Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hjartað á milljón: Poppað og ekki stoppað

Read Full Article →

Arnar Eggert Thoroddsen skrifar: Ágúst Brynjarsson er Húsvíkingur sem hefur fetað íslenska poppstigu nokkuð vandlega síðustu misseri. Söngvari, lagahöfundur og tónlistarmaður sem fólk sá fyrst almennilega er hann tók þátt í Söngvakeppni Sjónvarpsins í fyrra með laginu „Eins og þú“ (á þessari plötu í kassagítarútgáfu). Hann hefur þá starfað með Stuðlabandinu og stýrir brekkusöngnum á Þjóðhátíð í Vestmannaeyjum í ágúst. Tónlistin á þessum frumburði er heiðarlegt og nútímalegt popp, maður heyrir í Friðriki Dór, Jóni Jónssyni, Birgi Steini og Bríeti þess vegna. Hendum Kristmundi Axel og Júlí Heiðari í blönduna og þið fáið ágætis mynd af því sem í gangi er. Platan opnar með „Áttavilltur“, ástarlagi sem er engu að síður í þokkalegasta stuðgír út í gegn. Hér má heyra, og þetta er endurtekið á nokkrum stöðum út í gegn, leikvangabrag sem maður heyrir hjá Coldplay og Of Monsters And Men til dæmis, „stór“ lög, kveikjarar á lofti og viðlag þar sem 100 manns virðast vera syngjandi. Ekki slæm byrjun. Stórstjarnan Una Torfa syngur „Inn í síðustu nóttina“ með Ágústi og einkennandi rödd hennar lyftir smíðinni þó að í grunninn sé lagið vel hefðbundið og heldur einkennalaust. „Sveitin mín (19Þ5)“ er óður til heimahagana á meðan „Hægðu á þér“ er væmin ballaða, sungin til afkvæmis. Eins ærlegt og einlægt lagið annars er nær það ekki að vaxa upp fyrir fimmta gírs væmni sem skekkir það á endanum. Nú er platan sirka hálfnuð og takmarkanir hennar orðnar nokkuð augljósar. Þetta er vel spilað og upp tekið og vel sungið líka en sjálf lögin og samsetning þeirra, þetta nær ekki að komast frá rækilega hefðbundnu og ófrumlegu sniði sem gerir lögin eðlilega of auðgleymanleg. Ekkert að ljúfu og létt leikandi poppi en það er auðvitað ekki sama hvernig þetta er fært fram. Platan tikkar áfram í þessum stokki. „Á leiðinni“ er trukkandi handarklappspopp og „Ekkert hafi breyst“ er ballaða. Bæði lögin þó í þessum sérkennalausa ham sem ég lýsi. Rísandi stjarnan Klara Einars kemur sterk inn í „Bara ef þú vissir“ og gefur laginu aukakraft. Lokað er með áðurnefndri kassagítarútgáfu af „Eins og þú“. Ágúst tók ákvörðun árið 2024 um að starfa einungis við tónlist og hefur verið að gera gott mót í þeim efnum. Hann er að túra landið um þessar mundir, er að spila með stjörnum eins og Ásgeiri og Unu Torfa og þegar maður skoðar samfélagsmiðlana má sjá að allt er í gangi. Þessi fyrsta breiðskífa er hins vegar furðu flöt verður að segjast. Alpopparar eins og Birgir Steinn hafa náð að landa mjög sannfærandi þannig verkum og Júlí Heiðar passar að hafa nægilega mikið af broddum í sinni popplist. Ágúst nær hins vegar engan veginn að hefla út nægileg sérkenni á þessari fyrstu plötu sinni en athugum það að þetta er fyrsta plata hans og nægt rými til þróunar sem bætingar á næstu árum, haldi hann rétt á spöðum. Hvernig virkar stjörnugjöf Rásar 2? Fimm stjörnur: Klassík. Hér er allt eins og best verður á kosið. Platan setur mark sitt á tónlistarsöguna til framtíðar. Fjórar og hálf stjarna: Lygilega góð en tíminn leiðir í ljós hvort hún telst klassík. Fjórar stjörnur: Framúrskarandi. Hún er áhrifamikil og næstum því hvert einasta lag er frábært. Hlustendur sem eru ekki alltaf hrifnir af þessum flytjanda eða tónlistarstefnu eiga eftir að kunna að meta hana. Þrjár og hálf stjarna: Frábær. Ef þetta er tónlistarstefna að þínu skapi þá hugnast þér þessi plata. Ef þú heldur upp á flytjandann áttu eftir að elska hana. Þrjár stjörnur: Góð. Flytjandinn var samur við sig og það heppnaðist með ágætum. Tvær og hálf stjarna: Meh. Annað hvort reyndi flytjandinn eitthvað nýtt sem gekk ekki alveg upp eða hann var ekki upp á sitt besta. Tvær stjörnur: Sæmileg. Jafnvel þótt þú sért mikill aðdáandi þarftu talsverða sjálfsblekkingu til að telja þér trú um að þessi sé góð. Ein og hálf stjarna: Láttu þessa eiga sig. Ein stjarna: Léleg. Þú ættir eiginlega að kynna þér hana, þó ekki nema bara til að heyra hversu yfirgengilega slæm hún er. Arnar Eggert Thoroddsen er doktor í tónlistarfræðum frá Edinborgarháskóla og aðjúnkt í fjölmiðlafræði við Félags- og mannvísindadeild Háskóla Íslands. Hann hefur fjallað um tónlist í íslenskum fjölmiðlum um áratugaskeið.

Share this article