Lýður Guðmundsson, sem oftast er kenndur við Bakkavör, hefur eignast 20% hlut í Skógarböðum á Akureyri og er orðinn næst stærsti hluthafi félagsins, samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins. Viðskiptablaðið greindi nýlega frá því að Lýður hefði keypt 4,54% hlut í Skógarböðum af veitufyrirtækinu Norðurorku, sem er í eigu Akureyrarbæjar og fimm nágrannasveitarfélaga. Norðurorka setta eignarhlut sinn í Skógarböðum í opið söluferli í september sl. Sjá einnig Lýður kaupir í Skógarböðum Lýður hefur í kjölfarið stækkað við sig og keypt eignarhluti af nokkrum öðrum hluthöfum. Félagið N10b ehf., sem er í hjónanna Finns Aðalbjörnssonar og Sigríðar Maríu Hammer, er áfram meirihlutaeigandi Skógarbaða. Í lok árs 2025 voru hluthafar Skógarbaða sex talsins. Næst stærsti hluthafinn var félagið Bjarnason Holding ehf., í eigu Birkis Bjarnasonar, fyrrverandi landsliðsmanns í fótbolta, með 20,4% hlut. Rafverktakafyrirtækið Rafeyrir átti 11% hlut. Þó fóru félögin N10 ehf., í eigu Kristins H. Svanbergssonar og Sólveigar Hallgrímsdóttur, og Vað ehf., í eigu Sigrúnar Vésteinsdóttur og Sigurðs Birkis Sigurðssonar, hvort um sig með 3,01% hlut. Stærstu hluthafar Skógarbaða í árslok 2025 Hluthafi Eignarhlutur N10b ehf. 57,7% Bjarnason Holding ehf. 20,4% Rafeyri ehf. 11,3% SK601 ehf. (Lýður) 4,5% N10 ehf. 3,0% Vað ehf. 3,0% Skógarböðin reka baðaðstöðu og veitingastað gegnt Akureyri við rætur Vaðlaheiðar. Félagið vinnur að því að reisa 120 herbergja hótel með heilsulind, veitingaaðstöðu og ráðstefnusal við hlið hennar og eru áætluð verklok á árinu 2027.