barði , verið lesin og dáð á hinu fjarlæga Íslandi. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Vill að höfnin verði bætt hraðar Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Gríðarlega krefjandi að sjá um Schumacher SpaceX stefnir á að safna 9.200 milljörðum „Þetta er ekki forseti sem sefur“ Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tuttugu ára tilmæli til ráðuneytisins enn í gildi Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Kannast ekki við ósk lögreglunnar um myndskeið Evruskýrslan „segir bara hálfa sögu“ Mest lesið Í gær Í vikunni Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Áslaug Arna hættir á Alþingi Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Nýjast á mbl.is » Vill að höfnin verði bætt hraðar Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Gríðarlega krefjandi að sjá um Schumacher SpaceX stefnir á að safna 9.200 milljörðum „Þetta er ekki forseti sem sefur“ Umræðan 200 mílurnar mótuðu hagsæld þjóðarinnar Með 5% hlutdeild í einum alþingismanni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak „Eins og alheimurinn hafi ákveðið þetta fyrir okkur“ Íslenski fáninn dreginn að húni við Ráðhúsið Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Mest lesið Í gær Í vikunni Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Andlát: Margrét Jónsdóttir Margir kvarta undan tvöfaldri rukkun Mennirnir ekki tengdir fjölskylduböndum „Reta er bara Ozempic á sterum“ Segir lyfin geta dregið fólk til dauða Stefna að upptöku evru „Skelfilega erfið mál“ Í tísku að fara í sund í nærbuxunum Tveir skólar sameinast í haust Vilja grafa upp bein Jónasar Hallgrímssonar Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Andlát: Margrét Jónsdóttir Áslaug Arna hættir á Alþingi Boðar fjöldaúrsagnir úr flokknum Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað

Share this article