Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Læknir og dýralæknir rífa í stálið í Litáen

Read Full Article →

Innlent | mbl | 14.6.2026 | 13:00 Læknir og dýralæknir rífa í stálið í Litáen Auðunn Jónsson og Hinrik Pálsson eru tveir þriggja þjálfara Kraftlyftingasambands Íslands á HM í Litáen en þriðji þjálfarinn, Garðbæingurinn og stálfraukan Laufey Agnarsdóttir, var ekki mætt til leiks þegar myndin var tekin í dag. Ljósmynd/Aðsend Atli Steinn Guðmundsson [email protected] Setja bókamerki „Við verðum hérna í rúma viku og erum með sjö íslenska keppendur, sá fyrsti keppir á morgun, hún Kristrún Ingunn [Sveinsdóttir], læknirinn okkar nýútskrifuð,“ segir hinn margreyndi kraftlyftingajötunn Auðunn Jónsson í samtali við mbl.is frá Druskininkai í Litáen en Auðunn er einn þriggja þjálfara íslenska keppnisliðsins á heimsmeistaramótinu í klassískum kraftlyftingum sem þar hófst í dag og stendur í rúma viku. Hrein veisla er fram undan á litáískri grundu þar sem Ísland teflir fram sínum öflugustu mönnum og konum í stálinu en líklega er hér um tímamótakeppni að ræða þar sem íslenski hópurinn skartar hvort tveggja lækni og dýralækni, áðurnefndri Kristrúnu og Borgfirðingnum hrikalega Kristínu Þórhallsdóttur dýralækni og nýbökuðum Evrópumeistara síðan í St. Julians á Möltu í mars þar sem Kristín lyfti samanlagt 567,5 kílógrömmum og er ekki hennar fyrsti Evrópumeistaratitill þar sem það varð hún einnig árið 2021 í Västerås í Svíþjóð með 560 kg í samanlögðu. Frétt af mbl.is Evrópumeistarinn æfir í hlöðunni heima hjá sér Aðrir íslenskir keppendur næstu vikuna í Druskininkai eru: Hanna Jóna Sigurjónsdóttir í +84 kg flokki Þorbjörg Matthíasdóttir í sama flokki Friðbjörn Bragi Hlynsson í -83 kg flokki Alexander Örn Kárason í -105 kg Helgi Jón Sigurðsson í -120 kg Sjö keppendur sem gefa allt fyrir land og þjóð, sumir í rimmu við gallharða andstæðinga en mótið er fjölmennt, 350 manns, segir Auðunn og allt að 50 manns í sumum þyngdarflokkum. Lawrence meidd – dýralæknirinn til alls líklegur „Kristínu hefur gengið mjög vel undanfarið og hún glímir ekki við nein meiðsli núna, á ýmsu hefur gengið þar,“ segir Auðunn og flytur góðar fréttir sem bárust bara í gær. „Heimsmeistarinn undanfarin ár, Amanda Lawrence frá Bandaríkjunum sem hefur dálítið átt – 84 kg flokkinn í fimm-sex ár, keppir ekki á þessu móti, hún er meidd í læri, þannig að þar opnast góður möguleiki fyrir Kristínu, reyndar kemur ein gríðarlega öflug frá Nýja-Sjálandi, Karlina Tongotea, sem hefur verið í flokknum fyrir neðan en er núna búin að þyngja sig upp um flokk og hefur verið mikil keppni milli hennar og Amöndu. Þannig að Kristín losnar við eina þarna en fær aðra í staðinn,“ segir Auðunn spenntur. Hann segir íslenska liðið geysiöflugt og nefnir þar bæði Helga Jón, sem nú keppir í fyrsta sinn í opnum flokki auk þyngdarflokksins, og Alexander Örn sem nú er nýkominn upp úr 93 kg flokki og að sögn Auðuns í gríðarlegum bætingaham. „Hann er nýbúinn að stúta Íslandsmetinu hans Viktors [Samúelssonar] og er í svakalegri bætingu þannig að það verður mjög gaman að fylgjast með hvað hann gerir,“ segir Auðunn en Viktor hefur veitt mbl.is nokkur viðtöl á ferlinum, þrælöflugur kappi og drengur góður viðræðu. Kristrún Ingunn og Alexander Örn hafa einnig rætt við mbl.is: Frétt af mbl.is Ofurpar með 1.100 í samanlögðu Auk Auðuns eru Hinrik Pálsson, fyrrverandi formaður Kraftlyftingasambands Íslands, og Laufey Agnarsdóttir formaður þjálfarar íslenska hópsins og segir Auðunn gestgjafana góða skipuleggjendur sem hafi raunar fengið HM í ár óvænt upp í hendurnar. „Það átti að vera í Dúbaí en alþjóðasambandið ákvað þetta á síðustu stundu vegna góðra aðstæðna hér og þetta er virkilega flott, stórt íþróttahús og hótelið okkar rétt við hliðina á,“ segir Auðunn Jónsson frá Druskininkai í Litáen þar sem kraftlyftingaveisla er fram undan næstu daga sem mbl.is hefur að sjálfsögðu augu og eyru á. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Semur við lið í Austurríki Sjaldséður mjaldur á Austurlandi Læknir og dýralæknir rífa í stálið í Litáen Ancelotti: „Vorum taugaóstyrkir" Svisslendingar vilja ekki takmörk á íbúafjölda Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Ætlar að verða sá fyrsti sem syndir Lagarfljót Framburður starfsfólks: „Ég drap þau“ Harðnar enn í deilum hjá Icelandair Mest lesið Í gær Í vikunni Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ Leitin að skipinu gæti tekið mörg ár Vilja stöðva íslenskar sérlausnir „Uppskrift að mjög slæmum kokteil“ Ætlar að verða sá fyrsti sem syndir Lagarfljót Lífsmáti að vera í þessari hljómsveit Skjálftahrinan í rénun: Áfram á gulum kóða Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Skemmtistaðnum Exit lokað í nótt Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Leynd yfir samskiptum aflétt með úrskurði Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Nýjast á mbl.is » Semur við lið í Austurríki Sjaldséður mjaldur á Austurlandi Læknir og dýralæknir rífa í stálið í Litáen Ancelotti: „Vorum taugaóstyrkir" Svisslendingar vilja ekki takmörk á íbúafjölda Umræðan „Gekk, fekk vargr at drekka“ Þessu fer að ljúka í bili Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Sex flugferðum aflýst í dag „Við vildum yfirgefa þennan heim öll saman“ Vilja stöðva íslenskar sérlausnir Klórar sér í hausnum yfir ummælum ráðherra Mest lesið Í gær Í vikunni Færa kóða á gult: Hrinan líklega sú kröftugasta Afritaði skilaboð og dreifði til starfsmanna „Ég var í nýjum skóm í barnastærð“ „Þetta verður svona algjört lífsgæðasvæði“ Leitin að skipinu gæti tekið mörg ár Vilja stöðva íslenskar sérlausnir „Uppskrift að mjög slæmum kokteil“ Ætlar að verða sá fyrsti sem syndir Lagarfljót Lífsmáti að vera í þessari hljómsveit Skjálftahrinan í rénun: Áfram á gulum kóða Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Andlát: Þórdís Kristmundsdóttir „Ef ég fer til Úkraínu kem ég ekki til baka“ Meirapróf til að aka strumpastrætó Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum Þremur skemmtistöðum lokað í aðgerðum lögreglu Skemmtistaðnum Exit lokað í nótt Jafn mikil verðmæti aldrei sokkið við Ísland Styður ekki hjólhýsabyggð í borginni Leynd yfir samskiptum aflétt með úrskurði Bubbi sleit liðband Stefnir í hlýjasta dag sumarsins Réðst á dreng í sundi Matarkarfan 40% ódýrari á Íslandi Flugstjórar með tæpar þrjár milljónir Pottinum fargað: „Okkur finnst þetta sóun“ Tilbúnir að slást í sundklefunum Óttast er að hundruð missi vinnuna Gjaldtaka aukin með innviðafélagi Höfðu afskipti af ágengum sölumönnum í Eyjum

Share this article