Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 16 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Jarðhræringar Tveir skjálftar yfir 3 að stærð við Þórisjökul Grétar Þór Sigurðsson Jörð hefur skolfið við Þórisjökul í kvöld. RÚV / Einar Rafnsson Tveir skjálftar yfir þremur að stærð urðu norðvestan við Þórisjökul laust eftir klukkan 23 í kvöld. Samkvæmt fyrstu mælingum Veðurstofunnar var stærð skjálftanna 3,8 og 3,3. Þeim hafa fylgt nokkrir minni eftirskjálftar. Að sögn Steinunnar Helgadóttur náttúruvársérfræðings hefur verið nokkuð stöðug virkni á þessum slóðum síðustu vikur. Líklegast þykir að skjálftarnir hafi orðið vegna spennulosunar í jarðskorpunni. Fyrir 6 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Úkraína Úkraína færist nær Evrópusambandinu Ungverjaland ætlar ekki lengur að standa í vegi fyrir að Úkraína geti hafið aðildarviðræður við Evrópusambandið. Þjóðirnar hafa náð samkomulagi um langvarandi deilumál. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Stjórnmál Mikilvægt að hleypa ungu stjórnmálafólki að borðinu Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, sagði í morgun af sér þingmennsku eftir að hafa setið á þingi fyrir Sjálfstæðisflokkinn í áratug. Hún segir að stjórnmál ættu ekki endilega að vera ævistarf fólks, mikilvægt sé að hleypa ungum að. Fyrir 2 tímumÍÞRÓTTIR Tennis Tvö munu skrá sig á spjöld tennissögunnar Nú er ljóst hver leika til undanúrslita á opna franska meistaramótinu í tennis, bæði í einstaklingskeppni karla og kvenna. Ekkert þeirra hefur unnið risamót á ferlinum og einungis einn hefur leikið til úrslita. Fyrir 2 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fangelsismál Fangar sem vísað verði á brott frjálsir ferða sinna Föngum sem vísað verður úr landi á grundvelli nýrra laga verða frjálsir ferða sinna segir fangelsismálastjóri. Hún segir mikilvægt að losa rýmin svo hægt sé að kalla inn fólk af boðunarlistum. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Fótbolti Jelena Tinna inn í landsliðið fyrir Hafrúnu Rakel Almarr Ormarsson Hafrún Rakel Halldórsdóttir þarf að draga sig úr landsliðshópi kvenna í fótbolta sem mætir Úkraínu á föstudag vegna meiðsla. Inn í hópinn í hennar stað kemur Jelena Tinna Kujundzic, leikmaður Þróttar. Jelena Tinna Kujundzic í leik með Þrótti í sumar RÚV / Mummi Lú Jelena Tinna er 23 ára miðvörður og gæti spilað sinn fyrsta A-landsleik gegn Úkraínu eða Spáni á þriðjudag. Hún á þó 10 leiki fyrir yngri landsliðin. Úkraína - Ísland verður í beinni útsendingu á RÚV á föstudag. Leikurinn hefst 16:00, upphitun 15:35. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menning Draumur Jökuls í Kaleo rætist senn á Þingvöllum Draumur Jökuls Júlíussonar söngvara Kaleo um að halda tónleika á Þingvöllum rætist senn. Undirbúningur er í fullum gangi fyrir stórtónleika þar 20. júní. Þjóðgarðsvörður segir tónleikana tilraun til viðburðahalds. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Menntamál Hjallastefnuskóli kemst í varanlegt skjól eftir fjögur ár á hrakhólum Nýtt húsnæði leik- og grunnskóla Hjallastefnunnar rís við Öskjuhlíð í Reykjavík. Skólinn hefur verið á hrakhólum síðan hann missti húsnæði sitt fyrir fjórum árum. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Leit og björgun Annað útkall Bjargar í dag vegna aflvana báts Ásrún Aldís Hreinsdóttir Björgunarbáturinn Björg í Rifi á Snæfellsnesi sinnti tveimur útköllum í dag. Björg var nýkomin til hafnar eftir fyrra útkallið þegar tilkynning barst um annað útkall. Fyrra útkallið var vegna fiskibáts á Breiðafirði sem kviknað hafði í. Skipverjinn komst af heill á húfi en búið var að loka vélarrúmi bátsins og ræsa slökkvikerfi stuttu eftir að tilkynning barst. Seinna útkallið var vegna aflvana báts vestur af Öndverðarnesi. Í tilkynningu Landsbjargar segir að engin hætta hafi verið á ferðum og báturinn verði dreginn til hafnar. Myndirnar eru úr útköllum Bjargar í dag. Aðsend / Landsbjörg Aðsend / Landsbjörg Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Vinnumarkaður Lítur út fyrir að forsendur bresti en ekki endilega uppsögn kjarasamninga Töluverðar líkur eru á því að verðbólguviðmið sem sett voru í kjarasamningana fyrir tveimur árum haldi ekki og að verðbólga verði meira en 4,95% í sumarlok. Það þarf þó ekki að þýða að kjarasamningum verði sagt upp. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Peningar Telja að Íslendingar veðji fyrir 7,5 milljarða á HM í knattspyrnu Bandaríska fyrirtækið GCI telur að Íslendingar muni eyða um 7,5 milljörðum króna í veðmál í tengslum við heimsmeistaramótið í knattspyrnu. Spretthópur á vegum dómsmálaráðherra skoðar breytingar á veðmálamörkuðum á Íslandi. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Undanþágur fyrir fyrstu kaupendur ekki nógu vel nýttar Skuldir fyrirtækja í byggingariðnaði hafa aukist og merki eru um vaxandi vanskil, samkvæmt fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands. Seðlabankastjóri segir undanþágur fyrir fyrstu íbúðakaupendur ekki hafa verið nýttar nægilega vel. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ætlar að leita til evrópskra dómstóla falli málið honum ekki í hag Ivan Nicolai Kaufmann segir að hann muni leita til evrópskra dómstóla verði niðurstaða í máli Vélfags gegn ríkinu honum ekki að skapi. Lögfræðingur Vélfags telur að skoða verði ákvörðun Arion banka að frysta fjármuni félagsins nánar. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Söfnuðu 600.000 krónum á þremur dögum Tvær stelpur í tíunda bekk í Kársnesskóla stóðu fyrir sölu á armböndum til styrktar stuðningsfélaginu Krafti. Á þremur dögum tókst þeim að safna rúmum 600.000 krónum, félagið segir styrkinn ómetanlegan. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin Minnkandi stuðningur Repúblikana við hjónabönd samkynhneigðra Stuðningur Repúblikana í Bandaríkjunum við rétt samkynhneigðra til að ganga í hjónaband hefur dregist saman, samkvæmt nýrri könnun. Innan við 40 prósent þeirra styðja samkynja hjónabönd. Meðal Bandaríkjamanna almennt er stuðningurinn 65 prósent. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Héraðssaksóknari með fleiri en eitt mál tengd meintum fjárdrætti lögmanns á sínu borði Héraðssaksóknari er með fleiri en eitt mál til meðferðar sem tengjast lögmanni sem sakaður er um misferli. Lögmaðurinn hefur verið kærður fyrir fjárdrátt úr dánarbúi konu sem hún var fjárhaldsmaður fyrir. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Ætti að vera hægt að erfðagreina beinin Prófessor í stofnlíffræði segir sennilegt að hægt sé að greina hvort beinin í gröf Jónasar Hallgrímssonar á Þingvöllum séu raunverulega hans. Það velti þó á því hvernig þau hafa varðveist. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Svíþjóð Sænskir hægrimenn vilja lækka áfengiskaupaaldur Alexander Kristjánsson Fyrirkomulag áfengissölu er orðið að kosningamáli í Svíþjóð. Á dögunum tilkynnti þjóðernisflokkurinn Svíþjóðardemókratar að flokkurinn vildi að áfengisverslanir ríkisins, Systembolaget, yrðu opnar á sunnudögum. Þá ættu kaldir drykkir að vera seldir í verslununum. Nú hefur hægriflokkurinn Moderatarna heitið því að lækka áfengiskaupaaldur úr 20 árum í 18 fyrir bjór og vín. Núgildandi aldurstakmörk myndu þó halda sér fyrir sterkasta áfengið. Áfengislöggjöf í Svíþjóð er einhver sú strangasta í Evrópu. Auk þess að vera lokaðar á sunnudögum er opnunartíminn takmarkaður á laugardögum. Þá gilda strangar reglur um áfengissölu veitinga- og skemmtistaða. Ulf Kristersson, forsætisráðherra Svíþjóðar og formaður hægriflokksins Moderaterna. Kosið verður til þings í Svíþjóð í september. EPA / GEORGE CHRISTOFOROU Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Tónlist Aldarminning Kristins Hallssonar Kristinn Hallsson var um langt skeið einn besti bassabarítónsöngvari Íslendinga. Han fæddist 4. júní 1926 og hefði því orðið 100 ára á þessu ári. Í tilefni af því verður þátturinn „Á tónsviðinu“ fim. 4. júní helgaður honum. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Stígur ekki inn í kjaradeiluna að svo stöddu Á meðan einhver þróun er í kjaradeilu milli Icelandair og FÍA skipta stjórnvöld sér ekki af henni, að sögn Daða Más Kristóferssonar fjármálaráðherra. Hann segir ljóst að áskoranir séu í rekstri Icelandair. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Ólafur Börkur lætur af embætti hæstaréttardómara Alexander Kristjánsson Ólafur Börkur Þorvaldsson hæstaréttardómari lét af embætti dómara nú um mánaðamót. Ólafur Börkur var skipaður hæstaréttardómari árið 2003 og var sá dómari við réttinn sem hafði lengstan starfsaldur. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Hæstarétti. Ólafur Börkur er 65 ára gamall. Dómarar sem hafa náð þeim aldri geta óskað eftir að vera leystir frá störfum og halda þeir þá fullum launum til æviloka. Ólafur Börkur, lengst til hægri í fremri röð, ásamt öðrum dómurum við Hæstarétt. Hæstiréttur Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bretland Starmer hvetur til stillingar eftir mótmæli í gærkvöld Ásrún Brynja Ingvarsdóttir Ellefu lögreglumenn og lögregluhundur særðust í mótmælum í Southampton í Bretlandi í gærkvöld. Fólk kom saman og mótmælti meðferð lögreglu á Henry Nowak, 18 ára pilti sem var stunginn til bana í desember í fyrra. Nýbirtar upptökur sýna að lögregla handtók Nowak á vettvangi á meðan honum blæddi út vegna stungusára. Hann var handtekinn eftir rangar ásakanir Vickrums Digwa um kynþáttafordóma. Digwa var síðar var dæmdur fyrir morðið í vikunni. Í ræðu í breska þinginu í dag hvatti Keir Starmer forsætisráðherra til stillingar. Hann sagði ekkert réttlæta frekara ofbeldi og að árásir á lögreglumenn í Southhampton í gær væru til skammar. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands. AP / Kirsty Wigglesworth Fyrir 8 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bókmenntir Natasha S. hlýtur Maístjörnuna 2026 Natasha S. er handhafi ljóðaverðlaunanna Maístjörnunnar í ár fyrir bókina Mara kemur í heimsókn. Í umsögn dómnefndar segir að verkið sé heildstætt og sterkt, ástríðufullt og heiðarlegt, persónulegt og pólitískt. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Gagnleg skýrsla án niðurstöðu Arnaldur Sölvi Kristjánsson, lektor í hagfræði, segir að ný skýrsla um kosti Íslands í gjaldmiðlamálum sé gagnleg til að vega og meta kosti evrunnar. Þar sé ekki tekin afstaða til þess hvort kostnaður við krónu sé meiri en ábatinn. Fyrir 8 tímumINN