Innlent | mbl | 24.6.2026 | 14:49 „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Ivan Kaufmann. mbl.is/Karítas Setja bókamerki Tengdar fréttir Viðskiptaþvinganir vegna innrásar Rússa Grunaðir um ólögmætan innflutning til Rússlands Mál Kaufmanns beint upp í Hæstarétt Stjórnarformaður Vélfags handtekinn Vélfagi veittar undanþágur Bólar ekkert á svörum frá ráðuneytinu » Fleiri tengdar fréttir Íslenska ríkið hafði betur í máli gegn Ivan Kaufmann, eiganda Vélfags, í Hæstarétti en dómurinn var kveðinn upp í dag og hefur enn ekki verið birtur. Ríkið var einnig sýknað í Héraðsdómi Reykjavíkur þegar málið var tekið fyrir þar í nóvember í fyrra. Fékkst þó leyfi til að áfrýja málinu beint upp í Hæstarétt án viðkomu í Landsrétti. Frétt af mbl.is Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Málið tengist viðskiptaþvingunum sem Vélfag fékk á sig vegna meintra tengsla Kaufmann við rússneskt félag sem er talið hluti af „skuggaflota“ Rússa. Vélfag hefur síðan þá sagt upp öllu starfsfólki sínu en einnig var ráðist í handtökur á Alfreð Tulininus, stjórnarmanni félagsins, auk fimm annarra starfsmanna Vélfags í janúar. Frétt af mbl.is „Þetta er búið að eyðileggja“ Ekkert lært af fjármálahruninu Kaufmann hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna dómsins. „Í dag er enn einn vondur dagur fyrir Ísland. Í engu öðru landi í Evrópu þorir ríkisstjórnin að fara svona óvarlega með valdheimildir stjórnvalda gagnvart einkareknum fyrirtækjum,“ segir í yfirlýsingunni. Segir Kaufmann dóminn sýna að Ísland hafi ekkert lært af fjármálahruninu. Enn sé hér til staðar elíta sem samanstandi af bankamönnum og miskunnarlausum stjórnmálamönnum sem meti eigin frama miklu meira en framtíð þjóðarinnar. „Það er uggvænlegt að Hæstiréttur hafi ekki notað þetta tækifæri til þess að sýna heiminum að Ísland hafi lært af fortíð sinni og sé viljugt til að láta fólk og stofnanir sæta ábyrgð fyrir misgjörðir sínar.“ Frétt af mbl.is Handtekin fyrir framan synina Lætur ekki staðar numið Kaufmann segir nægjanlega sönnun ekki hafa farið fram í málinu. Orð Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra hafi verið tekin sem heilögum sannleik. Þetta hafi leitt til þess að stöndugu 30 ára gömlu fyrirtæki hafi verið fórnað. Kemur fram í yfirlýsingunni að Kaufmann ætli ekki að láta staðar numið, hann ætli að láta reyna á málið fyrir evrópskum dómstólum. „Þó að ég viti að leiðin til evrópskra dómstóla sé löng þá veit ég að sú leið leiðir til réttlætis. Þetta mun verða niðurlægjandi fyrir Ísland gagnvart heiminum, af völdum veikburða ríkisstjórnar og sjálfhverfs ráðherra.“ Tengdar fréttir Viðskiptaþvinganir vegna innrásar Rússa Grunaðir um ólögmætan innflutning til Rússlands Mál Kaufmanns beint upp í Hæstarétt Stjórnarformaður Vélfags handtekinn Vélfagi veittar undanþágur Bólar ekkert á svörum frá ráðuneytinu » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Mætti ekki til vinnu frá Íslandi „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Stjarnan byrjar viðureignina á heimavelli „Annars þénar maður ekkert“ Real opið fyrir því að selja Frakkann Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Segir eðlilegar skýringar á töfum Ríkisstjórnin fær einkunnina -7 Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra Hola í höggi í fjórða skipti Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Kannast ekki við að beita bolabrögðum Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn Nýjast á mbl.is » Mætti ekki til vinnu frá Íslandi „Enn einn vondur dagur fyrir Ísland“ Stjarnan byrjar viðureignina á heimavelli „Annars þénar maður ekkert“ Real opið fyrir því að selja Frakkann Umræðan Farsæld Íslands byggist á verðmætasköpun Börnin þurfa nú að bíða lengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Kristján óskaði eftir aðkomu lögreglunnar Myndi kosta rúman milljarð á ári Samningurinn „yfirlýsing Bandaríkjanna um ósigur“ Mest lesið Í gær Í vikunni Aðsókn sprakk eftir lækkun árgjaldsins Fjölskyldulífið hafi minnt á sjöunda áratuginn Andlát: Hjörtur Guðnason „Það var erfiðasti tími lífs míns“ Þessi sóttu um stöðu bæjarstjóra Hola í höggi í fjórða skipti Vill að ákvæðin verði endurskoðuð Segir Grím vera að reyna að afvegaleiða umræðuna Kannast ekki við að beita bolabrögðum Segir Íslendinga ekki þurfa að óttast Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vita ekki hverjir skulda Andlát: Ingimar Sveinsson Svikahrappurinn var handtekinn í nótt Heilu vinkvennahóparnir teknir kyrkingartaki Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Draga úr tölvunotkun og snúa aftur í bækurnar „Gæti orðið eins konar húsfluga með tímanum“ Biður fólk að panta ekki gáma hjá AB gámum Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Af hverju er fólk að selja miðana sína? Gengu út er verðlaunahafi var tilkynntur Myndskeið: Glannalegur framúrakstur Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Andlát: Þráinn Eggertsson Aflýstu 17. júní vegna veðurs „Þetta er það ljótasta sem ég hef séð“ Nafn mannsins sem lést í slysinu austan Víkur Vopnfirðingar fá veglega gjöf frá Ratcliffe Greiddu hundruð þúsunda í sekt fyrir aksturinn