Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Skógarböðin metin á tæpa 6 milljarða

Read Full Article →

Virði hlutafjár Skógarbaða á Akureyri var metið á 5,8 milljarða króna í viðskiptum með hlutabréf félagsins í lok síðasta árs. Virði ferðaþjónustufyrirtækisins ríflega tvöfaldaðist frá fyrri viðskiptum með hlutabréf félagsins á árinu 2024. Viðskiptablaðið greindi frá því í maí síðastliðnum að Lýður Guðmundsson, annar stofnenda Bakkavarar, hefði keypt 4,54% eignarhlut í Skógarböðum af veitufyrirtækinu Norðurorku í lok síðasta árs. Norðurorka setti eignarhlut sinn í opið söluferli í september 2025. Í sumar greindi Viðskiptablaðið frá því að Lýður hafi á þessu ári stækkað hlut sinn í Skógarböðum og eigi nú um 20% hlut í félaginu. Sjá einnig Lýður eignast 20% hlut í Skógar­böðum Lýður keypti 4,54% eignarhlut af Norðurorku í lok síðast árs í gegnum félagið SK601 ehf., sem er dótturfélag Frigusar ehf. Samkvæmt nýbirtum ársreikningi SK601 nam kaupverðið 265 milljónum króna. Út frá því má ætla að virði hlutafjár Skógarbaða hafi verið metið á 5,8 milljarða króna í viðskiptunum. Til samanburðar var virði félagsins metið á 2,9 milljarða króna þegar Höldur – baðfélag ehf., systurfélag Hölds – Bílaleigu Akureyrar, seldi 10% hlut sinn í Skógarböðum fyrir 290 milljónir króna árið 2024. Bjarnason Holding ehf., fjárfestingarfélag Birkis Bjarnasonar knattspyrnumanns, var stærsti aðilinn á kauphliðinni í umræddum viðskitpum. Sjá einnig Birkir stækkar við sig í Skógarböðum Skógarböðin reka baðaðstöðu og veitingastað gegnt Akureyri við rætur Vaðlaheiðar. Félagið vinnur að því að reisa 120 herbergja hótel með heilsulind, veitingaaðstöðu og ráðstefnusal við hlið hennar og eru áætluð verklok á árinu 2027. Skógarböðin, sem reka baðaðstöðu og veitingastað gegnt Akureyri við rætur Vaðlaheiðar, eru í meirihlutaeigu hjónanna Finns Aðalbjörnssonar og Sigríðar Maríu Hammer. Þau keyptu jörðina í september 2020 og framkvæmdin sjálf tók aðeins fjórtán mánuði og opnaði baðlónið í maí 2022. Þess má geta að ofangreind kaup Lýðs á 4,5% af Norðurorku fóru fram áður en ríkisstjórnin upplýsti í mars sl. um að til standi að færa skattlagningu á aðgang að baðlónum úr neðra þrepi í almennt þrep virðisaukaskatts, þ.e. hækka VSK á þessa þjónustu úr 11% í 24%. Stærstu hluthafar Skógarbaða í árslok 2025 Hluthafi Eignarhlutur N10b ehf. 57,7% Bjarnason Holding ehf. 20,4% Rafeyri ehf. 11,3% SK601 ehf. (Lýður) 4,5% N10 ehf. 3,0% Vað ehf. 3,0% - samkvæmt ársreikningi Skógarbaða.

Share this article