Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Innblásin af Arlo Parks og Emilíönu Torrini

Read Full Article →

Söngkonan Brynja Bjarnardóttir, sem hefur verið starfandi í nokkur ár, sagði hlustendum Popplands frá nýju lagi í dag. Hún blandar saman nútíma R&B og neo-sál við mjúka og draumkennda popptóna. Hún segist innblásin af listamönnum á borð við Clairo, Arlo Parks og Emilíönu Torrini. Brynja vann nýja lagið, One by One, með Baldvini Hlynssyni. Hann segir að lagið hafi komið eiginlega allt í einu sessioni og að það sé húmor í laginu fyrir tónfræðinördana þarna úti. „Við skemmtum okkur svo vel við gerð lagsins og það skín í gegn í lagasmíðinni.“ Hún segir lagið fjalla um þá stund sem þú áttar þig á því að það er nóg komið af sorg og sút og tími til að halda áfram með bros á vör. Hlustaðu á lagið One By One í spilaranum hér að ofan.

Share this article