Innlent | mbl | 5.6.2026 | 11:30 Staðfest að samræði við 13 ára væri nauðgun Landsréttur komst að þessari niðurstöðu. mbl.is/Kristinn Magnússon Kjartan Leifur Sigurðsson [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Kynferðisbrot Landsréttur staðfesti áframhaldi gæsluvarðhald Gert að greiða 800.000 í miskabætur Viðhafði kynferðisleg ummæli við börn Kynferðisbrotamál: Gera kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald Fékk skilorð fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni » Fleiri tengdar fréttir Landsréttur hefur dæmt karlmann í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að nauðga 13 ára stúlku á heimili sínu árið 2022 og kynferðislega áreita aðra stúlku á táningsaldri. Málið hefur farið fram og til baka í dómskerfinu. Í fyrstu var maðurinn sýknaður af ákæru um nauðgun í héraðsdómi þar sem talið var að stúlkan hefði veitt samþykki sitt. Landsréttur sneri þeim dómi við árið 2025 og taldi stúlkuna aldurs síns vegna ekki bæra til að veita samþykki. Hæstiréttur ómerkti fyrri dóm Landsréttar og vísaði málinu til réttarins að nýju. Hefur Landsréttur nú komist að sömu niðurstöðu öðru sinni. Frétt af mbl.is Ómerkir dóm Landsréttar í nauðgunarmáli Maðurinn er hælisleitandi Maðurinn, sem er hælisleitandi, komst í kynni við stúlkuna á Snapchat þegar hann var 21 árs og hún 13 ára gömul. Átti maðurinn í kjölfarið samræði við stúlkuna á heimili sínu, sem héraðsdómur taldi hafa átt sér stað með gildu samþykki hennar. Taldi Landsréttur í dóminum að þegar fullorðinn einstaklingur eigi samræði við barn undir 15 ára aldri þurfi að fara fram sjálfstætt mat á því hvort það leiði af þroska barnsins og öðrum atvikum að um gilt samþykki geti ekki hafa verið að ræða. Benti Landsréttur á að stúlkan hefði um árabil lotið forsjá barnaverndar og verið í varanlegu fóstri frá árinu 2017. Hefði stúlkan þá glímt við mikinn og fjölþættan tengslavanda vegna áfalla og ofbeldis í æsku. Taldi rétturinn þá að við skýrslugjöf hennar í Barnahúsi hefði hún verið einföld í svörum og bersýnilega verið íþyngjandi fyrir hana að rifja upp kynni sín við manninn. Lýsti stúlkan því að hún hefði verið hrædd við manninn og óttast að hann myndi meiða hana eða einhvern nákominn henni. Taldi Landsréttur að þegar samskipti hennar við manninn væru virt heildstætt væru þau til marks um ungan aldur brotaþola, reynsluleysi, takmarkaðan þroska og þörf á félagslegri viðurkenningu. Væri samþykki hennar fyrir samræðinu því ekki gilt og maðurinn sekur um nauðgun. Frétt af mbl.is Dæmdur fyrir brot gegn tveimur stúlkum Sama refsing og í fyrri dómi Var maðurinn þá, eins og áður segir, einnig sakfelldur fyrir að kynferðislega áreita aðra stúlku á táningsaldri. Var manninum gert að sök að hafa í nokkur skipti árið 2022 þuklað á brjóstum stúlkunnar innanklæða og reynt að færa hönd sína að kynfærum hennar. Þá hafi hann rasskellt stúlkuna í eitt skiptið. Hafði maðurinn verið sakfelldur fyrir þessi brot sín í héraðsdómi og í fyrri dómi Landsréttar og taldi Landsréttur enga ástæðu til að hnika þeirri niðurstöðu. Var maðurinn eins og áður segir dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir brot sín, sem er sama refsing og honum var gerð í fyrri dómi Landsréttar. Í héraðsdómi hlaut hann tveggja ára fangelsi. Tengdar fréttir Kynferðisbrot Landsréttur staðfesti áframhaldi gæsluvarðhald Gert að greiða 800.000 í miskabætur Viðhafði kynferðisleg ummæli við börn Kynferðisbrotamál: Gera kröfu um áframhaldandi gæsluvarðhald Fékk skilorð fyrir kynferðisbrot gegn systur sinni » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Grindavík auglýsir eftir bæjarstjóra Icelandair hefur flug til Qaqortoq Ástand Mette-Maritar lífshættulegt Búin með þennan kafla í lífinu Samþykktu 70 milljarða pakka Trumps Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Evran enginn happafengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Nigel Farage ólíklegur á fund Viðreisnar „Grundvallaratriði fyrir íslenska þjóð“ Stjórnvöld nýti neyðar- og fullveldisrétt Íslands Um 300 þegar fengið viðvörun Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Um 300 þegar fengið viðvörun Andlát: Þórir Lárusson Ekki frá höfundum komið Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon Birtingarmynd miklu stærri vanda „Ég er alltaf jákvæður. Ég vinn við það“ Livio gert að greiða Ingunni 25 milljónir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Lést við barnsburð á Landspítalanum Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga Nýjast á mbl.is » Grindavík auglýsir eftir bæjarstjóra Icelandair hefur flug til Qaqortoq Ástand Mette-Maritar lífshættulegt Búin með þennan kafla í lífinu Samþykktu 70 milljarða pakka Trumps Umræðan Evrópusambandið og átökin um auðlindirnar Evran enginn happafengur Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ekki frá höfundum komið Ellefu sagt upp hjá Kviku Erum augu og eyru bandalagsins Minna fé og færri styrkir þrátt fyrir aukin gæði Mest lesið Í gær Í vikunni Ósátt við að föður sínum sé blandað í umræðuna „Fólk á bara að hafa vit á þessu sjálft“ Dró sér tæpar sex milljónir sem bæjarfulltrúi Um 300 þegar fengið viðvörun Andlát: Þórir Lárusson Ekki frá höfundum komið Andlát: Vigfús Kr. Vigfússon Birtingarmynd miklu stærri vanda „Ég er alltaf jákvæður. Ég vinn við það“ Livio gert að greiða Ingunni 25 milljónir Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs SS hyggst hætta halal-slátrunum Unglingsstúlka fannst meðvitundarlaus í Firði Þekkt nöfn í eigendahópi nýs kaffihúss Andlát: Ragna Ragnars Hefur mikla þýðingu fyrir kaupendur fasteigna Ákærður fyrir manndráp af gáleysi eftir banaslys Er bæði eyðilagður og sorgmæddur Vill skoða sölu eða niðurlagningu Sorpu „Þetta er bara alveg hræðilegt“ Snarpur skjálfti á Mosfellsheiði Áslaug Arna hættir á Alþingi Andlát: Margrét Jónsdóttir Lést við barnsburð á Landspítalanum Banaslys í umferðinni: Metinn óhæfur til aksturs Myndband: Handtaka í Hveragerði Íbúar skelkaðir eftir dularfullt lágflug Íslendings saknað á Taílandi Fangi á Hólmsheiði lést í nótt Flugmaður Icelandair hjólar í Boga