Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Er bæði eyðilagður og sorgmæddur

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 4.6.2026 | 8:00 Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Ivan Kaufmann. mbl.is/Karítas Freyr Bjarnason [email protected] Setja bókamerki Ivan Kaufmann, meirihlutaeigandi Vélfags, segist vera bæði eyðilagður og sorgmæddur yfir því sem gengið hefur á í tengslum við fyrirtækið og kveðst hafa orðið fyrir miklum vonbrigðum með kerfið á Íslandi. Honum er mikið í mun að endurreisa orðspor sitt og annarra sem hafi beðið hnekki undanfarin misseri. Kaufmann ræddi við blaðamann skömmu eftir að hafa hlustað á málflutning í Hæstarétti í máli Vélfags gegn ríkinu. Næsta mánudag fer síðan fram málflutningur í máli hans gegn ríkinu. Í lok nóvember í fyrra sýknaði Héraðsdómur Reykjavíkur ríkið í máli sem tengist viðskiptaþvingunum sem Vélfag sætti af hálfu íslenskra stjórnvalda vegna meintra tengsla Kaufmann við rússneskt félag sem er talið hluti af „skuggaflota“ Rússa. Kaufmann vildi áfrýja málinu beint til Hæstaréttar, sem var samþykkt. Aðspurður segir Kaufmann ákvörðunina hafa komið sér þægilega á óvart miðað við hversu fá mál fái slíka meðhöndlun. Sakaður um njósnir Kaufmann hefur lýst því yfir að hann ætli að fara með málið alla leið til evrópskra dómstóla ef málið tapast hér á landi. Hann er enn á þeirri skoðun. Hann bendir á að 40 manns hafi misst vinnuna hjá Vélfagi eftir að málið kom upp og að fyrirtækið hafi nú þegar verið eyðilagt. „En það eru fleiri hlutir sem hægt er að berjast fyrir eins og orðspori fólks, þar á meðal mínu. Ég hef verið sakaður um að vera glæpamaður, njósnari á vegum FSB [rússnesku öryggisþjónustunnar] og að vera allt í öllu hjá skuggaflotanum. Þennan skaða þarf að leiðrétta.“ Tapaði viðskiptum Spurður hvaða áhrif þessar ásakanir hafi haft á hann persónulega svarar hann að nokkrir bankar hafi hætt viðskiptum við hann, tryggingafélög hafi gert slíkt hið sama, auk þess sem börn hans hafi orðið fyrir aðkasti í skóla og þau kölluð „rússneskar hórur“. „Ég veit ekki hvernig þetta er á Íslandi en ef þú ert, árið 2025, sakaður um að vera rússneskur njósnari, njósnari Pútíns í Evrópu, þá er bæði félags- og viðskiptalífið þitt búið. Ég tapaði miklum viðskiptum, missti mörg verkefni og marga persónulega vini. Þetta olli alvarlegum skaða,“ segir Kaufmann og krefst gagnsæis. Að aðgangur verði veittur að gögnum sem bendla hann við umræddar ásakanir. Hann kveðst aldrei hafa fengið tækifæri til að verja sig þegar málið kom upp eða fengið að sjá sannanir fyrir aðgerðum ríkisins. „Ekki bara segja, þetta er þjóðaröryggismál og við getum ekki deilt því með neinum.“ Ekki auðveld ákvörðun „Ég er eyðilagður, sorgmæddur og hef orðið fyrir miklum vonbrigðum með kerfið hér á Íslandi,“ heldur hann áfram og kveðst fyrst og fremst hafa keypt Vélfag vegna þriggja véla sem hefðu getað breytt fiskvinnsluiðnaði um allan heim. Áður en þær voru settar á markað hefðu keppinautar og fjárfestingarfyrirtæki frétt af gildi vélanna og viljað taka fyrirtækið yfir, sem hann hafi þverneitað. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hafi þrívegis beðið hann um að selja fyrirtækið en án árangurs. „Það var ekki auðveld ákvörðun, því ég vissi að ef ég segði nei myndi hún drepa fyrirtækið,“ bætir hann við. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér 1 blogg um fréttina Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Bloggað um fréttina Geir Ágústsson: Smjaðrað fyrir útlendingum Nýjast á mbl.is » Engin mínútuþögn Gleymdi vegabréfi sonarins heima Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Evrópsk stórlið eltast við Þjóðverjann Aðsend grein: Hvíl í friði, jafnlaunavottun Umræðan Evran er ekki töfralausn Hvíl í friði, jafnlaunavottun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Þó að einn fótboltaleikur sé búinn þá byrjar annar“ „Eins og alheimurinn hafi ákveðið þetta fyrir okkur“ Er bæði eyðilagður og sorgmæddur SS hyggst hætta halal-slátrunum Mest lesið Í gær Í vikunni Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Andlát: Ragna Ragnars Stærstu skjálftar síðan 2008 Tekist á um skipun bæjarstjóra í Eyjum SS hyggst hætta halal-slátrunum Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Minnast Jörundar Hilmarssonar með ráðstefnu Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Evruskýrslan „segir bara hálfa sögu“ Vill að höfnin verði bætt hraðar Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Nýjast á mbl.is » Engin mínútuþögn Gleymdi vegabréfi sonarins heima Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Evrópsk stórlið eltast við Þjóðverjann Aðsend grein: Hvíl í friði, jafnlaunavottun Umræðan Evran er ekki töfralausn Hvíl í friði, jafnlaunavottun Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Eins og alheimurinn hafi ákveðið þetta fyrir okkur“ Stjórnin „gjörsamlega að taka þetta mjög alvarlega“ Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Seðlabankastjóri gagnrýnir skýrsluna Mest lesið Í gær Í vikunni Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Andlát: Ragna Ragnars Stærstu skjálftar síðan 2008 Tekist á um skipun bæjarstjóra í Eyjum SS hyggst hætta halal-slátrunum Segir stjórnvöld hafa sagt ósatt um skýrsluna Minnast Jörundar Hilmarssonar með ráðstefnu Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu Evruskýrslan „segir bara hálfa sögu“ Vill að höfnin verði bætt hraðar Áslaug Arna hættir á Alþingi Íslendings saknað á Taílandi Þota Icelandair föst á Tenerife eftir árekstur Andlát: Steingrímur Ari Arason Tekist á um hvort hundur megi drekka úr vatnshana Hegðunar- og agavandamál áberandi Vara við smáskilaboðum: Ekki ýta á hlekkinn Flytja fanga úr landi og losa um tugi rýma Deilan snúi ekki að launakjörum: Áratuga kverkatak Íslendingur vann 10 milljónir í Víkinglottó Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Fjölskyldufaðir hætt kominn eftir rof á pakkningum Lést við barnsburð á Landspítalanum Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Verulegur munur á árangri eftir grunnskólum Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Loka svæðinu eftir að víðfeðmt sprungunet var afhjúpað Fangi á Hólmsheiði lést í nótt

Share this article